Barn unga afganska parsins fæddist á annan í jólum

Afganska par­inu, átján og nítján ára gömlum, sem fyrr í des­em­ber var synjað um efn­is­lega með­ferð á Íslandi, fædd­ist í gær lítil stúlka á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans í Reykja­vík. Litla fjöl­skyldan dvelur nú í hús­næði ætl­uðu hæl­is­leit­endum í Reykja­nesbæ. Almenn­ingur leggur fjöl­skyld­unni lið með því að safna fyrir það nauð­synjum.

Barn unga afganska parsins fæddist á annan í jólum
Móðir og barn Ungt par sem eru hæl­is­leit­endur frá Afganistan eign­uð­ust dóttur á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans í gær. Þau eru nú komin aftur í hús­næði fyrir hæl­is­leit­endur í Reykja­nesbæ. Mynd: Shutterstock

Í gær, á annan í jólum, fædd­ist á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans í Reykja­vík lítil stúlka. Hún er fyrsta barns ungs pars frá Afganistan, átján ára konu og nítján ára manns.  Parið fékk fyrr í þessum mán­uði þær fréttir að umsókn þeirra um alþjóð­lega vernd á Íslandi verði ekki tekin til skoð­unar, á þeim grund­velli að þau hafi þegar alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Þau bíða þess því að verða flutt þangað aftur. Barnið og for­eldr­arnir ungu dvelja nú í Reykja­nesbæ, í hús­næði fyrir hæl­is­leit­endur. 

Kvik­mynda­gerð­ar­konan Elísabet Ron­alds­dóttir hefur, ásamt fleirum, staðið fyrir söfnun á ýmsum nauð­synjum fyrir barnið. Margir hafa brugð­ust við kall­inu og boðið ýmis­legt fram, svo sem eins og bíl­stól, föt og fleira.

Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir, tals­maður umsækj­enda hjá Rauða krossi Íslands, vakti athygli á stöðu fólks­ins í grein sem birt­ist á Vísi á dög­unum. Þar kom meðal ann­ars fram að í haust hafi nokkrir ein­stak­lingar, þar á meðal parið, fengið nið­ur­stöðu frá Kæru­nefnd útlend­inga­mála um end­ur­send­ingu til Grikk­lands. Hún bendir á að Rauði kross­inn hafi í sumar skorað á íslensk stjórn­völd að láta taf­ar­laust af end­ur­send­ingum til Grikk­lands vegna þess alvar­lega ástands sem þar ríkir. Heim­il­is­leysi, sára­fá­tækt, atvinnu­leysi og for­dómar séu algeng vanda­mál meðal flótta­fólks þar. 

Segir Guðríður að tals­menn Rauða kross­ins hafi ekki orðið varir við að fjöl­skyldum og ein­stak­lingum í við­kvæmri stöðu sé sýnd mildi eða mannúð, við mat á því hvort heim­ilt sé að senda þau til Grikk­lands. Margt bendi raunar til þess að íslensk stjórn­völd geri nú strang­ari kröfur en áður. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár