„Hagstjórnarmistök“ að styðja ekki betur við sveitarfélög

Reykja­vík­ur­borg varar rík­is­stjórn­ina við að veita sveit­ar­fé­lög­unum ekki meiri stuðn­ing í nýju fjár­laga­frum­varpi og segir nið­ur­skurð í fjár­fest­ingum vinna gegn við­bót­ar­fjár­fest­ingu rík­is­ins.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykja­víkur Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ekki er stutt nægi­lega vel við sveit­ar­fé­lög lands­ins í nýju fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar, en þau hafa mörg hver verið rekin með við­var­andi halla vegna auk­inna lög­bund­inna skuld­bind­inga. Verði stuðn­ingur þeirra ekki auk­inn gæti þurft að draga úr fjár­fest­ingum eða auka við skuldir þeirra, en hvort tveggja hefði nei­kvæð áhrif á sjálf­bærni sveit­ar­fé­lag­anna og rík­is­sjóð í fram­tíð­inni.

Þetta er á meðal þess sem Fjármála- og áhættu­stýr­inga­svið Reykja­vík­ur­borgar skrifar í umsögn sinni um fjár­laga­frum­varp og þings­á­lyktun um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem birt var í síð­ustu viku.

Kostnaður vaxi en tekjur ekki

Í umsögn­inni kemur fram að ríkið hafi í síauknum mæli aukið þjón­ustu­skyldur borg­ar­innar án þess að auka fjár­veit­ingar til hennar. Þetta hafi leitt til við­var­andi halla­rekst­urs í lög­bundnum verk­efnum á sviðum vel­ferðar- og skóla­mála, sem Reykja­vík­ur­borg segir að hafi haft mikil og nei­kvæð áhrif á getu hennar til fjár­fest­inga og lán­töku­þörf.

Sem dæmi um þetta nefnir borgin að kostn­aður við skóla­starf­semi hafi auk­ist á síð­ustu árum, meðal ann­ars vegna krafna um ein­setn­ingu og skóla án aðgrein­ingar, auk þess sem fjölda nem­enda af erlendum upp­runa hafi auk­ist. Einnig hafi kostn­aður vegna þjón­ustu við fatl­aða auk­ist vegna nýrra reglna, t.d. með lög­fest­ingu not­enda­stýrðrar per­sónu­legrar aðstoðar (NPA). Í hvor­ugum mála­flokknum hafi tekjur borg­ar­innar þó auk­ist sam­hliða þess­ari kostn­að­ar­aukn­ingu.

Samkvæmt Reykja­vík­ur­borg er aðal­á­hættan í rekstri sveit­ar­fé­laga sú að ríkið leggi á herðar þeirra meiri skyldur en þau geti fjár­magnað. Enn fremur bætir hún við að fjár­mögnun sveit­ar­fé­laga miðað við lög­bundið þjón­ustu­hlut­verk þeirra er mjög áhættu­samt hér á landi, ef miðað er við önnur OECD-ríki.

Erfiðara að bregðast við kreppum

Reykja­vík­ur­borg seg­ist líka hafa minna svig­rúm til að bregð­ast við tekju­falli og útgjalda­aukn­ingu vegna efna­hag­skrepp­unnar í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins heldur en ríkið, þar sem sveit­ar­fé­lögin geti ekki fjár­magnað sig með jafn­auð­veldum hætti. Einnig sé erfitt að draga úr þjón­ustu­skyldur þeirra, þar sem þær séu ákvarð­aðar með lögum.

Í umsögn­inni segir að til­lögð fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar geri ráð fyrir því að ríkið dragi úr fjár­fest­ingu til að mæta þessum breyttu aðstæðum. Að mati borg­ar­innar er það hins vegar mjög óskyn­söm efna­hags­stefna þar sem hún vinnur gegn yfir­lýstri stefnu rík­is­ins um að auka við fjár­fest­ingar hins opin­bera.

Einnig vísar borgin í skýrslu grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Analytica, sem greindi frá því að lágt fjár­fest­ing­ar­stig sveit­ar­fé­laga myndi draga úr sjálf­bærni þeirra.

Ef ekki ætti að ráð­ast í harka­legan nið­ur­skurð þyrftu sveit­ar­fé­lögin að auka lán­töku, sem myndi hækka skulda­hlut­fall þeirra. Reykja­vík­ur­borg bætir hér við að hækkun skulda­hlut­falls sveit­ar­fé­laga geti hins vegar haft nei­kvæð áhrif á aðgengi þeirra að lánsfé. Þetta telur borgin einnig geta skaðað félags­lega sjálf­bærni sveit­ar­fé­lag til lengri tíma, auk þess sem rekstur þeirra og þjón­usta gæti verið skert til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár