Uppsagnarstyrkirnir áttu að kosta 27 milljarða en enduðu í rúmum tólf milljörðum

Búið er að afgreiða allar umsóknir vegna styrkja sem rík­is­sjóður greiddi sumum fyr­ir­tækjum fyrir að segja upp fólki. Heild­ar­um­fang þeirra reynd­ist 45 pró­sent af því sem kostn­að­ar­mat áætl­aði. Icelandair fékk lang­mest.

Ríkisstjórnin kynnti ýmsar aðgerðir til að mæta afleiðingum kórónuveirufaraldursins í fyrra.
Rík­is­stjórnin kynnti ýmsar aðgerðir til að mæta afleið­ingum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Í júní síð­ast­liðnum höfðu borist 1.566 umsóknir um styrki til að greiða hluta launa á upp­sagn­ar­fresti til rík­is­sjóðs. Allar umsókn­irnar hafa þegar verið afgreiddar en frestur til að sækja um styrk­ina er fyrir nokkru runn­inn út. Alls greiddi rík­is­sjóður um 12,2 millj­arða króna í upp­sagn­ar­styrki frá því að úrræðið var kynnt til leiks í fyrra­vor og þar til að það rann sitt skeið.

Úrræðið var kynnt af rík­is­stjórn­inni 28. apríl í fyrra. Til­gang­ur­inn átti að vera að veita ákveðnum fyr­ir­tækjum, sem hefðu orðið fyrir miklu tekju­tapi, styrki til að eyða ráðn­ing­ar­sam­böndum við starfs­fólk sitt. Þegar áformin voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyrir til að gera þau að lögum, ekk­ert kostn­að­ar­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp strax í kjöl­farið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist nokkrum dögum síðar.

Frumvarp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð 2020 og kostn­að­ar­mat kynnt sam­hliða. Það gerði ráð fyrir því að rík­is­sjóður myndi greiða fyr­ir­tækjum sem upp­fylltu sett skil­yrði alls 27 millj­arða króna í styrki til að hjálpa þeim að segja upp fólki. Yfirlýst mark­mið var að draga úr fjölda­gjald­þrotum og tryggja rétt­indi launa­fólks, en styrkirnir stóðu þeim fyr­ir­tækjum sem höfðu orðið fyrir að minnsta kosti 75 pró­sent tekju­tapi til boða.. Hlið­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er varin.

Félög tengd Icelandair fengu næstum 40 prósent

Lögin skyld­uðu opin­bera aðila til að birta yfir­lit yfir þau fyr­ir­tæki sem fengu upp­sagn­ar­styrki. Sá listi var birtur á heima­síðu Skatts­ins. Hann var síð­ast upp­færður í febr­úar og nær því ekki yfir allar greiðslur sem greiddar voru út. Þorri þeirra var þó greiddur úr í fyrra – heild­ar­um­fang útgreiddra styrkja fór yfir tíu millj­arða króna í októ­ber 2020 og þeir skriðu yfir 12 millj­arða í febr­úar 2021 – þannig að listi Skatts­ins veitir ágætt yfir­lit yfir stærstu þiggj­endur styrkj­anna.

[adspot]Alls fengur fyr­ir­tæki tengd Icelandair Group 4,7 millj­arða króna í styrki, eða um 39 pró­sent allra veittra styrkja. Þar mun­aði mestu um Icelandair Group sjálft sem fékk 3,7 millj­arða króna til að segja upp alls 1.918 manns. Sá aðili sem fékk næst hæstu upp­hæð­ina í upp­sagn­ar­styrki er Flug­leiða­hótel, sem eru í 25 pró­sent eigu Icelandair Group. Þangað hafa farið um 627 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði. Iceland Travel, ferða­skrif­stofa í eigu Icelandair Group fékk 151 milljón króna í upp­sagn­ar­styrki, Bíla­leiga Flug­leiða fékk 139 millj­ónir króna og Flug­fé­lag Íslands, sem er var rennt saman við Icelandair Group fyrr á árinu, fékk 83 millj­ónir króna.

Bláa lónið fékk 603 milljón króna

Bláa Lónið fékk þriðju hæstu ein­stöku upp­sagn­ar­styrk­ina, alls um 603 milljón króna vegna upp­sagna 550 manns. Fjórða fyr­ir­tækið sem fékk upp­sagn­ar­styrki yfir hálfri milljón króna var Íslands­hótel hf., sem fékk alls 593 millj­ónir króna fyrir að segja upp alls 468 starfs­mönn­um.

Hótel eru raunar fyr­ir­ferða­mikil á list­an­um. Centerhotels fékk 266 millj­ónir króna, Kea­hótel 203 millj­ónir króna, Foss­hótel 155 millj­ónir króna og Hótel Saga 114 millj­ónir króna.

Rútu­fyr­ir­tækið Allra­handa, sem rekur vöru­merkin Grey Line og Airport Express, fékk 191 millj­ónir króna og tvö félög tengd Kynn­is­ferð­um, sem reka vöru­merkið Reykja­vik Excursions, fengu sam­tals um 193 millj­ónir króna.

Önnur fyr­ir­tæki á list­anum sem fengu yfir 100 millj­ónir króna eru öll tengd ferða­þjón­ustu með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár