Biður fólk um að fara varlega í íbúðarkaupum

Hag­fræð­ingur Íbúða­lána­sjóðs bíður fólk um að fara var­lega í fyrstu íbúð­ar­kaupum, eins og mál standa nú.

Spár um fasteignahækkanir ýta undir fasteignabólu, segir Una Jónsdóttir hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði.
Spár um fast­eigna­hækk­anir ýta undir fast­eigna­bólu, segir Una Jóns­dóttir hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði. Mynd: Kjarninn.

Fólk ætti að fara var­lega í fyrstu íbúða­kaupum í því ástandi sem nú er þegar íbúða­skortur ríkir, segir Una Jóns­dóttir hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði. Þá segir hún að spár um fast­eigna­hækk­anir ýta undir fast­eigna­bólu.

Þetta kemur fram í við­tali Unu við RÚV um stöðu og horfur á fast­eigna­markði.

Fast­eigna­verð hefur hækkað mikið að und­an­förnu, eða um 18,6 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum, miðað við tölur Hag­stof­unnar frá því í febr­úar.

Ástæða verð­hækk­ana er ekki síst sú að mikil vöntun er á íbúðum inn á markað á tímum þar sem eft­ir­spurn er mikil og kaup­máttur hjá almenn­ingi hefur farið batn­andi. Hvergi í heim­inum hefur fast­eigna­verð hækkað hraðar en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Upp­safn­aður mis­munur á fram­boði og eft­ir­spurn hús­næðis á Íslandi er um 4.600 íbúð­ir, sé tekið til­lit til þess að um 1.600 íbúðir séu á hverjum tíma í skamm­tíma­út­leigu til ferða­manna. Heild­ar­þörf á upp­bygg­ing­u ­í­búð­ar­hús­næð­is á næstu þremur árum er talin vera um níu þús­und íbúð­ir. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu sem Íbúða­lána­sjóð­ur­ hef­ur unnið að beiðni Þor­steins Víglunds­son­ar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, um vöntun á hús­næð­is­mark­aði á Ísland­i.

Þar segir enn fremur að fjölgun eigna hafi ekki hald­ist í hendur við mann­fjölda­þróun í land­inu á und­an­förnum árum. ­Grein­ing sjóðs­ins er hluti af ítar­legri grein­ingu á stöðu hús­næð­is­mála á land­inu sem Íbúða­lána­sjóð­ur­ ann­ast fyrir aðgerða­hóp um hús­næð­is­vand­ann sem fjórir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar sitja í. Hóp­ur­inn mun skila til­lögum um úrbætur í hús­næð­is­málum í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár