Telur lága vexti og minni verðhækkanir hafa leitt til fleiri íbúðakaupa

Lágir vextir og hæg­ari verð­hækkun íbúða gætu verið meg­in­skýr­ingar á því að fjöldi fyrstu íbúða­kaupa hafi ekki verið meiri frá hruni á síð­asta árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt Íbúða­lána­sjóði.

Húsnæði Íbúðalánasjóðs í Borgartúni.
Húsnæði Íbúða­lána­sjóðs í Borg­ar­túni. Mynd: Bára Huld Beck

Fyrstu íbúða­kaup á öðrum árs­fjórð­ungi hafa ekki verið fleiri frá hruni. Íbúða­lána­sjóður telur aukn­ing­una í kaup­unum að mörgu leyti vera vegna minni verð­hækk­ana á hús­næði og lágra vaxta. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Í skýrsl­unni er farið yfir þróun fast­eigna-og leigu­mark­að­ar­ins á síð­ustu miss­erum, en sam­kvæmt henni hefur hækkun íbúða­verðs á árs­grund­velli verið um rúm fimm pró­sent og leigu­verðs um sjö pró­sent. Leigu­verðs­hækk­unin var nokkuð hærri en 5,9% hækkun launa­vísi­töl­unnar fyrir sama tíma­bil, en er í takti við með­al­tal árs­hækk­unar launa síðan 2012. Sömu­leiðis hefur hækkun íbúða­verðs verið hrað­ari en almenn verð­hækkun, en verð­bólga síð­ustu tólf mán­uði nam 2,7 pró­sentum í júlí síð­ast­liðnum.

Ekki fleiri frá hruni

Samkvæmt Íbúða­lána­sjóði hefur fyrstu íbúða­kaupum almennt fjölgað meira en ann­ars konar íbúða­kaupum síðan árið 2010. Þá voru fyrstu íbúða­kaup um 9% allra íbúða­kaupa en nú er hlut­fallið um 26%. Í fyrra kom ákveðið bakslag þar sem tíma­bundið dró úr fjölgun fyrstu íbúða­kaupa miðað við ann­ars konar íbúða­kaup. Á fyrri helm­ingi þessa árs sner­ist þró­unin aftur við og fyrstu íbúða­kaupum tók að fjölgum.

Lágir vextir og minni verðhækkanir

Í skýrsl­unni segir að leiða megi að því líkur að miklar verð­hækk­anir í fyrra hafi gert fyrstu íbúða­kaup erf­ið­ari og átt sinn þátt í því að fyrstu kaupum hætti að fjölga í fyrra. Að sama skapi megi leiða að því líkur að í ár hafi skap­ast aukið svig­rúm fyrir suma að ráð­ast í fyrstu íbúða­kaup í ljósi þess að íbúða­verð hafi ekki hækkað jafn mikið og í fyrra og vextir á íbúða­lánum hafi hald­ist lágir í sögu­legu sam­hengi.

Fyrirtæki kaupa minna

Íbúða­lána­sjóður tók einnig saman tölur Þjóð­skrár um hlut­fall íbúða­við­skipta eftir því hvort það er ein­stak­lingur eða fyr­ir­tæki sem kaupir og selur. Samkvæmt þeim tölum hefur íbúða­við­skiptum þar sem kaup­and­inn er fyr­ir­tæki farið fækk­andi und­an­farin miss­eri. Hlutfall fyr­ir­tækja í íbúða­kaupum hækk­aði mjög á seinni hluta árs 2012, þá einna helst í Reykja­vík vestan Kringlu­mýr­ar­brautar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár