„Það leið engum vel og allir biðu eftir að komast í land“

Fyrstu veik­indin meðal skip­verja á Júlíusi Geir­munds­syni komu upp á öðrum degi veiði­ferðar sem átti eftir að standa í þrjár vikur. Þeir veikt­ust einn af öðrum og var haldið „nauð­ugum og veikum við vinnu út á sjó í brælu“ á meðan Covid-sýk­ing geis­aði.

„Okkar for­gangs­verk­efni er að styðja okkar félags­menn sem voru um borð,“ segir Bergvin Eyþórs­son, vara­for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga, í sam­tali við Kjarnann í kvöld um hópsmitið sem upp kom um borð í frysti­skip­inu Júlíusi Geir­munds­syni ÍS 270, sem Hrað­frysti­húsið Gunnvör hf. gerir út. Skipið kom til hafnar á sunnu­dags­kvöld til olíu­töku og voru þá tekin sýni vegna gruns um smit af COVID-19 um borð. Enginn skip­verji kom í land og hélt skipið aftur til veiða. Í til­kynn­ingu frá Einari Val Krist­jáns­syni, fram­kvæmda­stjóra Hrað­frysti­húss­ins, á mánu­dag sagði að í ljós hafi svo komið að meiri­hluti áhafn­ar­innar var sýktur og skip­inu þá snúið til lands þangað sem það kom á þriðju­dag. Sagði í til­kynn­ingu Einars Vals að eng­inn um borð hafi virst alvar­lega veikur.

Skip­verjar hafa hins vegar lýst skelfi­legri stöðu sem kom upp í skip­inu og að hvorki skip­stjóri né útgerðin hafi séð ástæðu til að til­kynna til yfir­valda veik­indi sem breidd­ust út meðal áhafn­ar­innar. Í frétt RÚV í dag sagði að 13 af 25 skip­verjum væru með COVID-19 og í ein­angrun, níu væru með mótefni og þrír hafi farið í sótt­kví.

„Næsta skref verður að taka saman gögn og ræða við okkar lög­menn og önnur stétt­ar­fé­lög,“ segir Bergvin. Í fram­haldi af því verði rætt við útgerð­ina. Hann segir að meta þurfi hvort og þá hversu miklu tjóni skip­verjarnir sem eru í Verk Vest hafi orðið fyrir. „Það er óum­deilt að það leið engum vel í þessum aðstæðum og þeir voru allir að bíða eftir að kom­ast í land.“

For­svars­menn verka­lýðs­fé­lags­ins héldu fund með skip­verj­unum í dag þar sem þeir lýstu reynslu sinni. Á þriðja tug skip­verja sóttu fund­inn, sem var bæði stað­fundur fyrir þá sem ekki tóku þátt í umræddri veiði­ferð og einnig fjar­fundur fyrir þá sem höfðu sýkst og voru í sótt­kví eða ein­angrun. Í til­kynn­ingu frá verka­lýðs­fé­lag­inu kemur fram að ljóst megi vera að ástandið um borð hafi orðið mjög alvar­legt og skip­verjar margir hverjir veikst alvar­lega; fengið háan hita, glímt við önd­unarörðu­leika ásamt fleiri þekktum ein­kennum COVID-19.

Þrátt fyrir þessu skýru ein­kenni um sýk­ingu töldu hvorki útgerð né skip­stjóri ástæðu til að til­kynna um veik­indin til sótt­varn­ar­yf­ir­valda eða Land­helg­is­gæslu eða halda skipi til hafnar þannig að hægt væri að fram­kvæma sýna­töku og koma í veg fyrir frek­ari smit um borð, segir í til­kynn­ingu verka­lýðs­fé­lags­ins. „Hver er að ljúga að okkur?“ er haft eftir skip­verj­unum í til­kynn­ing­unni og er þar vísað til þess að umdæm­is­læknir sótt­varna hafði lýst yfir að hann vildi fá skip­verja í sýna­töku á þriðja degi veiði­ferðar. Segja skip­verjarnir það á skjön við það sem kom fram í Kast­ljósi í gær þar sem sótt­varna­læknir sagði að ekk­ert hafi bent til þess að um hópsmit væri að ræða.

Skip­verjarnir lýstu því að allt frá öðrum degi veiði­ferðar hafi skip­stjór­inn skipað mönnum í ein­angrun meðan þeir voru sem veik­astir. Meðan einn skip­verj­inn var í ein­angrun þurfti klefa­fé­lagi hans að sofa í sjón­varps­klefa án aðgangs að per­sónu­legum munum sínum, s.s. hreinum fatn­aði.

Vægast sagt skelfilegar aðstæður

„Aðstæður skip­verja voru því væg­ast sagt skelfi­legar þar sem þeir veikt­ust einn af öðrum og höfðu ekki aðrar bjargir en verkja­lyf til að halda sér gang­andi þar sem skipið var við veiðar og vinnslan í gangi,“ segir í til­kynn­ing­unni. Síðar kom í ljós að lyfja­birgðir voru ekki nægar og þurfti þá að hand­velja hverjir væru veik­astir og þyrftu mest á verkja­lyfjum að halda.

„Skeyt­ing­ar­leysi útgerðar og/eða skip­stjóra gagn­vart heilsu og öryggi skip­verja í umræddri veiði­ferð virð­ist því hafa verið algert,“ segir í til­kynn­ingu Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga. Skip­verjum hafi verið bannað að ræða veik­indin út á við en máttu ræða við fjöl­skyldur sínar. Á þriðju viku sjó­ferðar var sett á algert bann við að minn­ast á veik­indin á sam­fé­lags­miðlum eða við frétta­menn. „Þannig var skip­verjum haldið nauð­ugum og veikum við vinnu út á sjó, í brælu og lélegu fiskiríi á meðan Covid-sýk­ing herj­aði á áhöfn­ina.“

Næstu skref Verk Vest er að leita sam­starfs við önnur stétt­ar­fé­lög sjó­manna um borð í Júlíusi Geir­munds­syni. Telur félagið ljóst að brotið hafi verið alvar­lega gegn skip­verjum.

Hröð viðbrögð um borð í Valdimari GK

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hóp­sýk­ing kemur upp um borð í skipi við Íslands­strendur. Í lok sept­em­ber fór áhöfn línu­skips­ins Valdi­mars GK að veikj­ast og fljót­lega var sú ákvörðun tekin að snúa til hafnar. Haft var sam­band við emb­ætti land­læknis og almanna­varnir þegar í stað og verk­ferlum sem útgerðin hafði sett sér í vor var fylgt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár