Norðurál telur Landsvirkjun misnota stöðu sína og leitar til Samkeppniseftirlitsins

Norðurál telur að Lands­virkjun hafi „sem mark­aðs­ráð­andi aðili á mark­aði með skamm­tíma­orku mis­notað stöðu sína gagn­vart Norð­ur­áli með því að krefj­ast ósann­gjarns og óhóf­legs end­ur­gjalds fyrir umframorku“ og leitar eftir áliti frá SKE um málið.

Norðurál hefur sent erindi til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og óskað íhlut­unar þess, vegna þess sem Norðurál telur vera mis­notkun Lands­virkj­unar á mark­aðs­ráð­andi stöðu á skamm­tíma­mark­aði með raf­orku. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Norð­ur­áli.

Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins segir að Norðurál hafi í all­nokkur ár ekki haft nægj­an­lega orku í gegnum lang­tíma­samn­inga til að halda uppi fullri fram­leiðslu í álveri sínu á Grund­ar­tanga og hafi tíma­bundið þurft að kaupa orku á skamm­tíma­mark­aði til að fylla upp í skerð­ingar vegna við­halds hjá öðrum orku­fram­leið­endum sem Norðurál kaupir orku af.

Einnig segir að í byrjun sum­ars hafi þessi staða komið upp og álverið þurft að kaupa raf­orku á skamm­tíma­mark­aði til að forð­ast tjón í kerskála og til að geta haldið uppi fullri fram­leiðslu.

„Nær öll raf­orka á íslenska skamm­tíma­mark­aðnum er fram­leidd af Lands­virkjun. Eft­ir­spurn eftir raf­orku hafði dreg­ist saman á Íslandi og staða í lónum Lands­virkj­unar var yfir með­al­lagi. Við slíkar aðstæður ætti verð að vera lægra en ella. Það verð sem Lands­virkjun vildi fá var hins vegar yfir því verði sem Norðurál keypti frá minni orku­fram­leið­anda, að því marki sem sá hafði slíka orku til reiðu, var yfir með­al­verði Lands­virkj­unar árin á undan og yfir verði á Norræna skamm­tíma­mark­aðnum, Nord Pool,“ segir í til­kynn­ingu Norð­ur­áls.

Norðurál telur þannig að Lands­virkjun hafi „sem mark­aðs­ráð­andi aðili á mark­aði með skamm­tíma­orku mis­notað stöðu sína gagn­vart Norð­ur­áli með því að krefj­ast ósann­gjarns og óhóf­legs end­ur­gjalds fyrir umframorku.“

„Það er eðli­legur hluti af við­skiptum fyr­ir­tækja á Íslandi að þurfa öðru hverju að leita til opin­berra aðila eins og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til að greiða úr deilu­málum og fá sinn hlut réttan. Ég legg hins vegar áherslu á að sam­starfið við Lands­virkjun hefur almennt verið mjög gott hingað til og ég vænti þess að svo verði áfram,“ er haft eftir Gunnari Guð­laugs­syni for­stjóra Norð­ur­áls í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár