Húsnæðisauglýsingum fjölgar aftur

Mán­að­ar­legt með­al­tal hús­næð­is­aug­lýs­inga á mbl.is hefur fjölgað nýlega, en fjölg­unin er sú mesta á þremur árum.

Fleiri fasteignaauglýsingar gætu bent til breyttra aðstæðna á fasteignamarkaði.
Fleiri fast­eigna­aug­lýs­ingar gætu bent til breyttra aðstæðna á fast­eigna­mark­aði. Mynd: Birgir Þór Harðarsson

Með­al­fjöldi aug­lýstra íbúða á vef mbl.is hefur auk­ist nokkuð á síð­ustu mán­uðum eftir að hafa minnkað nær stöðugt í þrjú ár. Samhliða því hefur með­al­tími íbúð­ar­hús­næðis á sölu lengst lít­il­lega í apríl og maí síð­ast­liðnum. 

Í nýbirtum hag­vísum Seðla­banka Íslands er mán­að­ar­legt með­al­tal aug­lýs­inga á fast­eigna­vef mbl.is tekið saman. Samkvæmt þeim tölum hefur fjöldi fast­eigna á sölu lækkað nær jafnt og þétt í takti við aukna spennu á hús­næð­is­mark­aði auk þess sem með­al­sölu­tími íbúð­ar­hús­næðis hefur lækkað veru­lega frá 2010.

[adspot]Hins vegar hefur magn íbúð­ar­hús­næðis hækkað frá apríl síð­ast­liðnum og er sú hækkun sú mesta sem átt hefur sér stað á þremur árum á mark­aðnum. Mest fjölg­aði íbúðum í fjöl­býli, en fjöldi ein­býla, rað­húsa og par­húsa jókst einnig lít­il­lega.

Svo virð­ist vera sem ein­hver árs­tíða­bundin sveifla sé í fast­eigna­aug­lýs­ingum þar sem þeim fjölgar oft á vor­mán­uðum. Hins vegar er umrædd fjölgun nokkuð meiri en hefur verið síð­ustu ár, sem gæti bent til breyt­inga á aðstæðum á fast­eigna­mark­aði. 

Sömu þróun má ekki greina á atvinnu­hús­næði, en fjöldi aug­lýstra atvinnu­fast­eigna hefur minnkað umtals­vert und­an­farin miss­eri og virð­ist ekki þró­ast í takt við íbúð­ar­hús­næði.

Kjarninn fjall­aði nýlega um raun­verð fast­eigna, en það hafi náð sögu­legum hæðum í apríl síð­ast­liðnum sam­kvæmt hag­sjá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. Í lok hag­sjár­innar var því velt fyrir sér hversu lengi kaup­endur sætti sig við þá þróun sem er í gangi, en nýleg aukn­ing fast­eigna­aug­lýs­inga gæti einmitt bent til breyttra aðstæðna á fast­eigna­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár