Raunverð fasteigna aldrei verið hærra

Hækkun fast­eigna­verðs hefur verið með ein­dæmum síð­ustu mán­uði og spurn­ing hve lengi kaup­endur sætta sig við þá þróun sem er í gangi, segir hag­fræði­deild Lands­bank­ans.

Raunverð fast­eigna er nú orðið hærra en það hefur nokkru sinni verið. Áður hafði það farið hæst í októ­ber árið 2007, en í apríl fór raun­verðið tæp­lega 1% yfir það. Þetta kemur fram í nýrri hag­sjá frá hag­fræði­deild Lands­bank­ans.

Þjóðskrá Íslands birti í gær tölur um fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl síð­ast­liðnum, en verðið hækk­aði um 2,2 pró­sent milli mán­aða. Fjölbýli hækk­aði um 2,6 pró­sent en sér­býli um 1,1 pró­sent frá því í mars. Samkvæmt töl­unum hefur verð á fjöl­býli hækkað um 23,2 pró­sent á síð­asta árinu. Á sama tíma­bili hefur verð á sér­býli hækkað um 21,6 pró­sent og heild­ar­hækk­unin er 22,7 pró­sent á tólf mán­uðum. Í hag­sjánni kemur fram að lengi vel hafi árs­hækkun fast­eigna­verðs verið á bil­inu átta til tíu pró­sent en nú sé hún komin vel yfir 20 pró­senta markið.

Vegna þess hvað verð­bólga hefur verið lág og stöðug síð­ustu þrjú ár hefur raun­verð fast­eigna hækkað mun meira en ella, og raun­verð fast­eigna hefur hækkað um 25 pró­sent á einu ári.

Þá kemur fram í hag­sjánni að á árunum 2011 til 2013 var nokkuð sterk fylgni á milli þró­unar fast­eigna­verðs og kaup­máttar launa. Frá miðju ári 2013 og næstu tvö ár þar á eftir tók fast­eigna­verðið fram úr kaup­mætt­inum, en sú þróun gekk aðeins til baka frá vori 2015 og til vors 2016. Frá þeim tíma hefur fast­eigna­verðið hækkað mun hraðar en kaup­máttur launa, sér­stak­lega allra síð­ustu mán­uði. Þetta ger­ist bæði vegna þess að hægst hefur á kaup­mátt­ar­aukn­ingu og fast­eigna­verðið hefur hækkað miklu meira en áður.

„Það er ekki lengur kaup­mátt­ar­aukn­ingin sem leikur meg­in­hlut­verk í að þrýsta verði fast­eigna upp á við. Meg­in­á­stæða mik­illa verð­hækk­ana und­an­farið er vafa­laust mik­ill skortur á fram­boði hús­næðis og ótti við að sú staða eigi eftir að versna,“ segir í hag­sjánni. Kaupgeta fólks hafi almennt auk­ist í takt við auk­inn kaup­mátt og hærra atvinnustig, þannig að sífellt fleiri bít­ist um íbúð­irnar sem koma á mark­að­inn. Framboð á eignum sé minna en verið hefur und­an­farin tíu ár.

„Hækkun fast­eigna­verðs hefur verið með ein­dæmum síð­ustu mán­uði og spurn­ing hve lengi kaup­endur sætta sig við þá þróun sem er í gangi,“ segir í lok hag­sjár­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár