Farsi á Lesbos

Af bíl­stjór­anum mikla frá Kasmír. Grískum harm­leik sem endar á Cosmopolitan.

Farsi á Lesbos
Tré­smið­ur­inn Sultan frá Afganistan á heim­leið í flótta­manna­búð­irnar frá Mytilene. Mynd: Páll Stefánsson

Eyjan Lesbos í Eyjahafi Grikk­lands, með sína tæp­lega 80 þús­und íbúa, liggur stein­snar frá Tyrk­landi. Það er bara 5 km breitt sund sem skilja löndin, heims­álf­urnar, að. Á síð­ustu rúmum fjórum árum hafa meira en 1,2 millj­ónir flótta­manna komið yfir sundið til Lesbos frá Tyrk­landi. Fyrsta flóð­bylgjan af fólki kom í lok árs 2015, mest allt Sýr­lend­ingar, þegar Evrópa opn­að­ist þarna. 

Frá því vorið 2016 hefur verið stöð­ugur straumur hæl­is­leit­enda, um 125 manns á dag. Nú í des­em­ber koma 250 manns á sól­ar­hring, tæp­lega 2.000 á viku. Flótta­manna­straum­ur­inn hefur sem sagt auk­ist um helm­ing síðan í sumar og sam­setn­ingin er allt önnur en fyrir fjórum árum. Flestir, eða um helm­ingur þeirra, koma nú frá Afganistan, mikið af fjöl­skyldu­fólki. Fjórð­ungur eru Sýr­lend­ingar og það sem eftir stendur eru: Íranir, Írakar, Kongóbúar, Kasmír­ingar og nágrann­arnir í Jemen og Sómalíu. Allt fólk frá löndum sem þekkja ekki frið, frá svæðum þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár