Telur „jó-jó tímabili“ vegna Hvalárvirkjunar lokið

Vanda­málin í raf­orku­kerf­inu á Vest­fjörðum snú­ast ekki um orku­skort heldur afhend­ingar­ör­yggi. Um þetta eru verk­efn­is­stjóri hjá Lands­neti og full­trúi Jarð­strengja sam­mála. Sá síð­ar­nefndi telur „jó-jó tíma­bili“ sem fylgdi Hval­ár­virkjun lokið.

Kerfið á Vestfjörðum er viðkvæmt fyrir veðri og vindum.
Kerfið á Vest­fjörðum er við­kvæmt fyrir veðri og vindum. Mynd: Landsnet

Brýnasta verk­efnið til að bæta raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum er að tvö­falda flutn­ings­línur inn á suð­ur­firð­ina. Þeim áformum hefur verið flýtt og eiga fram­kvæmdir að hefj­ast árið 2022. Þetta segir Magni Þór Pálsson, verk­efn­is­stjóri rann­sókna hjá Lands­neti.

Karl Ing­ólfs­son leið­sögu­maður og þátt­tak­andi í starfi gras­rót­ar­hóps­ins Jarð­strengja, segir umræð­una um Hval­ár­virkjun hafa tafið úrbætur á raf­orku­kerfi Vest­fjarða en nú þegar áformin séu komin á ís verði von­andi hætt að horfa á „óraun­hæfar lausnir“ og farið í það „sem raun­veru­lega kemur að gagni“.

Magni og Karl eru sam­mála um að vanda­málið á Vest­fjörðum sé ekki orku­skortur heldur afhend­ingar­ör­yggið. Mik­il­vægt sé að finna leiðir til að tryggja hnökra­lausa yfir­færslu á vara­afl þegar straum­leysi verður og benda þeir á að fram­þróun hafi verið í slíkum lausnum síð­ustu ár.

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli þeirra á fundi Land­verndar um orku­ör­yggi á Vest­fjörðum sem fram fór um síð­ustu helgi.

[adspot]

„Við vitum það að afhend­ingar­ör­yggi á Vest­fjörðum hefur verið með því lægsta sem ger­ist í flutn­ings­kerf­inu á Íslandi,“ sagði Magni. Aðeins ein meg­in­flutn­ings­lína liggur inn á Vest­fjarða­kjálk­ann, Vest­ur­lína. Út frá henni taka við tvær línur frá Mjólkár­línu; Tálkna­fjarð­ar­lína og Breið­dals­lína. „Landslag á Vest­fjörðum er eins og allir þekkja sem þangað hafa komið fjöll­ótt og frekar óblítt og ekki alls staðar hent­ugt til raf­lagna, hvort sem er loft­línur eða raf­strengir,“ sagði Magni. „Eins er veð­ur­far með þeim hætti að loft­línur eru útsettar fyrir ísingu og sterkum vindi. Einnig eru á svæð­inu langar vega­lengdir en til­tölu­lega lítil orku­notkun.“

Ýmsar úrbætur hafa verið gerðar síð­ustu ár. Bol­ung­ar­vík­ur­lína 2 var t.d. lögð í jarð­streng í Óshlíð­ar­göngin þegar þau voru gerð. Sett var upp stór vara­afls­stöð í Bol­ung­ar­vík ásamt snjall­neti svoköll­uðu sem lág­markar straum­leysi þegar norð­an­verðir Vest­firðir missa teng­ingu við flutn­ings­kerfið. Spennu­afl í Mjólká var aukið og eins hafa tengi­virki Lands­nets í Bol­ung­ar­vík og á Ísafirði verið end­ur­nýjuð og yfir­byggð.

Samkvæmt nýrri kerf­is­á­ætlun Lands­nets til árs­ins 2029 á að hefja fram­kvæmdir við nýtt tengi­virki í Hrúta­tungu þegar á næsta ári. Það tengi­virki er á lyk­il­stað í kerf­inu en þaðan fer byggða­línan út á Vest­firð­ina. Í vonsku­veðrum síð­asta vetur átti Landsnet í miklu basli með þetta tengi­virki og verður hið nýja yfir­byggt.

Samkvæmt fram­kvæmda­á­ætlun verður svo farið í styrk­ingu á flutn­ings­kerf­inu á suð­ur­fjörð­unum árið 2022 og árið síðar stendur til að end­ur­nýja tengi­virki í Breiða­dal. Á tíu ára áætlun er svo verk­efni sem kall­ast áttan og felur í sér tvö­földun flutn­ings­lína frá Mjólká og í Breiða­dal. Þegar hefur verið lagður jarð­strengur um Dýra­fjarð­ar­göng sem unnið er að. „Ástandið hefur farið batn­andi þó að margt megi en bæta og við erum fylli­lega með­vituð um það,“ sagði Magni.

Karl benti á að á Vest­fjörðum væri ein­ungis notað um 1 pró­sent þeirrar raf­orku sem fram­leidd væri í land­inu. Það væri hart að búa við óáreið­an­legt raf­magn í landi þar sem fram­leidd er meiri raf­orka á hvern lands­mann en nokkur staðar ann­ars staðar. „Það er eins og að búa við kaffi­leysi í Brasilíu eða fá ekki soðn­ingu hér á Íslandi þar sem aflað er tveggja tonna af fiski á mann á ári.“

[links]Umræðan um raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum hafi síð­ustu ár að miklu leyti snú­ist um Hval­ár­virkjun. Hann rifj­aði upp að þegar virkj­ana­hug­myndin kom fyrst fram hafi verið rætt um að tengja hana beint inn á Ísafjörð, þ.e. inn í end­ann á raf­orku­kerfi svæð­is­ins þar sem þörfin og eft­ir­spurnin væri mest, en að síð­ari ár hafi verið horfið frá því og til staðið að tengja hana við meg­in­flutn­ings­kerfið í Kolla­firði en þaðan eru tugir kíló­metra þangað sem notk­unin er mest og leiðin útsett fyrir áföllum. Á sama tíma, þ.e. á árunum 2015-2016, hafi HS orka, sem er meiri­hluta­eig­andi Vest­ur­verks, lent í vand­ræðum með rekstur Reykja­nes­virkj­unar og bráð­vantað raf­magn. „Þeir áttu ekki nóg raf­magn fyrir sína við­skipta­vini þegar álagið var mest hjá þeim og þurftu að kaupa það sem uppá vant­aði dýrum dómum.“

Síðan þá er HS orka búin að „ná upp dampi“ í Reykja­nes­virkjun, er komin með 42 MW vinnslu­getu í smá­virkj­unum og leyfi til auk­innar orku­vinnslu í Reykja­nes­virkjun. „Þannig að hagur þessa raf­orku­fram­leið­anda er orð­inn mun betri í dag heldur en þegar unnið var að und­ir­bún­ingi Hval­ár­virkj­unar,“ sagði Karl. Nú eru hins vegar allt aðrar aðstæður á raf­orku­mark­aði og fram­kvæmdum við Hval­ár­virkjun verið slegið á frest um ótil­greindan tíma.

„Það er ekki orku­skortur á Vest­fjörðum,“ benti Karl á. „Vest­firðir eru tengdir lands­kerf­inu og það er næg flutn­ings­geta til að koma þeirri orku sem Vest­firð­ingar kjósa að kaupa vestur. Vandinn er þegar kerfið bilar.“

Hægt er að leggja hluta af flutn­ings­kerf­inu á Vest­fjörðum í jörð en svig­rúmið er ekki mikið að sögn Magna. Jarð­strengir hafa verið lagðir sam­hliða jarð­göngum og einnig er verið að skoða, við tvö­földun flutn­ings­lína sem standa fyrir dyrum á ákveðnum svæðum, hvaða kaflar séu hvað útsett­astir fyrir bil­unum í vondum veðrum og beri að leggja í jörð.

Ýmislegt hefur áhrif á hið svo­kall­aða skamm­hlaupsafls sem tak­markar lengd jarð­strengja innan kerfa. Samkvæmt lang­tíma­á­ætlun Lands­nets stendur til að leggja nýja flutn­ings­línu frá Blöndu og í Hval­fjörð og myndi sú lína vænt­an­lega hafa við­komu í Hrúta­tungu. Við þetta mun kerf­is­styrk­ur­inn á Vest­ur­línu aukast og opn­ast þar með mögu­leikar til frek­ari strengja­lagna. Það mun þó ekki mæl­ast í tugum kíló­metra en yrði vænt­an­lega nóg til að hægt væri að taka af verstu kafla loft­lín­unnar.

Karl benti á að Vest­ur­verk hefði talað um að leggja jarð­streng frá Hval­ár­virkjun og yfir Ófeigs­fjarð­ar­heiði og að tengi­punkti sem fyr­ir­hug­aður var í Ísa­fjarð­ar­djúpi í jörð og spurði Magna hvaða áhrif það hefði haft á mögu­leika til ann­arra strengja­lagna í raf­orku­kerf­inu. „Hval­ár­virkjun, eins og hún er hugsuð, er stór eða 55 MW,“ svar­aði Magni og að því hefði hún getað haft umtals­verð jákvæð áhrif á skamm­hlaups­aflið á Vest­fjörðum. Hins vegar hefði jarð­streng­ur­inn yfir Ófeigs­fjarð­ar­heiði dregið úr þeim ávinn­ingi. Ef 1/3 til helm­ingur leið­ar­innar hefði verið settur í loft­línu hefðu áhrifin virkj­un­ar­innar á skamm­hlaups­aflið verið jákvæð og hægt að leggja nokkra kíló­metra í jörð í kerf­inu til við­bótar að mati Lands­nets.

Frestun Hval­ár­virkj­unar um ótil­greindan tíma mun að sögn Magna ekki hafa áhrif á áætl­anir Lands­nets á Vest­fjörðum nema þá á vinn­una við tengi­punkt­inn sem fyr­ir­hug­aður var í Djúpinu og var á áætlun Lands­nets á árinu 2022. Hann hékk saman við nýja orku­vinnslu á því svæði og var Vest­ur­verk eini virkj­un­ar­að­il­inn sem hafði óskað eftir teng­ingu við flutn­ings­netið.

Karl sagði það kost að Hval­ár­virkjun væri ekki lengur veifað sem „ein­hverju von­ar­tré“ í sam­bandi við úrbætur á raf­orku­kerfi Vest­fjarða því nú væri hægt að fara beint í aðgerðir sem kæmu að gagni. „Ég held að þessum bið­tíma, þessu jó-jó tíma­bili, sé lokið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár