Kraftaverkaolía með ýmislegt á samviskunni

Við eldum úr henni, böðum okkur í henni og burstum jafn­vel tenn­urnar með henni. Sér­fræð­ingar telja pálma­olíu vera í um helm­ingi allra mat- og snyrti­vara sem finna má í versl­unum á Vest­ur­löndum.

Órangútanar eru greindir og hafa hafst við í frumskógunum sem nú er verið að eyða í þúsundir ára.
Órangút­anar eru greindir og hafa hafst við í frum­skóg­unum sem nú er verið að eyða í þús­undir ára. Mynd: Phys.Org

Pálma­olía er undra­efni. Hún er unnin úr ávexti sem vex í röku og hlýju lofts­lagi hita­belt­is­ins, og hefur stór­merki­lega eig­in­leika – allt að því lygi­lega. Hún fær sápu til að freyða betur og kex til að vera stökk­ara og skemmti­legra undir tönn. Hún gerir súkkulaði­stykki áferð­ar­fögur og er ástæðan fyrir því að ein­göngu þarf að hella heitu vatni á pakkanúðl­urnar. Svo getur hún látið vara­lit­inn verða mýkri og forðað mjólk­ur­ísnum frá því að bráðna hratt. Pálma­olía gerir krafta­verk. Krafta­verk sem við teljum okkur þurfa til að fóðra þrá okkar eftir stöðugt meiri þæg­indum í líf­inu.

En vin­sældir hennar hafa stigið henni til höf­uðs ef svo má segja. Nátt­úru­legu skóg­arnir hafa auð­vitað engan veg­inn dugað til. Og þar sem eft­ir­spurnin er mikil hafa íbúar fátækra landa þar sem plantan sem getur af sér pálma­ol­í­una dafnar best, eygt von um betra líf með því að rækta hana. Til að anna eft­ir­spurn­inni er mörgum hekt­urum skóga rutt úr vegi dag­lega. Það þarf meira. Og meira.

[adspot]

Skóg­arnir sem hafa vikið fyrir olíu­pálm­unum eru heim­kynni fjöl­margra dýra­teg­unda. Sú stærsta er órangútan, hæg­lát skepna og greind sem notar verk­færi, m.a. til að byggja sér hreiður. Nafn hennar, órangútan, þýðir á tungu Malaja „per­sóna skóg­ar­ins“. Órangút­anar hafa búið í regn­skógum Indónesíu og Malasíu í tug­þús­undir ára.

Líkt og mörg önnur dýr hafa þeir átt undir högg að sækja nokkuð lengi vegna ágangs manns­ins á búsvæði þeirra. En þeim var rekið bylm­ings­högg fyrir um tutt­ugu árum er pálma­ol­íu­iðn­að­ur­inn fór hratt vax­andi. Það högg hefur lík­lega fellt um 50 þús­und órangút­ana á tveimur ára­tugum. Um 6-12 þeirra hafa fallið í val­inn á hverjum degi á þessu tíma­bili. Og enn eru þeir að deyja, þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit stór­fyr­ir­tækja og þrýst­ing frá umhverf­is­sam­tökum og með­vit­uðum neyt­endum.

Með­vit­und neyt­and­ans vakn­aði ekki upp úr þurru. Þeir höfðu flestir misst af því er undra­ol­í­unni frá Asíu var bætt við mat- og snyrti­vör­urnar sem þeir tíndu niður úr hillum mat­vöru­versl­ana og ofan í inn­kaupa­kerr­urnar. Það var ekki aug­lýst sér­stak­lega.

En meira en ára­tugur er síðan að bar­átta umhverf­is­sam­taka, m.a. Greenpeace, fór að vekja almenn­ing til með­vit­undar um áhrif pálma­ol­íu­rækt­ar­innar sem þá var orðin að umfangs­miklum iðn­aði með aðkomu stórra alþjóð­legra fyr­ir­tækja. Bænd­urnir í Indónesíu og Malasíu hafa fæstir orðið loðnir um lóf­ana.

Pálma­olía er svo mikið notuð í mat- og snyrti­vörum að talið er að um helm­ingur allra slíkra sem finna megi í versl­unum á Vest­ur­löndum inni­haldi hana. Hún er í sjampói, Oreo-kexi og hnetu­smjöri, svo dæmi séu tekin.

Tvær leiðir: Hætta að kaupa eða velja vörur vel

En hvað á hinn með­vit­aði neyt­andi að gera? Á hann að sleppa því að kaupa vörur með pálma­olíu?

Ekki endi­lega, segja nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin World Wildlife Fund. Þau vilja frekar fara þá leið að fá sem flesta til liðs við sig og halda áfram að þrýsta á fyr­ir­tæki að kaupa aðeins olíu sem fram­leidd er með sjálf­bærum hætti og frá fram­leið­endum sem skilja raun­veru­lega eitt­hvað eftir hjá heima­mönnum.

Það er sann­ar­lega ekki auð­velt að átta sig á hvort að varan sem maður er í þann mund að setja ofan í inn­kaupa­kerruna inni­haldi pálma­olíu. Hér eru nokkur dæmi um hvernig pálma­olía er fram­sett í inni­halds­s­lýs­ingu: Vegeta­ble Oil, Vegeta­ble Fat, Palm Kernel, Palm Kernel Oil, Palm Fruit Oil, Palmate, Palmitate, Palmolein, Glyceryl, Stearate, Stearic Acid, Elaeis Guineensis, Palmitic Acid, Palm Stearine, Palmitoyl Oxoste­ara­mide, Palmitoyl Tetra­pept­ide-3, Sodium Laureth Sulfate, Sodium Lauryl Sulfate, Sodium Kern­elate, Sodium Palm Kern­elate, Sodium Lauryl Lactylate/Sulphate, Hyrated Palm Glycerides, Etyl Palmitate, Octyl Palmitate, Palmityl Alcohol.

Það stendur yfir­leitt ekki: Þessi vara inni­heldur pálma­olíu.

En þrýst­ing­ur­inn sem WWF, Greenpeace og fleiri reyna að skapa felst í því að fólk kaupi aðeins vörur sem hafa fengið stimpil frá Hring­borði sjálf­bærrar pálma­olíu, The Roundtable on Susta­ina­ble Palm Oil (RSPO). Hring­borðið var stofnað árið 2004 af umhverf­is­sam­tökum og fyr­ir­tækjum og sífellt fleiri bæt­ast í hóp­inn. Mark­miðið var að beita þá sem fram­leiddu pálma­olíu þrýst­ingi til að hverfa til vist­vænni vega.

Hring­borðið vís­aði fyr­ir­tæk­inu Nestlé frá borði árið 2018 þar sem það taldi það ekki upp­fylla skil­yrði sátt­mála sam­tak­anna. Nestlé sagð­ist nota „sjálf­bæra pálma­olíu“ í vörur sínar, t.d. súkkulaði­stykkin, en annað kom á dag­inn.

Tíu ár eru síðan að áhrifa­mikil aug­lýs­ing Greenpeace, þar sem sjá mátti mann bíta í fingur af órangútan í stað Kit-Kat stangar, varð til þess að Nestlé ákvað að stefna að því mark­miði að ná skóg­areyð­ingar-hlut­leysi (e. zero-net deforestation) árið 2020. Í yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu árið 2014 sagð­ist það aðeins nota sjálf­bæra pálma­olíu í verk­smiðjum sínum. Með þessu þótti fyr­ir­tækið breyta stefnu sinni í umhverf­is­málum eftir henti­semi og þegar fyrri mark­mið reynd­ust því þung.

Hring­borðið hefur fengið sinn skerf af gagn­rýni síð­ustu ár og það af mörgum sagt setja hagnað fyr­ir­tækja framar hinum göf­ugu mark­miðum sem sett voru í upp­hafi. Greenpeace hefur t.d. bent á að það að banna Nestlé að segja olí­una sem fyr­ir­tækið notar sjálf­bæra ekki rétta for­gangs­röðun. Fleiri fyr­ir­tæki sem aðild eiga að hring­borð­inu eigi þátt í áfram­hald­andi skóg­areyð­ingu án þess að vera refsað fyrir það með nokkrum hætti.

Nestlé hefur nú fengið sæti við hring­borðið á ný. Það fékkst með því að búa til áætlun um hvernig fyr­ir­tækið ætlar sér að ná því mark­miði að nota aðeins sjálf­bæra olíu í vörur sínar fyrir árið 2023. Í áætl­un­inni er lögð áhersla á að allir fram­leiðslu­ferlar séu gegn­sæir og uppi á borðum.

[adspot]

Önnur fyr­ir­tæki og jafn­vel heilu versl­un­ar­keðj­urnar, hafa farið þá leið að fjar­lægja pálma­olíu úr vörum sínum. Breska mat­vöru­keðjan Iceland hefur und­an­farna mán­uði hætt að nota pálma­olíu í um 450 vöru­teg­undir sem fram­leiddar eru undir vöru­merki versl­un­ar­innar. Áfram verður haldið á þeirri braut.

Í frum­skógi inter­nets­ins er ekki ein­falt að koma auga á staði þar sem hægt er að finna góðar upp­lýs­ingar um hvaða vörur inni­halda pálma­olíu og hvort hún sé þá vottuð sem sjálf­bær. Hér er þó ein síða sem hægt er að styðj­ast við og önnur hér og sú þriðja hér. Og hér er hægt að nálg­ast app hring­borðs­ins þar sem hægt er að fletta upp vörum og kanna hvort að þær noti pálma­olíu sem ræktuð hefur verið með þeirra skil­yrðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár