Játningabók um játningabók

Oft hug­vekj­andi og sann­ferðug sál­fræð­istúdía sem er þó á stöku stað klaufa­lega saman sett. Bók sem er sann­ar­lega bein­tengd við sam­tím­ann, sem er bæði kostur og galli.

Játningabók um játningabók
Kára­hnjúkar árið 2006 Ein af sögu­hetjum bók­ar­innar vinnur um tíma sem verka­maður á Kára­hnjúkum. Mynd: Asgegg / Wikimedia Commons

Við erum ekki morð­ingjar. Bæði tit­ill­inn og bak­síðu­text­inn kalla strax á spurn­ing­una: Af hverju þurfa þau að neita? Og af hverju „við“? Þessar spurn­ingar fylgja manni í gegnum sög­una – og þótt það sé aug­ljóst hver annar helm­ingur þessa „við“ er þá er lengi óljós­ara með hinn. En þetta er játn­inga­saga, eins og kemur fram jafnt á bóka­kápu og mjög snemma í bók­inni.

Bókin hefst á þungskýj­uðum vetr­ar­degi í Reykja­vík. Og þó, þetta er bara smá úði og það virð­ist vera farið að vora, en það er svo þungt yfir aðal­per­són­unni að maður sér fyrir sér ein­tóman drunga. Við erum föst í huga sögu­per­sónu sem er búin að vera með skíta­veður í hausnum síð­asta árið.

Hún er ung skáld­kona sem ráfar um götur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár