Hvernig er hægt að gera leigumarkaðinn öruggari?

Leigu­mark­að­ur­inn á Íslandi er óstöð­ugur og hefur hækkað hratt á und­an­förnum árum. Hvaða ástæður liggja að baki því og hvernig getum við bætt hann að mati sér­fræð­inga?

Sama hver lausnin á vandamálum leigumarkaðsins er mun ekkert breytast nema að afstaða Íslendinga til húsnæðisleigu breytist.
Sama hver lausnin á vanda­málum leigu­mark­aðs­ins er mun ekk­ert breyt­ast nema að afstaða Íslend­inga til hús­næð­is­leigu breyt­ist. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stefna íslenskra stjórn­valda um að betra sé að eiga en að leigja íbúð virð­ist hafa leitt til óör­yggis og sveiflna á leigu­mark­aði. Þrír hag­fræð­ingar hafa lagt fram til­lögur sínar til að sporna við þessum sveiflum, en allar eru þær eru ólíkar í eðli sínu. Gætu þessar breyt­ingar raun­veru­lega leitt til stærri og örugg­ari leigu­mark­aðar á Íslandi?

Lág­tekju­fólk greiddi á Íslandi að jafn­aði helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu árið 2016, meira en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum sam­kvæmt nýlegri skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. Hlutfall íbúa á leigu­mark­aði var einnig nokkuð lágt miðað við sömu löndin þrátt fyrir aukn­ingu síð­ari ára, en árið 2016 var það ein­ungis lægra í Noregi. Íslend­ingar virð­ast því leigja minna og búa við verri kost á leigu­mark­aði sam­an­borið við aðrar Norð­ur­landa­þjóðir.

Einfaldari ríkisafskipti

Þessi staða hefur ekki gerst að sjálfu sér, að mati Konráðs S. Guð­jóns­sonar, hag­fræð­ings Við­skipta­ráðs. 
Samkvæmt honum hefur sér­eign­ar­stefnan sem rekin hefur verið af stjórn­völdum skapað hvata til þess að eiga frekar en að leigja hús­næði. Slíkir hvatar eru til dæmis í formi nið­ur­greiddra lána, skatt­frjáls sér­eign­ar­sparn­aðar vegna kaupa á fyrstu fast­eign auk Leið­rétt­ing­ar­innar á hús­næð­is­lánum íbúða­kaup­enda. Konráð telur þessa þróun var­huga­verða, hún auki áhættu á hús­næð­is­mark­aði og leiði til minni sveigj­an­leika í búsetu.

Til þess að sporna við henni mælir hann með ein­földun rík­is­af­skipta á hús­næð­is­mark­aði, frekar ætti að leggja áherslu á skatta­lækk­anir á lág­tekju­hópa í stað vaxta­bóta á hús­næð­is­lánum. [adspot]

Aðkoma lífeyrissjóðanna

Líkt og Konráð segir Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur þá hugsun að Íslend­ingar „eigi að eiga“ hús­næði hafa leitt til meiri skuld­setn­ingar, hærra fast­eigna­verðs og óstöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aði. Í erindi sem hann hélt á fundi á vegum stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar á mánu­dag sagði hann að ein lausn á þessu vanda­máli gæti verið sú að auka aðkomu lang­tíma­fjár­festa að leigu­mark­aðnum á Íslandi, þá einna helst með leigu­fé­lögum sem líf­eyr­is­sjóð­irnir gætu átt og rekið. Slíkt myndi slá tvær flugur í einu höggi, öryggi á húsa­leigu­mark­aði myndi aukast auk þess sem leigu­hús­næði yrði arð­bær fjár­fest­ing fyrir sjóð­ina sjálfa.

Lang­tíma­fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna yrðu mikil við­brigði á húsa­leigu­mark­aðnum, en núver­andi leigu­fé­lög lána aðeins út til skamms tíma í senn. Sem dæmi má nefna Almenna leigu­fé­lagið, sem er í eigu Gamma, en þeirra „lang­tíma­leiga“ nær ein­ungis til þriggja ára. 

Hver er sanngjörn leiga?

Una Jóns­dóttir hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði tekur undir áhyggjur Konráðs og Ólafs um afleið­ingar sér­eign­ar­stefn­unnar. Í aðsendri grein á Kjarn­anum veltir hún því upp hvaða leigu­verð gæti talist sann­gjarnt og eðli­legt. Þar sem hús­næði sé nauð­synja­vara og öruggt aðgengi að þeim séu skil­greind sem mann­rétt­indi sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum væru rík­is­af­skipti óum­flýj­an­leg.

Þak á hækkun leigu­verðs gæti bætt öryggi á hús­næð­is­mark­aðnum, en hins vegar sé engin töfra­lausn til í þessum efnum.

Af hverju hefur ekkert verið gert fyrir leigumarkaðinn?

En hvers vegna hefur ekki verið ráð­ist í fram­kvæmd neinna áður­nefndra til­lagna þess­ara þriggja hag­fræð­inga nú þegar ef þær leiða allar til meira öryggis á húsa­leigu­mark­aði? Að hluta til virð­ist svarið liggja í sjálfs­styrkj­andi sam­bandi óör­uggs leigu­mark­aðar og sér­eign­ar­hugsun Íslend­inga.

Ólafur skrifar áhuga­leysi líf­eyr­is­sjóða á fjár­fest­ingu í leigu­í­búðum ann­ars vegar á íslenska við­horfið um að til lengri tíma sé betra að eiga heldur en að leigja. Hins vegar hafi húsa­leigu­mark­að­ur­inn verið of áhættu­samur fyrir lang­tíma­fjár­festa vegna skorts á upp­lýs­ingum, en Þjóðskrá hafi ein­ungis nýlega byrjað að birta tölur um ávöxtun leigu­í­búða á Íslandi. 

Í til­felli Unu og Konráðs virð­ist meg­in­vand­inn liggja í hug­ar­fari íslenskra stjórn­mála­manna. Samkvæmt Konráði hefur hús­næð­is­stefna rík­is­stjórn­ar­innar lagt of mikla áherslu á fólk eign­ist hús­næði þegar meg­in­á­skor­unin liggi í því að fólk eigi heim­ili, óháð eigna­fyr­ir­komu­lagi. Teikn eru á lofti um auk­inn póli­tískan þrýst­ing fyrir breyt­ingar á rétt­ar­stöðu leigj­enda, en bent hefur verið á þörf­ina á að end­ur­skoða lög um húsa­leigu sem og áhuga félags­mála­ráð­herra á miklum leigu­hækk­unum upp á síðkastið.

Flókið mál

Á hinn bóg­inn yrði ekki ein­falt að ná ráð­lögðum breyt­ingum í gegn að fullu. Afstaða líf­eyr­is­sjóð­anna í heild liggur ekki fyrir en Þórey Þórð­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, gagn­rýndi til­lögur Ólafs á fundi Eflingar og sagði óaðl­að­andi fyrir líf­eyr­is­sjóði að standa í rekstri leigu­fé­laga. Sjóð­irnir væru fyrst og fremst fjár­festar og myndu ein­ungis styrkja fjár­mögnun leigu­í­búða í gegnum hluta­fé­lög til þess að lág­marka áhætt­una.

[links]Sömu­leiðis gæti verið snúið að breyta reglu­verki á leigu­mark­aði án þess að tak­marka fram­boð. Hætta er á því að aukin rétt­indi leigj­enda gæti leitt til minni nýbygg­ingar á leigu­í­búðum vegna minni arð­semi. Slíkt myndi hafa þver­öfug áhrif og leiða til enn frekara óör­yggis á húsa­leigu­mark­aði.

Tillögur hag­fræð­ing­anna þriggja nálg­ast vanda­málið frá ólíkum hliðum. Hins vegar, hvort sem lausnin á óör­yggi leigu­mark­aðs­ins liggi í minni rík­is­af­skiptum, breyttri fjár­fest­ingu eða bættri rétt­ar­stöðu leigj­enda mun ekk­ert breyt­ast nema að afstaða Íslend­inga til hús­næð­is­leigu breyt­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár