Um klukkan 23.36 í kvöld varð jarðskjálfti norður af Fagradalsfjalli á Reykjanesi og samkvæmt óyfirförnum frumniðurstöðum á vef Veðurstofunnar var hann um 4,4 stig. Við yfirferð Veðurstofunnar kom í ljós að hann reyndist 5 stig. Skjálftinn fannst vel í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkrir minni skjálftar hafa þegar fylgt í kjölfarið á svipuðum slóðum, þar af einn af stærðinni 2,8.
Í janúar varð vart við landris skammt frá fellinu Þorbirni við Grindavík. Síðan þá hefur land risið þar um að minnsta kosti 12 sentímetra.
Fréttin hefur verið uppfærð með tilliti til nýjustu upplýsinga Veðurstofunnar um stærð skjálftans.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir