Segir of lítið framboð vera á ódýrum íbúðum

Hag­fræð­ingur bendir á fram­boðs­skort íbúða til fyrstu kaup­enda, en sam­kvæmt honum ættu þær að vera á verð­bil­inu 30-40 millj­ónir króna.

Magnús Árni segir ekkert benda til þess að fasteignaverð lækki á næstunni
Magnús Árni segir ekk­ert benda til þess að fast­eigna­verð lækki á næst­unni Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hag­fræð­ing­ur­inn Magnús Árni Skúlason segir mikla vöntun vera á íbúðum á verð­bil­inu 30-40 millj­ónir á hús­næð­is­mark­aði fyrir ungt fólk, sem væri stærsti ald­urs­hóp­ur­inn í sam­fé­lag­inu. Þetta sagði Magnús Árni í við­tali við Bítið á Bylgj­unni í morgun.

Leigukynslóðin

[links]Magnús, sem vinnur hjá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Reykja­vík Economics, var spurður í við­tal­inu hvort það sé borin von fyrir for­eldra að senda börnin sín að heiman. Hann tekur undir áhyggjur um verri stöðu ungs fólks á íbúða­mark­aði á síð­ustu árum og segir þús­ald­ar­kyn­slóð­ina, sem er á þrí­tugs­aldri þessa stund­ina, oft vera kall­aða „leigu­kyn­slóð­ina.“ Þetta sé hins vegar sama þró­unin og er að eiga sér stað ann­ars staðar í Evrópu og í Banda­ríkj­unum, víða eigi ungt fólk erf­ið­ara með að kaupa íbúðir.

Á hinn bóg­inn segir Magnús Árni að fyrstu kaup­endum hafi verið að fjölga, að hluta til vegna fjölda nýrra úrræða sem hjálpa ungu fólki að kaupa hús­næði. Samkvæmt nýjum tölum Þjóð­skrár voru um 26 pró­sent allra kaup­samn­inga á fyrsta árs­fjórð­ungi fyrstu kaup­endur, en á Suð­ur­nesjum var hlut­fallið um 34%. Meiri­hluti íbúða í við­skiptum séu á verð­bil­inu 30-50 millj­ónir, en mark­að­ur­inn þynn­ist mjög hratt þegar íbúða­verð fer yfir 60 millj­ónir.

Stærsti aldurshópurinn

Magnús segir einnig mesta eft­ir­spurn vera eftir 30-40 milljón króna íbúðum, en hann telur fram­boð þeirra ekki vera nægt í dag. Því til stuðn­ings nefnir hann lágt hlut­fall íbúða sem selj­ast á undir 25 millj­ónir, þær séu 2% í dag miðað við um 25% árið 2015. Fyrstu kaup­endur eru margir á aldr­inum 20-29 ára, en sam­kvæmt Magnúsi er það stærsti ald­urs­hóp­ur­inn í sam­fé­lag­inu.

Annars konar hippatímabil

Hins vegar bendir Magnús einnig á að tíð­ar­and­inn hafi breyst og ungu fólki hafi ekki jafn­mikið á móti því að búa á leigu­mark­aði og nýta deili­hag­kerfið. Hann segir fólk hafa aðrar áherslur nú á dögum og kallar þetta „ann­ars konar hippa­tíma­bil.“ Þar noti fólk sam­eignir í meira mæli og fresta gjarnan barn­eignum, en það komi alltaf að því að maður þurfi að búa ein­hvers staðar.

Alltaf erfitt að kaupa fyrstu íbúð

Aðspurður hvort hann teldi þetta vera rétta tím­ann til að eign­ast íbúð segir Magnús að ekk­ert bendi til þess að fast­eigna­verð muni lækka í fram­tíð­inni. Akkúrat núna hafi vextir aldrei verið lægri, kaup­máttur verið mjög hár og ýmis úrræði séu fyrir fyrstu kaup­endur, en það hafi alltaf verið erfitt að kaupa fyrstu íbúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár