Fasteignaverð hækkar vegna minna framboðs

Fast­eigna­við­skipti voru mikil og verð hækk­aði hratt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sumar, en Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun telur að búast megi við miklum verð­hækk­unum í ljósi minnk­andi fram­boðs á fast­eignum til sölu.

Fast­eigna­mark­að­ur­inn hefur verið líf­legur í sumar, en mán­að­ar­leg verð­hækkun fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki verið jafn­mikil í rúm þrjú ár og hún var milli júní- og júlí­mán­aðar. Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun segir verð­hækk­an­irnar vera í ljósi minnk­andi fram­boðs íbúða til sölu, en búast megi við verð­hækk­unum á meðan eft­ir­spurnin er jafn­mikil og nú.

Samkvæmt nýj­ustu tölum Þjóð­skrár hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 1,2 pró­sent milli júní- og júlí­mán­aðar. Sams konar verð­hækkun hefur ekki verið jafn­mikil síðan í maí 2017, en þá hafði vísi­talan hækkað um 1,8 pró­sent frá mán­uð­inum á undan, líkt og sést á mynd­inni hér að neðan.

Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur einnig áfram að hækka eftir að hafa tekið skarpa dýfu síð­asta vetur og vor, en hún er núna á svip­uðum slóðum og hún var við árs­lok í fyrra.

Þriðji umfangsmesti mánuðurinn í fimm ár

Samkvæmt frétt Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar stað­festa nýju tölur Þjóð­skrár mikil umsvif á fast­eigna­mark­aði, en fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga ríf­lega tvö­fald­að­ist á milli júní og júlí. Ef litið er til veltu­talna var júlí þriðji umfangs­mesti mán­uð­ur­inn á fast­eigna­mark­aði í fimm ár, eða frá því í júlí 2015.

[adspot]

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans gerði aukin umsvif á fast­eigna­mark­aði einnig að umfjöll­un­ar­efni í Hagsjá sinni í gær, en hún telur lík­legt að um ein­hverja tíma­gjöf sé að ræða þar sem fáum kaup­samn­ingum var þing­lýst í mán­uð­unum á undan. Þó telur bank­inn það vera ljóst að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé líf­legur um þessar mundir þrátt fyrir veiru­far­aldur og efna­hags­legar afleið­ingar hans.

Verðhækkanir í ljósi minna framboðs

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun telur minnk­andi fram­boð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera útskýr­ingu á umræddum verð­hækk­unum, en sam­kvæmt síð­ustu mán­að­ar­skýrslu stofn­un­ar­innar voru um 1.700 íbúðir til sölu í júlí­mán­uði á meðan þær voru um 2.000 í maí síð­ast­liðnum. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur íbúðum til sölu einnig fækkað um 15% frá því um miðjan maí en ann­ars staðar á lands­byggð­inni hefur fækk­unin numið um 8%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár