Enginn sveiflujöfnunarauki næstu þrjá mánuði

Eig­in­fjár­kröfur hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum verða ekki hækk­aðar í nafni sveiflu­jöfn­unar næsta árs­fjórð­ung­inn.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans hefur ákveðið halda svoköll­uðum sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki í núlli næstu þrjá mán­uði, en mun end­ur­meta stöð­una árs­fjórð­ungs­lega. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar sem birt var á vef Seðla­bank­ans í morgun.

Sveiflu­jöfn­un­ar­auki Seðla­bank­ans eru við­bót­ar­kröfur á eigið fé fjár­mála­fyr­ir­tækja umfram lög­bundnar eig­in­fjár­kröfur til að sporna gegn miklum sveiflum í fjár­mála­kerf­inu. Ef mikil hætta er á þenslu getur Seðla­bank­inn hækkað auk­ann til að koma í veg fyrir of mik­inn útlána­vöxt, en ef hætta er á sam­drætti getur bank­inn lækkað auk­ann til að efla útlána­getu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna.

Engin sveiflutengd kerfisáhætta nú

Samkvæmt til­kynn­ing­unni metur nefndin það svo að sveiflu­tengd kerf­is­á­hætta hafi ekki auk­ist að neinu marki síð­ustu miss­eri. Lækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans niður í núll, auk ann­arra aðgerða til að auka laust fé í umferð hafi hins vegar reynst vel þar sem þau hafi auð­veldað fjár­mála­fyr­ir­tækjum að vinna með lán­tak­endum í greiðslu­erf­ið­leikum og sam­tímis við­halda útlána­getu.

Lágir vextir skapa nýjar áskoranir

Þó bætir nefndin við að lág­vaxtaum­hverfið sem hefur mynd­ast hér á landi skapi nýjar áskor­anir á fjár­mála­mark­aði.

„Sér­stak­lega á þetta við um líf­eyr­is­sjóði sem eru ráð­andi þátt­tak­endur á inn­lendum fjár­mála­mark­aði og kerf­is­lega mik­il­vægir. Mik­il­vægt er því að við stefnu­mótun líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins sem nú stendur fyrir dyrum verði tekið mið af áhrifum þeirra á fjár­mála­stöð­ug­leika,“ stendur einnig í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár