Bankastjórar bjartsýnir og benda á mikilvægi efnahagsaðgerða

Banka­stjórar Íslands­banka, Lands­bank­ans og Arion banka segja efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar og við­brögð bank­anna hafa skipt miklu máli á árinu í jóla­blaði Vís­bend­ingar.

Lilja Björk Einarsdóttir, Birna Einarsdóttir og Benedikt Gíslason
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, Birna Ein­ars­dóttir og Benedikt Gíslason Mynd: Samsett

Búist er við bjart­ari tímum fram undan í íslensku efna­hags­lífi, en mik­il­vægt er að fjár­mála­kerfið og hið opin­bera bregð­ist rétt við og styðji við þau fyr­ir­tæki sem verða arð­væn­leg að far­sótt­inni lok­inni. Þessi fyr­ir­tæki gætu meðal ann­ars verið í ferða­þjón­ust­unni, en mögu­legt er að Ísland verði fljótt aftur ákjós­an­legur staður fyrir ferða­menn sem vilja lág­marka smit­hættu í náinni fram­tíð.

Þetta er meðal þess sem banka­stjórar Íslands­banka, Lands­bank­ans og Arion banka nefna í greinum sem þeir skrif­uðu í jóla­blaði Vís­bend­ingar, sem hægt er að lesa í heild sinni með því að smella hér.

Birna er bjartsýn

Samkvæmt Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, hefur fram­gangur yfir­stand­andi kreppu verið í stórum dráttum í sam­ræmi við þá mynd sem ýmsir drógu upp í vor og telur hún ljóst að vet­ur­inn verði harður í efna­hags­legu til­liti.

Hins vegar er hún bjart­sýn til lengri tíma og segir að flestar for­sendur séu til staðar fyrir mynd­ar­legri við­spyrnu á seinni hluta næsta árs. „Starfs­kraftar, fast­eignir, far­ar­tæki og aðrir inn­viðir ferða­þjón­ust­unnar eru vel í stakk búnir til að taka við mynd­ar­legri fjölgun ferða­manna,“ segir Birna í grein­inni.

Einnig bætir hún við að efna­hags­reikn­ingar heim­ila, fyr­ir­tækja og hins opin­bera séu enn sterkir á heild­ina litið, sem er önnur þróun en í síð­ustu kreppu. Birna er líka bjart­sýn á að Ísland verði væn­legur kostur fyrir ferða­menn þar sem ímynd lands­ins með sína hreinu nátt­úru og víð­erni ætti að lokka þá sem vilja fá til­breyt­ingu eftir heilt ár af inni­lokun en vilja á sama tíma fara að gát hvað varðar smit­hættu.

Lilja Björk bendir á fólkið á bak við fyrirtækin

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, er einnig bjart­sýn fyrir næsta ár, en í grein sinni fer hún yfir þær aðgerðir sem bank­inn hefur ráð­ist í til að fólk og fyr­ir­tæki geti betur brugð­ist við yfir­stand­andi nið­ur­sveiflu. Hún bætir við að fyr­ir­tæki séu ein­hvers konar óper­sónu­legar stofn­anir, að baki þeim sé jafnan fólk sem sé til búið að leggja á sig miklar fórnir. Því til stuðn­ings segir Lilja Björk að 95 pró­sent fyr­ir­tækja sem eru í við­skiptum við Lands­bank­ann telj­ast vera lítil eða pínu­lítil.

„Það er mik­il­vægt að hlusta vel á fólkið sem rekur og á þessi fyr­ir­tæki, stór sem smá. Þetta fólk er ómissandi við að halda efna­hags­líf­inu gang­andi. Það ræður aðra í vinnu, greiðir laun, skatta og gjöld og býr til verð­mæti úr þeirri þekk­ingu og reynslu sem það hefur aflað sér,“ segir Lilja í grein­inni sinni.

Benedikt vill kröftuga viðspyrnu

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, minn­ist hins vegar á mik­il­vægi aðgerða hins opin­bera í efna­hags­við­spyrn­unni á næstu mán­uðum. Að hans mati skiptir mestu máli að haldið verði áfram á þeirri braut sem íslensk stjórn­völd eru á núna, með áfram­hald­andi stuðn­ingi til þeirra sem orðið hafa fyrir mestum efna­hags­legum áhrifum veirunnar.

„Afar mik­il­vægt er að stjórn­völd dragi ekki að sér hendur of snemma og að allir leggi sitt af mörkum: íslenska ríkið, Seðla­bank­inn, fjár­mála­fyr­ir­tæki, líf­eyr­is­sjóðir og aðrir fjár­festar,“ segir hann og varar við áfram­hald­andi sam­drátt og atvinnu­leysi verði efna­hags­bat­inn of hægur.

Að mati Bene­dikts felur kröftug við­spyrna efna­hags­lífs­ins meðal ann­ars í sér öfl­uga hvata til að örva fjár­fest­ingu innan einka­geirans og hvata sem stuðla að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu þeirra fyr­ir­tækja sem hafa farið hvað verst út úr nið­ur­sveifl­unni. Einnig vill hann að stutt verði við fyr­ir­tæki sem lík­leg­ust eru til að vera hluti af upp­bygg­ing­unni, ekki síst þeim sem eru lítil og með­al­stór.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár