Segir hagfræðinga ekki geta gefið einhlítt svar um aðild Íslands að ESB

Fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri segir umræður og ákvarð­anir um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu ná langt út fyrir svið hag­fræð­innar. Samkvæmt honum hafa stjórn­mála­menn til­hneig­ingu til að ætl­ast til þess að hag­fræð­ingar reikni þá inn í lausn­ina.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Már Guð­munds­son fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri segir stjórn­mála­menn ekki ein­ungis geta vísað í útreikn­inga hag­fræð­inga sem hina einu réttu nið­ur­stöðu um ákvarð­anir eins og aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Samkvæmt honum er ekki hægt að ætl­ast til þess að hag­fræð­ingar „reikni þá inni í lausn­ina.“

Þetta segir Már í ítar­legu við­tali í jóla­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út til áskrif­enda í gær. Samkæmt honum væri mynt­banda­lag alvöru val­kostur fyrir Ísland. Hins vegar lægi ekki endi­lega fyrir hvort sá kostur væri fýsi­legri við núver­andi aðstæður en sá sem þjóðin býr við um þessar mundir, þar sem eini raun­hæfi kost­ur­inn á mynt­banda­lagi væri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og að umræða og ákvarð­anir fyrir það færu langt út fyrir svið hag­fræð­innar.

[adspot]

„Mér finnst eins og ýmsir, bæði stjórn­mála­menn og aðrir, hafi til­hneig­ingu til að ætl­ast til þess að hag­fræð­ingar reikni þá inn í lausn­ina. En það er ekki þannig og það verður ekki þannig,“ bæti Már við. „Ef mál hafa mjög víð­tæk þjóð­fé­lags­á­hrif og póli­tískar hliðar, þá verða stjórn­mála­menn­irnir að meta alla kosti og galla slíkra mála, taka þá for­ystu sem þeir vilja taka á hverju sviði og þora að standa með því. Þeir geta þá ekki ein­ungis vísað í að það sé búið að reikna þetta út og það sé það eina rétta. Því að þannig er það ekki.“

Jólablað Vís­bend­ingar verður aðgengi­legt öllum í gegnum heima­síðu Kjarnans í næstu viku. Ásamt við­tal­inu við Má eru þar ýmsar greinar frá sér­fræð­ingum úr öllum áttum, meðal ann­ars frá Gylfa Zoega hag­fræði­pró­fessor í HÍ, Grétu Maríu Grét­ars­dóttur fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Krón­unnar og Gunnari Þór Bjarna­syni sagn­fræð­ingi.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár