Húsaleiga hækkað hraðar en fasteignaverð

Hækkun á húsa­leigu var nær þre­föld sam­svar­andi hækkun á fast­eigna­verði milli maí­mán­uða 2016 og 2017.

Fasteignaverð og leiguverð helst ekki alltaf saman.
Fast­eigna­verð og leigu­verð helst ekki alltaf saman. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 7,2% milli maí­mán­uða í ár og í fyrra, sem er rúm þre­föld hækkun á fast­eigna­verði í fjöl­býli fyrir sama tíma­bil. Mest hefur hækk­unin verið í Vesturbæ Reykja­víkur, en þar hefur leigu­verð á 4-5 her­bergja íbúðum auk­ist um rúman fjórð­ung. [adspot]

Í nýrri hag­sjá Lands­bank­ans er farið yfir fast­eigna­mark­að­inn og mun­inn á leigu- og kaup­verði síð­ustu ára. Þar er vísi­tala leigu­verðs byggð á þing­lýstum samn­ingum og er því reiknuð á sama hátt og leigu­vísi­tala Þjóð­skrár Íslands. Lands­bank­inn skiptir svo íbúð­ar­hús­næði í flokka eftir stað­setn­ingu og her­bergja­fjölda.

Misræmi milli kaup-og leiguverðs

[links]Samkvæmt hag­sjánni hafa breyt­ingar á leigu- og kaup­verði fjöl­býlis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fylgst nokkuð náið að frá árinu 2011 þegar Þjóðskrá birti vísi­tölu leigu­verðs. Um mitt sumar 2015 skildu hins vegar leiðir, en vísi­tala leigu­verðs lækk­aði veru­lega og dróst aftur úr vísi­tölu kaup­verðs. Slík hefur þró­unin verið allt þar til í júní í fyrra þegar veru­lega dró úr hækk­unum kaup­verðs. Síðan hefur dregið saman með þessum stærðum og leigu­verð hækkað hraðar en kaup­verð íbúða.

Fjórðungshækkun í Vesturbæ

Hæstu leigu­verðin má finna í Reykja­vík vestan Reykja­nes­brautar, en þar hefur leigu­verð stærri íbúða einnig hækkað einna mest á land­inu. Milli Reykja­nes­brautar og Kringlu­mýr­ar­brautar hækk­aði leiga á þriggja her­bergja íbúðum um 19,7%, en vestan Kringlu­mýr­ar­brautar auk Sel­tjarn­ar­ness hækk­aði leiga á 4-5 her­bergja íbúðum um 26,1%. Til sam­an­burðar lækk­aði leigu­verð á þriggja her­bergja íbúðum í Breið­holti um 5,1% og leiga á 4-5 her­bergja íbúðum í Garðabæ og Hafna­firði lækk­aði um 6,5%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár