Sjónvarpstekjur Símans hafa aukist um nær allan hagnað félagsins á árinu 2020

Færri ferða­menn skila minni tekjum af reiki­þjón­ustu. Tekjur vegna sjón­varps­þjón­ustu hafa hins vegar vaxið um 14 pró­sent milli ára og starfs­mönnum fækkað um 50 frá ára­mótum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju upp­gjöri Símans.

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Síminn hagn­að­ist um tæp­lega 1,9 millj­arða króna á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins 2020. Það er 19,4 pró­sent minni hagn­aður en var af rekstr­inum á sama tíma­bili í fyrra þegar hann var rúm­lega 2,3 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri félags­ins.

Tekjur Símans af sjón­varps­þjón­ustu juk­ust um 13,8 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 miðað við sama tíma­bil í fyrra. Alls voru tekj­urnar vegna sjón­varps­þjón­ustu 4,6 millj­arðar króna á tíma­bil­inu eða 560 millj­ónum krónum hærri en á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum síð­asta árs. Aug­lýs­inga­tekjur Símans vaxið um 22 pró­sent milli ára, sem verður að telj­ast ágætt í ljósi þess að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur valdið umtals­verðum tekju­sam­drætti í aug­lýs­inga­sölu flestra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja það sem af er árinu 2020.

Þá hafa tekjur af Premium-þjón­ustu Símans auk­ist um 18 pró­sent frá því sem þær voru á þriðja árs­fjórð­ungi í fyrra. Í kynn­ingu á upp­gjör­inu kemur fram að seinkun á efni frá erlendum birgjum hafi gert störf dag­skrár­deildar félags­ins „flókn­ari“ en að línu­legt áhorf hafi verið í hæstu hæðum „þökk sé Helga Björns og reið­mönnum vind­anna“.

[adspot]Alls hafa tekjur Símans auk­ist um 572 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 miðað við sama tíma­bil í fyrra. Það þýðir að nær öll tekju­aukn­ingin er til­komin vegna sjón­varps­þjón­ust­unnar. Í heild voru tekj­urnar 21,7 millj­arðar króna á tíma­bil­inu. 

Stöðugildum fækkað um 50

Aðrir starfs­þættir hafa líka þó líka gengið vel og skilað hagn­aði. Þar má nefna að tekjur vegna upp­lýs­inga­tækni hafa auk­ist um 326 millj­ónir króna milli ára, vöru­sala hefur skilað 160 millj­ónum krónum meira í kass­ann (þar af 111 millj­ónum króna á þriðja árs­fjórð­ungi) og tekjur vegna gagna­flutn­ings­þjón­ustu hafa vaxið um 134 millj­ónir króna.

Á móti hafa tekjur vegna far­síma dreg­ist saman um 198 millj­ónir króna og tal­síma um 198 millj­ónir króna. Sam­dráttur í far­síma­tekjum er að uppi­stöðu vegna þess að reiki­tekjur hafa dreg­ist saman sam­hliða því að ferða­tak­mark­anir hafa gert það að verkum að ferða­menn koma ekki lengur til lands­ins svo nokkru nemi. Alls telur Síminn að nei­kvæð áhrif af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum vegna sam­dráttar í fjölda ferða­manna hafi minnkað tekjur um 300 millj­ónir króna milli ára.

Sá starfs­þáttur sem skil­greindur er sem „annað“ hefur líka verið drjúgur í sam­drætti, en slíkar óskil­greindar tekjur skil­uðu Símanum 341 millj­ónum krónum meira á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs en á sama tíma­bili 2020.

Síminn hefur líka ráð­ist í umtals­verðar kostn­að­ar­lækk­anir á árinu. Þannig hefur stöðu­gildum hjá félag­inu verið fækkað um 50 og útvistun hug­bún­að­ar­þró­unar hefur lækkað launa­kostnað um 300 millj­ónir króna á árs­grund­velli.

Arðgreiðslur og endurkaup

Stærsti ein­staki hlut­hafi Símans eru Stoðir hf. og Jón Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­maður þess fjár­fest­inga­fé­lags, er stjórn­ar­for­maður Símans. Aðrir stórir eig­endur eru að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. 

Síminn greiddi út 500 millj­ónir króna í arð í apríl og félagið hefur keypt eigin bréf fyrir 1,5 millj­arða króna frá síð­asta aðal­fundi. Samtals hefur Síminn varið 65,1 pró­sent af hagn­aði í arð­greiðslu og kaup eigin bréfa. End­ur­kaup á bréfum félags­ins munu hefj­ast aftur í nóv­em­ber og verður keypt fyrir hálfan millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár