Segir lágvaxtaumhverfið hafa ýtt undir áhættusækni

Sér­fræð­ingur hjá Kviku eigna­stýr­ingu segir lækk­andi vaxta­stig og vænt­ingar um bólu­efni vera meðal ástæðna þess að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hefur hækkað það sem af er ári í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Húsnæði Kauphallarinnar
Húsnæði Kaup­hall­ar­innar Mynd: Nasdaq Iceland

Lágir vextir og jákvæðar fréttir um bólu­efni hafa leitt til hækk­unar verðs á hluta­bréfum á þessu ári. Auk þess hefur auk­inn áhugi almenn­ings á hluta­bréfa­mark­að­inn, yfir­töku­á­hrif og sam­runar haft mikil áhrif á mark­að­inn. Þetta skrifar Eggert Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Kviku egina­stýr­ingu hf., í grein sinni sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Skuldsettir fjárfestar hurfu

Í grein­inni fer Eggert yfir þróun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins á þessu ári, en hann hefur sveifl­ast nokkuð frá því að kór­ónu­veiran breiddi hratt úr sér í vor. Í kringum fyrstu bylgj­una í mars lækk­aði úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar um tæpan fimmt­ung, en sam­kvæmt Eggerti breytti sú lækkun sam­setn­ingu fjár­festa á hluta­bréfa­mark­aðnum til muna. með lækk­andi verði hafi æ fleiri skuld­settir fjár­festar selt út hlut sinn, en á kaup­hlið­inni voru óskuld­settir lang­tíma­fjár­festar, og þá sér í lagi líf­eyr­is­sjóðir, sem juku við hlut sinn á mark­aðnum.

Lægri vextir ýta undir áhættusækni

Eggert bætir einnig við að vaxta­lækk­an­irnar sem Seðla­bank­inn réðst í í vor hafi haft mikil áhrif á hluta­bréfa­mark­að­inn. Með lægri vöxtum bötn­uðu rekstr­ar­horfur fyr­ir­tækja þar sem fjár­magns­kostn­aður þeirra minnk­aði, en sam­kvæmt Eggerti er líka ljóst að lækk­unin ýtti undir áhættu­sækni fjár­festa, þar sem ávöxt­unin á öðrum fjár­fest­inga­val­kostum hafði lækkað.

„Lækkun lang­tíma­vaxta leiðir til lægri ávöxt­un­ar­kröfu sem fjár­festar gera til hluta­bréfa og eykur virði frjáls sjóð­streymis. Þá er sparn­aður heim­ila í sögu­legu hámarki og ljóst að yfir 3% nei­kvæðir raun­vextir bíta hressi­lega í. Er því ekki nema von að inn­láns­eig­and­inn leiti í áhættu­sam­ari fjár­fest­ing­ar­kosti sem hann telur að skili betri ávöxtun,“ skrifar Eggert í grein­inni sinni.

Útboð Icelandair og vonir um bóluefni hækka verð

Samkvæmt Eggerti olli hluta­fjár­út­boð Icelandair Group í sept­em­ber straum­hvörfum hvað varðar beina þátt­töku almenn­ings á hluta­bréfa­mark­aði. Hlut­höfum félags­ins fjölg­aði úr rúmum 3 þús­und í 11 þús­und, en annar eins fjöldi hefur ekki sést hjá íslensku hluta­fé­lagi eftir hrunið.

Til við­bótar við fjölda nýrra fjár­festa virð­ist sem bjart­sýni þeirra hafi auk­ist í kjöl­far jákvæðra frétta um bólu­efni gegn COVID-19 á síð­ustu vikum. Hluta­bréf í Icelandair hækk­uðu til að mynda um nær helm­ing á nokkrum dögum eftir að fyrstu fréttir þess efnis bár­ust, en fimm félög í Kaup­höll­inni hækk­uðu um meira en 10 pró­sent í októ­ber.

Þrýstingur líklegur í framtíðinni

Eggert nefnir einnig að ýmis­legt bendi til þess að jákvæður þrýst­ingur verði á hluta­bréfa­mark­aðnum á næst­unni, til dæmis sé lík­legt að vextir muni hald­ast lágir í ein­hvern tíma, auk þess sem ólík­legt er að líf­eyr­is­sjóðir farið með stórar fjár­hæðir út úr landi, þar sem hlut­fall erlendra eigna þeirra er komið nær hámarki.

Einnig segir Eggert að ekki sé ólík­legt að félögum geti fækkað á inn­lendum mark­aði, í kjöl­far sam­runa og afskrán­inga. Kjarninn greindi nýlega frá fyr­ir­hug­uðum sam­runa Kviku og T M, en fast­eigna­fé­lagið Heima­vellir voru einnig teknir af mark­aði í ár, auk þess sem hópur fjár­festa hefur gert yfir­tökutil­boð í Skelj­ungi. Samkvæmt Eggerti hefur sá hópur í hyggju að taka félagið af mark­aði. Þessir þættir, að mati Eggerts, gætu hæg­lega leitt til eigna­bólu og segir hann því þetta geta verið ákjós­an­legar aðstæður fyrir önnur fyr­ir­tæki að skrá sig á markað, til að mynda Lands­bank­ann, sem er nú í eigu rík­is­ins.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár