Leigukakan stækkar hratt

Um 50 þús­und manns eru nú á leigu­mark­aði og hefur fjölg­unin verið hröð, sam­hliða mik­illi spennu á fast­eigna­mark­aði. Sárlega vantar fleiri eignir á markað.

Leigj­endum hefur fjölgað um tíu þús­und á sjö árum og fjöldi þeirra nú um 50 þús­und. Það er svipuð tala og sem nemur íbúa­fjölda í Kópavogi og Akureyri sam­an­lagt, um 14 pró­sent af íbúa­fjölda lands­ins. Algengt er að hlut­fallið sé á milli 20 og 30 pró­sent erlendis.

Að mati Íbúða­lána­sjóðs mun leigu­mark­að­ur­inn halda áfram að stækka á næstu árum, en sam­kvæmt könnun sjóðs­ins telja um 85 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði að þeir muni halda áfram að vera á honum næsta hálfa árið.

Vantar sárlega íbúðir á markaðinn

Fjölgun íbúða hefur engan veg­inn haldið í við fjölgun lands­manna, en í fyrra var fólks­fjölg­unin um tíu þús­und en íbúðum fjölg­aði um 1.768. Af þessum tíu þús­und voru um 8 þús­und erlendir rík­is­borg­arar, en að því er fram kemur í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs eru þeir lík­legri til að leigja hús­næði frekar en kaupa.

Íslend­ingar eru almennt á því að það sé óhag­stæð­ara að leigja en að búa í eigin hús­næði, en 92 pró­sent aðspurðra telja þetta vera veru­leik­ann.

Una Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri leigu­mark­aðs­mála hjá Íbúða­lána­sjóði, segir í til­efni af útkomu skýrslu sjóðs­ins, þar sem staðan á leigu­mark­aði er í brennid­epli, að leigu­mark­að­ur­inn mót­ist veru­lega af þeirri stað­reynd, að of lítið sé af hús­næði. „Könnunin birtir okkur þá mynd að leigu­mark­að­ur­inn glími enn við lítið fram­boð og að leigu­verð sé íþyngj­andi hjá stórum hópi fólks. Þessi staða veldur meðal ann­ars því að um 350 manns eru utan­garðs og hafa ekki fastan íveru­stað, 800 háskóla­nemar eru á bið eftir íbúð hjá Félags­stofnun Stúdenta og 1.600 manns bíða eftir félags­legu hús­næði hjá sveit­ar­fé­lög­unum. Þá má nefna að félags­legum íbúðum hefur fækkað um helm­ing frá árinu 1995. Ein afleið­ingin af skorti á hús­næði er að lægri tekju­hóp­arnir í sam­fé­lag­inu búa við lítið hús­næð­is­ör­yggi og tak­markað fjár­hags­legt svig­rúm vegna hás hús­næð­is­kostn­aðar. Fólkið á bak­við súlu­ritin í skýrsl­unni er að stóru leyti fjöl­skyldu­fólk sem eyðir um helm­ingnum af tekjum sínum eftir skatt í leigu. Þá eru öll önnur útgjöld heim­il­is­ins eftir. Þessi hópur hefur í raun ekki efni á því að leigja en stritar við að borga leig­una til að missa ekki hús­næðið. Það hefur verið gripið til aðgerða af hálfu stjórn­valda til að hjálpa að þessum hóp. Hús­næð­is­bætur hafa verið hækk­aðar frá ára­mótum og fleiri hafa sótt um þær fyrstu þrjá mán­uði árs­ins heldur en á sama tíma­bili í fyrra,“ segir Una.

Markaður einkennst af miklum hækkunum

Ljóst er að hækkun leigu­verðs og lítið fram­boð hefur mest áhrif á við­horf fólks til leigu­mark­að­ar­ins. Leigu­verð hefur hækkað mikið á und­an­förnum árum, eða um 82 pró­sent frá því árið 2011.

Það er í sam­ræmi við hækkun fast­eigna­verðs á sama tíma­bili. Þar hefur svo til allt lagst á eitt; auk­inn kaup­máttur fólks, gríð­ar­legur vöxtur í ferða­þjón­ustu og síðan of hæg upp­bygg­ing hús­næðis miðað við fólks­fjölgun. Þá hefur ytra umhverfið einnig verið okkur hag­fellt, svo sem lágt heims­mark­aðs­verð á olíu, en það hefur þó farið hækk­andi að und­an­förnu. Verð­bólga hefur því hald­ist í skefjum, þrátt fyrir mikla spennu í hag­kerf­inu.

Hún mælist nú 2,8 pró­sent á árs­grund­velli en verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent og hélst verð­bólgan undir því mark­miði í fjögur ár.

Verri fjárhagur leigjenda

Fjár­hags­staða leigj­enda er verri en hjá þeim sem eiga, að því er könnun Íbúða­lána­sjóðs leiðir í ljós. Um 44 pró­sent leigj­enda segj­ast geta safnað sparifé á móti 66 pró­sent fólks sem býr í eigin hús­næði. Greiðslu­byrði vegna leigu er oftar en ekki meiri en hjá fólki sem borgar af lánum í eigin íbúð.

Erfið staða leigj­enda er helsta ástæða þess að Íbúða­lána­sjóður hefur sett sér­stakan fókus á leigu­mark­að­inn og hafið ítar­legar grein­ingar á honum. Vantað hefur grein­ar­góðar upp­lýs­ingar um leigu­mark­að­inn en með til­komu sér­stakrar leigu­mark­aðs­deildar innan sjóðs­ins er hug­myndin að afla gagna til að geta brugð­ist við vand­anum hjá þeim sem standa verst og beint hússnæð­is­stuðn­ingi hins opin­bera á þá staði þar sem þörfin er mest.

Könnun Íbúða­lána­sjóðs um leigu­mark­að­inn fór fram í lok febr­úar og í byrjun mars. Hún var fram­kvæmd af Zenter og um var að ræða net­könnun. Úrtakið taldi 2500 ein­stak­linga, 18 ára og eldri, og svar­hlut­fall var 58 pró­sent, að því er segir í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár