Segir endurbata í ferðaþjónustu vera hröðustu leiðina úr kreppunni

Fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri telur að aukin virkni ferða­þjón­ust­unnar sé fljót­virkasta leiðin til að ná við­snún­ingi í hag­kerf­inu.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Már Guð­munds­son telur að aukin virkni ferða­þjón­ust­unnar verði hrað­asta leiðin til efna­hags­legs við­snún­ings að heims­far­aldr­inum loknum, þar sem ónýttir fram­leiðslu­þættir séu til staðar í grein­inni. Í grein sinni leggur hann áherslu á að heild­stæð sýn sé mik­il­væg fyrir verð­mæta­sköpun í hag­kerf­inu, þar sem margir sam­verk­andi þættir komi saman.

Þetta skrifar Már í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem var gefið út í gær. Þar veltir hann upp mik­il­vægi útflutn­ings­tekna í verð­mæta­sköpun sam­kvæmt ýmsum hag­fræði­kenn­ingum, þar sem fram­lag mis­mun­andi atvinnu­greina til þjóð­ar­bús­ins hafi verið rætt tölu­vert á und­an­förnum miss­erum. Þar hafi oft verið gerður grein­ar­munur á því hvort atvinnu­greinnar afli gjald­eyris eða ekki.

Heildstæð sýn mikilvæg

Í því til­liti nefnir hann kaup­auðg­is­stefnu (e. mercantilism) sem hvetur til þess að ríki auðg­ist með því að auka útflutn­ing og draga úr inn­flutn­ingi. Samkvæmt Má sam­rým­ist sú stefna þó ekki nútíma­hag­fræði, þar sem fram­leiðsla fyrir inn­an­lands­markað er hluti af verð­mæta­sköp­un­inni með alveg sama hætti og útflutn­ingur eru.

Már bætir einnig að heild­stæð sýn sé mik­il­væg til að skilja verð­mæta­sköpun í sam­fé­lag­inu, til að mynda inn­viðir á vegum hins opin­bera, menntun og greiðslu­miðlun frá fjár­mála­kerf­inu.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Uppfært kl: 16:19. Orðalagi frétt­ar­innar hefur verið breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár