Samdráttur á kaupum atvinnuhúsnæðis en ekkert hrun í leigu

Ennþá er nokkur eft­ir­spurn eftir leigu á avinnu­hús­næði, þrátt fyrir að minna hefur verið keypt af þeim á síð­ustu mán­uðum. Fast­eigna­fé­lög segja núver­andi vanda aðeins ein­skorð­ast við ferða­þjón­ustu og aðila í veit­inga­geira.

Ennþá er töluverð eftirspurn eftir leigu atvinnuhúsnæðis.
Ennþá er tölu­verð eft­ir­spurn eftir leigu atvinnu­hús­næðis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi kaup­samn­inga á atvinnu­hús­næði hefur dreg­ist saman um rúman fjórð­ung á fyrri helm­ingi árs­ins, auk þess sem verð þeirra hefur lækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Samkvæmt fast­eigna­fé­lögum er eft­ir­spurnin þó ennþá fín og er sam­drátt­ur­inn aðeins bund­inn þeim fyr­ir­tækjum sem hafa þurft að draga úr starf­semi sinni vegna sótt­varn­ar­að­gerða.

Samkvæmt gögnum Þjóð­skrár um þing­lýsta kaup­samn­inga atvinnu­hús­næðis voru þeir að með­al­tali 69 á mán­uði á fyrri helm­ingi árs­ins, þar af 33 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 36 utan þess. Ef miðað er við sama tíma­bil í fyrra hefur þeim fækkað um 27%, en fækk­unin var svipuð bæði innan og utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Meiri samdráttur en á íbúðamarkaði

Sam­drátt­ur­inn á mark­aði atvinnu­hús­næðis er tölu­vert meiri en á íbúða­mark­aði, þar sem þing­lýstum kaup­samn­ingum íbúða hefur aðeins fækkað um 14% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er mun­ur­inn ennþá meiri, þar sem fjöldi keyptra íbúða jókst á sama tíma­bili um 5%.

Hálfs árs með­al­töl kaup­samn­inga atvinnu­hús­næðis má sjá á mynd hér að neðan. Samkvæmt henni hefur fjöldi kaup­samn­inga á atvinnu­hús­næði minnkað nokkuð stöðugt á höf­uð­borg­ar­svæð­inuá síð­ustu þremur árum. Ekki er að greina mikla breyt­ingu á síð­ustu sex mán­uðum á þeirri þróun. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur þró­unin einnig verið svipuð.

Leigumarkaðurinn góður en tegundaskiptur

Samkvæmt fast­eigna­fé­lögum virð­ist leigu­mark­að­ur­inn á atvinnu­hús­næði þó hafa gengið ágæt­lega á síð­ustu mán­uðum. Garðar Hannes Frið­jóns­son, for­stjóri Eikar telur sum­arið hafa verið ágætt, en þó mjög teg­unda­skipt. „Sú starf­semi sem er tengd ferða­manna­geir­anum eða verður fyrir veru­legum áhrifum vegna settra tak­markanna gengur ekki vel, en ann­ars staðar virð­ist vera nokkuð góður gangur í þjóð­fé­lag­inu almennt.” sagði Garðar í sam­tali við Kjarnann.

Páll V. Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri atvinnu­hús­næðis og almenns hús­næðis hjá Reginn tekur í sama streng: „Eft­ir­spurn eftir hús­næði er fín, við finnum sér­stak­lega fyrir sterkri eft­ir­spurn eftir vönd­uðum skrif­stofu­rýmum. Töluvert hefur verið leigt út af hús­næði hjá okkur í sumar og er útleiga á pari við 2019. Vandinn virð­ist vera fyrst og fremst hjá aðilum sem byggja afkomu sína á erlendum ferða­mönnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár