Um 200 ára beituskúr fannst við uppgröft

Við upp­gröft forn­leifa­fræð­inga á Norð­ur­stíg í Reykja­vík fund­ust ýmsar forn­leifar, m.a. gam­all beitu­skúr. Talið er að að minjarnar séu um 200 ára gamlar.

Tölvuteiknuð mynd sem sýnir hvernig Norðurstígur mun líta út að framkvæmdum loknum.
Tölvu­teiknuð mynd sem sýnir hvernig Norð­ur­stígur mun líta út að fram­kvæmdum loknum. Mynd: Af vef Reykjavíkurborgar

Forn­leifa­fræð­ingar voru kall­aðir á vett­vang fram­kvæmda á Norð­ur­stíg í Reykja­vík til að kanna mann­vist­ar­leifar. Við upp­gröft­inn fund­ust forn­leifar; gam­all beitu­skúr, und­ir­stöður undir Hlíð­ar­hús og aðrar mann­vist­ar­leifar, lík­lega um 200 ára gamlar. Búið er að teikna þær upp og merkja og forn­leifa­fræð­ingar hafa nú lokið störfum.

Unnið er að því að breyta heild­ar­yf­ir­bragði Norð­ur­stígs og ná fram­kvæmd­irnar einnig til Nýlendu­götu. Þær eru í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg sagðar ganga vel þó að ýmis­legt hafi komið í ljós, eins og oft vilji verða við fram­kvæmdir í eldri hverfum borg­ar­innar.

Við fram­kvæmd­irnar kom einnig í ljós að frá­veitu­lagnir reynd­ust liggja öðru­vísi en teikn­ingar gáfu til kynna og því þurfti að end­ur­hanna frá­veitu­hluta fram­kvæmd­ar­innar. Einnig kom í ljós að lagnir fyrir heitt og kalt vatn og raf­magn myndu þarfn­ast end­ur­nýj­unar á næstu árum. Var því ákveðið að gera það nú til að ekki þyrfti að grafa aftur á svæð­inu í bráð.

Ofan­talin atriði hafa ekki áhrif á áætl­aðan heild­ar­fram­kvæmda­tíma verks­ins.

Í sumar er unnið að því að end­ur­nýja og fegra umhverfi Norð­ur­stígs og Nýlendu­götu. Heild­ar­yf­ir­bragð Norð­ur­stígs verður bætt með því að end­ur­nýja yfir­borð göt­unnar og bæta við grjót­beðum með fram götu. Einnig verður gatan snjó­brædd.

Nýlendu­gata verður með óbreyttu sniði að því leyti að hægt verður að keyra inn á svæðið. Markmið hönn­un­ar­innar er að skapa vina­legt umhverfi með „blæ­vængs“-hellu­mynstri, bæta lýs­ingu með fram göngu­stígnum, auk þess verður vegg­lista­verkið á gafli Ægisgötu 7 sér­stak­lega upp­lýst. Bætt verður við bekkjum og hjóla­bogum og gróð­ur­beðum komið fyrir.

Fram­kvæmdin er á vegum umhverfis- og skipu­lags­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, Veitna ohf. og Mílu ehf. Áætlað er að fram­kvæmd­inni ljúki í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár