Átján og nítján ára sem eiga von á barni um jólin synjað um vernd

Kæru­nefnd útlend­inga­mála synj­aði fyrr í þessum mán­uði ungu afgönsku pari um alþjóð­lega vernd á Íslandi, á þeim grund­velli að þau hafi þegar vernd í Grikk­landi. Parið á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum. Rauði kross­inn mót­mælir harð­lega end­ur­send­ingum til Grikk­lands.

Átján og nítján ára sem eiga von á barni um jólin synjað um vernd
Flótta­manna­búðir í Grikk­landi Ástandið í Grikk­landi er afar ótryggt en heim­il­is­leysi, sára­fá­tækt, atvinnu­leysi og for­dómar eru algengt vanda­mál meðal flótta­fólks í land­inu. Mynd: Páll Stefánsson

Ungt par frá Afganistan, átján ára kona og nítján ára maður, fengu í síð­ustu viku þær fréttir að umsókn þeirra um alþjóð­lega vernd á Íslandi verði ekki tekin til skoð­unar og þau verði því send aftur til Grikk­lands. Það er Kæru­nefnd útlend­inga­mála sem kemst að þeirri nið­ur­stöðu, á þeim grund­velli að þau hafi þegar alþjóð­lega vernd í Grikk­landi. Parið kom, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Rauða krossi Íslands, til Íslands frá Grikk­landi síð­ast­liðið sumar en það á von á sínu fyrsta barni nú um jólin. 

Árið 2010 hættu íslensk stjórn­völd að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd aftur til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, vegna slæms ástands í gríska hæl­is­kerf­inu. Mann­úð­ar­sam­tök og sér­fræð­ingar í mál­efnum flótta­manna og hæl­is­leit­enda hafa bent á að aðstæður fólks sem hefur fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi séu síður en svo betri. Rauði kross­inn skor­aði til að mynda í sumar á íslensk stjórn­völd að láta taf­ar­laust af end­ur­send­ingum til Grikk­lands vegna þess alvar­lega ástands sem þar ríkir. Þrátt fyrir það halda stjórn­völd áfram að senda fólk sem hefur alþjóð­lega vernd í Grikk­landi aftur þangað. 

Guðríður Lára Þrast­ar­dóttirTals­maður umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hjá Rauða krossi Íslands.

Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir, tals­maður umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hjá Rauða kross­inum, fjallar um end­ur­send­ingar til Grikk­lands í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi. Þar segir að í haust hafi nokkrar fjöl­skyldur og ein­stak­lingar með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi fengið nið­ur­stöður frá Kæru­nefnd útlend­inga um end­ur­send­ingu til Grikk­lands. Þar segir hún jafn­framt að orð sem rituð eru í nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar, í máli unga pars­ins frá Afganistan, komi veru­lega á óvart og stingi í stúf við fyrri úrskurði. „Í úrskurð­inum kom fram að konan muni hafa aðgang að full­nægj­andi fæð­ing­ar­að­stoð og ung­barna­vernd fyrir nýfætt barn sitt í Grikk­landi. Nið­ur­staða kæru­nefndar kom veru­lega á óvart þar sem fyrir rúm­lega ári síðan komst Kæru­nefnd að því að mæðra­vernd og ung­barna­vernd sé meðal þeirrar heil­brigð­is­þjón­ustu sem flótta­fólk kunni að eiga erfitt með aðgengi að. Heim­il­is­leysi, sára­fá­tækt, atvinnu­leysi og for­dómar eru einnig algeng vanda­mál meðal flótta­fólks í land­inu.“ 

Hér má lesa þann úrskurð sem Guðríður nefnir, en í því til­felli sneri Kæru­nefnd útlend­inga­mála við úrskurði Útlend­inga­stofn­unar um að hafna beiðni fjöl­skyldu um efn­is­lega með­ferð hér á landi, meðal ann­ars á þeim grund­velli að hætt mæðra- og ung­barna­vernd kynni að vera ófull­nægj­andi í Grikk­landi: „Í nýj­ustu árs­skýrslu gagna­grunns Evr­ópu­ráðs­ins um flótta­menn og land­flótta ein­stak­linga, Asylum Information Database, kemur fram að ein­stak­lingar með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi hafi fundið fyrir erf­ið­leikum með að fá við­un­andi heil­brigð­is­þjón­ustu og á það einkum við um ein­stak­linga sem til­heyra sér­stak­lega við­kvæmum hópum. Þá segir á vef­svæði alþjóða­sam­tak­anna Doctors of the World að konur á flótta í Grikk­landi hafi átt erfitt með að fá aðgang að full­nægj­andi mæðra­vernd þar í landi.Kemur fram að árið 2016 hafi sam­tökin hrint af stað her­ferð með það að mark­miði að bæta mæðra­vernd til flótta­kvenna í Grikk­landi. Einnig kemur fram að þrátt fyrir að margt hafi áunn­ist í þeim efnum eigi þung­aðar konur enn á hættu að fá ekki full­nægj­andi mæðra­vernd og ung­barna­vernd þar í landi,“ segir í úrskurð­inum. 

„Heim­il­is­leysi, sára­fá­tækt, atvinnu­leysi og for­dómar eru einnig algeng vanda­mál meðal flótta­fólks í land­inu.“ 

Reglugerðarbreyting dómsmálaráðherra nýtist þeim ekki

Síð­ast­liðið sumar fjöll­uðu fjöl­miðlar tals­vert um mál Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar, sem koma einnig frá Afganistan. Stóð til að senda Zainab, bróður hennar og móður aftur til Grikk­lands, þar sem þau höfðu fengið alþjóð­lega vernd þar. Yfir­vof­andi brott­flutn­ingi þeirra var harð­lega mót­mælt, ekki síst af skóla­fé­lögum Zainab í Haga­skóla. Þrýst­ing­ur­inn skil­aði sér í því að dóms­mála­ráð­herra gerði breyt­ingu á reglu­gerð um útlend­inga sem leiddi til þess að fjöl­skyldan, auk ann­arrar fjöl­skyldu í svip­aðri stöðu, fengu efn­is­lega með­ferð hér á landi. „Breyt­ingin fól í sér að Útlend­inga­stofnun hefði heim­ild til að taka til efn­is­með­ferðar mál barna­fjöl­skyldna sem hlotið hafa vernd og eru enn á land­inu 10 mán­uðum eftir að umsókn um alþjóð­lega vernd var lögð fram. Reglu­gerð­ar­breyt­ingin mælti ekki fyrir um að við­kvæm staða umsækj­enda skyldi hafa meira vægi þegar um væri að ræða fjöl­skyldur eða ein­stak­linga í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi,“ bendir Guðríður á í grein sinni og segir það miður að Rauði kross­inn, sem sinni rétt­ar­gæslu fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, hafi ekki orðið vart við að fjöl­skyldum og ein­stak­lingum í við­kvæmri stöðu sem hingað koma frá Grikk­landi hafi verið sýnd aukin mildi eða mannúð við mat á því hvort heim­ilt sé að end­ur­senda þau til Grikk­lands. „Þvert á móti bendir ýmis­legt til þess að við mat á því hvort sér­stakar aðstæður séu til staðar séu gerðar strang­ari kröfur en áður, þrátt fyrir að fjöldi alþjóð­legra sam­taka og eft­ir­lits­stofn­ana vitni um að aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi fari sífellt versn­andi,“ segir Guðríður.  

Ekki feng­ust upp­lýs­ingar um hvenær má búast við að fjöl­skyldan verði send úr landi. Ljóst er að barnið mun fæð­ast hér á landi, þar sem hún er komin of nálægt settum fæð­ing­ar­degi til þess að fljúga.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár