Segir Samherjamálið ekki vera persónulega hasarsögu

Fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri segir fjöl­miðla vilja per­sónu­gera dóms­málin milli Samherja og Seðla­bank­ans í við­tali í jóla­blaði Vís­bend­ingar.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Már Guð­munds­son fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóri segir fjöl­miðla hafa til­hneig­ingu til að færa Sam­herj­a­málin svoköll­uðu í bún­ing per­sónu­legs hasars, þótt það sé ekki raunin. Hann úti­lokar ekki að hann muni tjá sig um gjald­eyr­is­rann­sóknir Seðla­bank­ans þegar end­an­leg nið­ur­staða liggur fyrir í þessum málum.

Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali við Má í jóla­blaði Vís­bend­ingar, sem hægt er að lesa hér. Þar seg­ist hann lítið geta tjáð sig um dóms­málin sem snúa að eft­ir­liti Seðla­bank­ans með gjald­eyr­is­brota­málum í hans tíð sem seðla­banka­stjóri, þar sem það liggi ekki enn fyrir hvort þeim sé lokið eða ekki.

[adspot]

„Það er auð­vitað ákveðin til­hneig­ing hjá fjöl­miðlum að færa mál sem þessi í bún­ing ein­hvers per­sónu­legs hasars en þannig er það ekki í raun,“ bætir Már við. „Ég er ekki máls­að­ili í þessum málum og því ekki við­eig­andi að ég sé að tjá mig um þau eins og svo væri. Síðar meir kemur til greina að ég tjái mig á ný með almennum hætti um rann­sóknir Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­brota­málum meðan ég var í emb­ætti en eðli­legt er að fyrst liggi ljóst fyrir hvort end­an­leg nið­ur­staða sé komin í þessi tvö til­teknu mál.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár