Reglur settar um hámark á fasteignalánum

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sett í gildi nýjar reglur um hámark á veð­setn­ing­ar­hlut­falli til fast­eigna­lána, þar fá kaup­endur fyrstu fast­eigna rýmri skil­yrði.

Kaupendur fyrstu fasteignar mega taka 90% lán, en aðrir 85%.
Kaup­endur fyrstu fast­eignar mega taka 90% lán, en aðrir 85%. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sett reglur sem hámarka leyfi­legt veð­setn­ing­ar­hlut­fall nýrra fast­eigna­lána. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu eft­ir­lits­ins í dag.

Samkvæmt reglum sem nú taka gildi skal veð­setn­ing­ar­hlut­fall vera að hámarki 85% af mark­aðsvirði fast­eignar. Und­an­þegin eru kaup á fyrstu fast­eign, en þar má veð­setn­ing­ar­hlut­fallið vera 90%.

Samkvæmt FME er til­gangur regln­anna að varð­veita fjár­mála­stöð­ug­leika og treysta við­náms­þrótt lán­veit­enda og lán­taka gagn­vart mögu­legum við­snún­ingi á fast­eigna­verði, þar sem vax­andi spennu gætir á hús­næð­is­mark­aði.

Fjár­mála­eft­ir­litið til­greinir einnig sér­stak­lega að þótt kveðið sé á um hámark hindri það ekki að letja lán­veit­endur til að beita lægri hámörkum almennt eða í ein­stökum til­fellum þegar við á.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­ráð tekur undir til­lögur FME og lítur svo á að regl­urnar séu til þess fallnar að mæta aðstæðum sem ógnað gætu fjár­mála­stöð­ug­leika eða haft óæski­leg áhrif á fjár­mála­kerfið.

Enn fremur segir Fjár­mála­eft­ir­litið að það muni meta í fram­tíð­inni hvort til­efni sé til þess að virkja önnur þjóð­hags­var­úð­ar­tæki með það að mark­miði að við­halda fjár­mála­stöð­ug­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár