Japanskur ljósmyndari leitar að jafnvægi milli líkama og sjálfsmyndar

Takeshi Miyamoto elskar Íslend­inga og íslenska nátt­úru. Hann safnar nú fyrir útgáfu ljós­mynda­bókar þar sem meðal ann­ars er fjallað um hið nýja lit­róf karl­mennsk­unnar.

Í bókinni tekst Takeshi Miyamoto á við nýtt litróf karlmennskunnar.
Í bók­inni tekst Takeshi Miyamoto á við nýtt lit­róf karl­mennsk­unnar. Mynd: Takeshi Miyamoto

Takeshi Miyamoto er jap­anskur ljós­mynd­ari sem býr í París. Hann heim­sótti Ísland fyrst árið 2011 og kynnt­ist þá mörgum heima­mönnum í gegnum Mary Ellen Mark, banda­rískan ljós­mynd­ara með tengsl við landið. Miyamoto féll sam­stundis fyrir Íslandi, sér­stak­lega vegna þeirrar jákvæðu orku sem hann fann streyma frá heima­mönnum, og auð­vitað nátt­úr­unni.

Nú vinnur hann að því að gefa út spectrum, fyrstu ljós­mynda­bók sína sem fjallar meðal ann­ars um leit­ina að jafn­væg­inu milli lík­ama Miyatomo og sjálfs­myndar hans.

Hann safnar nú fyrir útgáfu bók­ar­innar á Karolina Fund.

Miyatomo seg­ist alltaf hafa verið for­vit­inn um fjöl­breytni og erlenda menn­ingu. „Útfrá mínum fyrstu minn­ingum var mér strax ljóst að kyn­hneigð mín var frá­brugðin öðrum. Ég stóð oft frammi fyrir áskor­unum varð­andi hefð­bundnar staðalí­myndir af karl­mennsku í Japan. Barátta mín hefur leitt til þess að ég lagði stund á lang­tíma ljós­mynda­þema til að túlka karl­mennsku á ný í þessum nútíma heimi og skjal­festu hans.“

[adspot]Í gegnum það ferli rakst hann á Ísland og seg­ist hafa fundið svarið sem hann var að leita að. „Í fyrstu heim­sókn minni til Íslands árið 2011, eftir að hafa farið á ljós­mynda­smiðju Mary Ellen Mark í Reykja­vík, kynnt­ist ég mörgum ágætum Íslend­ingum. Ég heill­að­ist af áreynslu­lausum stíl þeirra þegar þeir afhjúp­uðu við­kvæmni sína og varn­ar­leysi, svo og sjálfs­traust og styrk. Ísland er í for­ystu fyrir jafn­rétti kynj­anna og það var sá grunnur ein­stak­lings­frelsis sem hjálp­aði mér einnig að stunda lang­tíma­verk­efni mitt með þemað karl­mennsku.“

Þegar Miyatomo upp­lifði hart og dimmt víð­erni íslenskrar nátt­úru, skynj­aði hann að á milli nátt­úr­unnar og manns­lík­am­ans er eitt­hvað sem lík­ist titr­ingi. „Ég átt­aði mig á því að bæði nátt­úran og menn­irnir eru alltaf að hreyfa sig á þessum kraft­mikla tví­skauta ás milli styrks­ins þar sem virð­ing okkur liggur og veik­leika sem gerir okkur blíð og við­kvæm.

Á þess­ari löngu veg­ferð verk­efn­is­ins míns und­an­farin tíu ár gat ég hægt og rólega sætt innri átök mín. Hjartað mitt lækn­að­ist og ég sam­þykkti loks­ins það sem ég er í dag.“

Hann segir áhuga sinn á ljós­myndun hafa vaknað á ferða­lögum. „Þetta er ein­falt tæki til að eiga sam­skipti við fólk og lands­lag í gegnum linsu mynda­vél­ar­innar. Hún felur í sér kraft­inn og gleð­ina að láta áhorf­and­ann upp­lifa heim­inn með nýju sjón­ar­horni.“

Aðspurður um af hverju það sé þörf á því nýja lit­rófi karl­mennsk­unnar sem hann fjallar um í bók­inni segir Miyatomo að fleiri karl­menn stigið fram og rætt opin­skátt um óör­yggi sitt, skömm eða ótta við að mis­takast en gera það í raun. „Varn­ar­leysi okkar og næmi ein af eðli­legum karakt­er­ein­kennum manns­ins sem er umfram kyn­hneigð og kyn, og þetta er það sem gerir karakt­er­inn okkar sterkan. Í þessum nútíma heimi mun kyn halda áfram að þró­ast í sveigj­an­legri sveiflu, eins og vindur. Við getum fært okkur frjáls­lega innan sviðs­ins milli karl­mann­legs og kven­legs áss. Við erum á þessu ferða­lagi umskipt­anna þar sem flæð­andi karl­mennska, sem er sam­hliða styrk­leika og mýkt, verður umfaðmað meira og fagnað.

Ég hef lifað lengi með þá til­finn­ingu að ég gæti ekki sæst við það hver ég væri. Með sárið mitt stíg ég smám saman í átt að styrknum í lit­rófi hjarta míns. Og þess vegna er þetta ein­læg ósk mín og áskorun að skila frá mér lit­rófs ljósa­bylgju af karl­mennsku sem safnað er í þessa ljós­mynda­bók. Ég vona inni­lega að þessi ljós muni skína ákaft í hjörtum les­enda“

Hægt er að skoða verk­efnið nánar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár