Samfélagslega ábyrg félög skila betri ávöxtun í Evrópu

Evrópsk hluta­fé­lög sem taka mið af umhverfis- og félags­legum þáttum og stjórn­ar­háttum fyr­ir­tækja skila betri ávöxtun heldur en önnur sam­bæri­leg félög í Evrópu, sam­kvæmt grein í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis hf.
Krist­björg M. Krist­ins­dóttir, fjár­mála­stjóri Stefnis hf. Mynd: Aðsend

Ávöxtun sam­fé­lags­lega ábyrgra hluta­fé­laga í Evrópu er meiri en ávöxtun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í álf­unni. Að mati Krist­bjargar M. Krist­ins­dóttur fjár­mála­stjóra Stefnis hf. gæti mun­ur­inn falist í því að minni áhætta sé fólgin í fjár­fest­ingum slíkra félaga.

Í grein Krist­bjargar í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar fer hún yfir ábyrgar fjár­fest­ingar, sem er regn­hlíf­ar­skil­grein­ing yfir marga flokka af aðferða­fræði sem allir stuðla að jákvæðum breyt­ingum með því að draga úr áhættu og skila sjálf­bærri ávöxtun til langs tíma. Mikið sé horft til þess að fjár­fest­ing­arnar taki mið af umhverfis- og félags­legum þáttum og stjórn­ar­háttum félaga (UFS).

Samkvæmt Krist­björgu er margt sem ýtir undir að ábyrgum fjár­fest­ing­ar­kostum ætti að vegna betur en öðrum, þar sem minni inn­bygð áhætta sé í rekstri félaga sem fá jákvæða ein­kunn í UFS-málum. Á hinn bóg­inn bera fyr­ir­tæki sem ekki eiga sér móralskan átta­vita meiri áhættu, og ætti sú áhætta að vera verð­lögð á skil­virkum mark­aði.

Máli sínu til stuðn­ings vísar Krist­björg í MSCI-hluta­bréfa­vísi­tölur í Banda­ríkj­unum og Evrópu. Ávöxtun vísi­töl­unnar MSCI Europe ESG Leaders, sem inni­heldur fyr­ir­tæki sem stunda ábyrgar fjár­fest­ingar, er hærri en ávöxtun vísi­töl­unnar MSCI Europe. Þó bendir Krist­björg á að lít­ill munur sé á heims­vísi­tölu MSCI og vísi­töl­unnar MSCI World ESG Leaders, sem inni­heldur ábyrga fjár­fest­inga­kosti um allan heim.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár