Áfram tap á fjölmiðla- og farsímarekstri hjá Sýn og hlutabréf í félaginu féllu skarpt

Sýn hefur tapað 402 millj­ónum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Áform eru uppi um að selja far­síma­inn­viði félags­ins fyrir árs­lok fyrir sex millj­arða króna, og leigja þá svo aftur.

Höfuðstöðvar Sýnar við Suðurlandsbraut.
Höf­uð­stöðvar Sýnar við Suð­ur­lands­braut. Mynd: Sýn

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið Sýn hagn­að­ist um átta millj­ónir króna á þriðja árs­fjórð­ungi en hefur tapað alls 402 millj­ónum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020. Hagnaður félags­ins á sama tíma í fyrra var 384 millj­ónir króna, en helg­að­ist að uppi­stöðu af ein­skiptis­tekjum vegna sölu á á fær­eyska félag­inu Hey upp á 817 millj­ónir króna í byrjun árs í fyrra. Sýn tap­aði 1,7 ,millj­arði króna á árinu 2019 og hefur því tapað um 2,1 millj­arði króna frá byrjun síð­ast árs.

Þetta má lesa út úr árs­hluta­reikn­ingi Sýnar vegna rekst­urs félags­ins frá byrjun árs og út sept­em­ber­mánuð, sem birtur var í Kauphöll Íslands í gær.

Heild­ar­tekjur Sýnar vaxa milli ára. Þær voru 15,3 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins en höfðu verið 14,9 millj­arðar króna á sama tíma­bili 2019. Tekju­hækk­unin er að öllu leyti til­komin vegna þess að tekjur End­or, upp­­lýs­inga­­fyr­ir­tækis sem stýrir ofur­­tölvum sem Sýn keypti í fyrra, komu inn í sam­stæðu­reikn­ing félags­ins í ár. Tekjur vegna hýs­ing­ar- og rekstr­ar­lausna voru því tæp­lega 1,8 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 en þær voru engar í fyrra. 

Tekjur vegna fjöl­miðla­rekstur Sýnar hafa hins vegar dreg­ist mest saman á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, eða um 565 millj­ónir króna miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þær voru rúm­lega 5,7 millj­arðar króna það sem af er ári.

Fjölmiðlatekjurnar halda áfram að lækka

Sýn keypti ýmsa fjöl­miðla af félag­inu 365 miðlum í lok árs­ins 2017. Um er að ræða ljós­vaka­miðla á borð við Stöð 2, Bylgj­una og tengdar útvarps­stöðvar og frétta­vef­inn Vísi. Kaup­verðið var 8,2 millj­arðar króna.

[adspot]Á milli áranna 2018 og 2019 lækk­uðu tekjur Sýnar af umræddum fjöl­miðlum um 446 millj­ónir króna og í upp­hafi árs 2020 var við­skipta­vild sem var til­komin vegna fjöl­miðl­anna sem voru keyptir lækkuð um 2,5 millj­arða króna.

Í fjár­festa­kynn­ingu vegna nýjasta upp­gjörs Sýnar kemur fram aug­lýs­inga­tekjur fjöl­miðla Sýnar hafi dreg­ist saman um 15 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í sam­an­burði við sama tíma­bil í fyrra, og að það sé meg­in­á­stæða þess að fjöl­miðla­tekjur hafi haldið áfram að lækka. Það er sagt að stórum hluta vegna áhrifa af yfir­stand­andi heims­far­aldri. Tekjur af sjón­varps­dreif­ingu hafi hins vegar auk­ist og jákvæð þróun er sögð í áskrift­ar­tekjum milli árs­fjórð­unga eftir að þær dróg­ust saman á fyrri hluta árs.

Annað sem verður að telj­ast jákvætt fyrir fjöl­miðla­rekstur Sýnar er að frétta­vefur sam­stæð­unnar, Vísir.is, hefur verið mest lesni vefur lands­ins þrjár vikur í röð, og í fimm af síð­ustu sjö vikum. Þótt það hafi gerst endrum og sinnum að Vísir hafi farið yfir mbl.is, frétta­vef Árvakurs, á lista Gallup yfir mest lesnu vef­ina þá hefur það aldrei áður gerst svo oft á tæp­lega tveggja mán­aða tíma­bili. Vísir er enda far­inn að aug­lýsa sig sem mest lesna vef lands­ins.

Áskoranir á auglýsingamarkaði

Far­síma­tekjur Sýnar drag­ast einnig mark­tækt saman, eða alls um 275 millj­ónir króna á árinu. Sá sam­dráttur er að mestu rak­inn til þess að reiki­tekjur hafa lækkað um 60 pró­sent. Það er bein afleið­ing af fækkun ferða­manna til lands­ins og sam­drætti í ferðum Íslend­inga erlendis vegna COVID-19.

[links]Tekjur vegna inter­net-hluta sam­stæð­unnar hafa líka lækkað um 187 millj­ónir króna það sem af er ári. Þá þróun má rekja til fækkun not­enda en sam­kvæmt upp­gjörstil­kynn­ingu hefur verið jákvæð þróun þar síð­ustu vikur og stjórn­endur vænta vaxtar á síð­asta árs­fjórð­ungi árs­ins.

Heiðar Guð­jóns­son, sem hefur verið for­stjóri frá því í febr­úar 2019, segir í upp­gjörstil­kynn­ing­unni að áfram séu áskor­anir á aug­lýs­inga­mark­aði og að reiki­tekjur hafi nær alfarið fallið út í upp­gjör­inu. „Á móti kemur að aðrir liðir eru á upp­leið. Ánægja við­skipta­vina er að batna hratt, sem skiptir mestu máli til lengri tíma litið, og við sjáum fram á fjölgun við­skipta­vina.“

Fjár­festar hafa ekki reynst jafn jákvæðir gagn­vart upp­gjör­inu. Verð á bréfum Sýnar hefur fallið skarpt í dag, eða um tæp 13 pró­sent. Mark­aðsvirði Sýnar er um 9,2 millj­arðar króna eins og stendur.

Ætla að selja innviði fyrir sex milljarða

Sýn greindi frá því í októ­ber að félagið væri langt komið með að ná sam­komu­lagi við erlenda fjár­festa um helstu skil­mála í sölu og 20 ára end­ur­leigu á óvirkum far­síma­innviðum félags­ins.

Sölu­hagn­aður Sýnar gæti numið yfir sex millj­örðum króna, gangi við­skiptin eft­ir.

Í árs­hluta­upp­gjör­inu segir að einka­við­ræður hafi veirð und­ir­rit­aðar 23. októ­ber og að til standi að klára samn­inga á þessu ári. Ráðgert sé að selja selja ríf­lega 200 af um 600 senda­stöðum félags­ins til sér­staks eign­ar­halds­fé­lags sem stofnað verði utan um inn­við­ina. Mis­mun­andi útfærsla sé á því í Evrópu, þar sem sam­bæri­legar sölur hafi átt sér stað, hvort að öryggis-, hita- eða raf­magns­skerfi fylgi með þegar stofnað er slíkt eign­ar­halds­fé­lag í þeim eina til­gangi að færa eign­irnar þangað inn og selja svo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár