Reykjavíkurborg búin að stefna ríkinu og vill 8,7 milljarða króna úr ríkissjóði

Deilur Reykja­vík­ur­borgar við íslenska ríkið um millj­arða­fram­lög úr jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga eru á leið fyrir dóm­stóla. Borg­ar­stjóri hefur boðið að sátta­við­ræður geti haldið áfram sam­hliða mála­rekstri.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg hefur stefnt íslenska rík­inu og krefst þess að það greiði sér 8,7 millj­arða króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta. Málið verður þing­fest í lok mán­aðar.

Ástæða kröf­unnar er að borgin telur sig hafa verið úti­lok­aða með ólög­mætum hætti frá því að eiga mögu­leika á að fá ákveðin fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga. Um er að ræða tekju­jöfn­un­ar­fram­lög, jöfn­un­ar­fram­lög vegna rekst­urs grunn­skóla og fram­lög til nýbúa­fræðslu. Deil­urnar snúa að uppi­stöðu að reglum sem úti­loka borg­ina frá fram­lögum í skóla­mál­um, t.d. vegna barna af erlendum upp­runa, en þau eru lang­flest í Reykja­vík (43,4 pró­sent erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi búa í Reykja­vík­).

Sam­an­lagt metur borgin þá upp­hæð sem hún inni á 8,7 millj­arða króna auk vaxta vegna tíma­bils­ins 2015-2019.

Bréf sent í liðinni viku

Reykja­vík sendi rík­is­lög­manni bréf 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og krafð­ist greiðslu á upp­hæð­inni. Ef hún feng­ist ekki greidd myndi hún höfða mál.

[adspot]Íslenska ríkið hefur neitað að greiða upp­hæð­ina og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, gagn­rýndi Reykja­vík­ur­borg harð­lega fyrir að setja kröf­una fram og sagt hana frá­leita.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans áttu sér stað þreif­ingar um sættir eða sátta­við­ræður fyrir síð­ustu jól. Þær skil­uðu ekki sam­komu­lagi.

[links]Þann 30. des­em­ber 2020 var íslenska rík­inu því birt stefna í mál­inu og að öllu óbreyttu verður málið þing­fest fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 28. jan­úar næst­kom­andi.

Í bréfi sem Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, lagði fyrir borg­ar­ráð á fimmtu­dag, sem stílað er á Sigurð Inga og er dag­sett 5. jan­úar, er því lýst yfir að Reykja­vík­ur­borg sé viljug til við­ræðna við íslenska ríkið um hugs­an­legar sættir í mál­inu þrátt fyrir að búið sé að stefna. „Reykja­vík­ur­borg hefur fulla trú á að slíkar við­ræður geti skilað árangri og von­ast til að ríkið nálgist málið af sama hug.“

Verði af þeim við­ræðum munu borg­ar­rit­ari og borg­ar­lög­maður ann­ast þær fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár