Þinglýstum kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkar milli ára

Þing­lýstum kaup­samn­ingum fjölgar víða utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á öðrum árs­fjórð­ungi miðað við sama tíma í fyrra. Alls fækk­aði þeim um 31 pró­sent innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en fjölg­aði um 0,5 pró­sent utan þess.

Þinglýstum kaupsamningum fækkaði á milli ára í flestum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Smávægileg aukning varð í Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi.
Þing­lýstum kaup­samn­ingum fækk­aði á milli ára í flestum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Smá­vægi­leg aukn­ing varð í Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi. Mynd: Bára Huld Beck

Í júní var 355 kaup­samn­ingum um íbúð­ar­hús­næði þing­lýst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og voru þeir 26 pró­sentum færri en í sama mán­uði í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri hag­sjá Lands­bank­ans. Þar kemur einnig fram að lítil aukn­ing hafi verið í þing­lýstum kaup­samn­ingum í Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi en í öðrum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mæld­ist sam­dráttur.

Í hag­sjánni segir að maí­mán­uður hafi verið líf­legur á íbúða­mark­aði. Þing­lýs­ingar hafi verið mun fleiri í mán­uð­inum heldur en í apríl, þegar sam­komu­bann stóð sem hæst, auk þess sem hækkun á íbúða­verði hafi mælst milli mán­aða.

„Vís­bend­ingar voru því um að líf væri að fær­ast í íbúða­mark­að­inn. Tölur júní­mán­aðar benda til þess að staðan sé nokkuð róleg enn sem komið er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þó við­skipti séu fleiri en þegar sam­komu­bann stóð sem hæst,“ segir þar.

Mesta aukningin á Akranesi

Þrátt fyrir að þing­lýstum kaup­samn­ingum hafi fækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgar þeim víða utan þess á öðrum árs­fjórð­ungi . Mesta aukn­ingin var á Akranesi þar sem 57 pró­sent fleiri kaup­samn­ingum var þing­lýst. Aukn­ingin nam 18 pró­sentum á Akureyri og 12 pró­sentum á Árborg­ar­svæð­inu.

Um þennan mun milli svæða segir í hag­sjánni: „Það kemur örlítið á óvart að sjá svona mikla aukn­ingu á tímum þar sem kreppir að, og samn­ingum fækkar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þessi nið­ur­staða gæti verið til marks um það að fólk hafi í auknum mæli leitað út fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið í leit að hús­næði“

Samkvæmt hag­sjánni hefur um þriðj­ungur allra þing­lýstra kaup­samn­inga verið utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Á öðrum árs­fjórð­ungi í ár er hlut­fallið 45 pró­sent.

Samdráttur á höfuðborgarsvæðinu en aukning utan þess

Þá segir í hag­sjánni að fjölgun kaup­samn­inga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gerir það að verkum að sam­dráttur á öðrum árs­fjórð­ungi er ekki jafn mik­ill og búast hefði mátt við fyrir landið allt. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafi kaup­samn­ingum fjölgað um 0,5 pró­sent en fækkað um 31 pró­sent innan þess.

Að end­ingu er tekið fram að hafa beri í huga að mis­langur bið­tími eftir þing­lýs­ingu eftir sýslu­manns­emb­ættum geti að ein­hverju leyti skýrt ólíka þróun eftir land­svæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár