Fleiri kaupa utan Reykjavíkur

Talið er að vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans hafi komið í veg fyrir mikla nið­ur­sveiflu á íbúða­mark­aðnum, sem tekið hefur við sér að nokkru leyti á síð­ustu mán­uðum. Fleiri kjósa þó að kaupa fast­eign utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins heldur en innan þess.

Meiri áhugi virðist vera á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins.
Meiri áhugi virð­ist vera á íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íbúða­mark­að­ur­inn virð­ist vera að taka við sér eftir stutta lægð vegna afleið­inga COVID-far­ald­urs­ins í vor. Að mati hag­fræð­ings er auknum umsvifum fyrst og fremst skjótum við­brögðum stjórn­valda og Seðla­bank­ans að þakka. Hins vegar má greina breytt mynstur í fast­eigna­kaupum á síð­ustu tveimur mán­uðum, þar sem færri hafa keypt íbúð í Reykja­vík og nágrenni á meðan stór­aukn­ing hefur verið í fjölda kaup­samn­inga í öðrum bæj­ar­fé­lögum.

Vísbendingar um aukinn þrýsting

Samkvæmt nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) bendir margt til auk­ins þrýst­ings á fast­eigna­mark­aði. Fast­eigna­verð milli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði mikið milli ára í maí, en hækk­unin hefur ekki verið meiri síðan í nóv­em­ber 2018.

Einnig hefur með­al­sölu­tími íbúða styst frá því í fyrra, auk þess sem hrein ný útlán bank­anna vegna íbúða­kaupa hafa aldrei verið meiri en í maí síð­ast­liðnum. HMS tekur þó fram að hluti þess­ara nýju útlána séu vegna end­ur­fjár­mögn­unar gam­alla lána og skili sér ekki endi­lega í nýjum íbúða­kaupum.

Metfjöldi tekinn af söluskrá

Hins vegar er mögu­legt að íbúða­kaup séu einnig að aukast, en í maí og júní hefur fjöldi íbúða sem hafa verið teknar af sölu­skrá verið með mesta móti.

„Sé íbúð tekin úr birt­ingu merkir það yfir­leitt að hún hafi verið seld (kauptil­boð sam­þykkt), en einnig gæti það verið vegna þess að eig­andi íbúðar hafi hætt við sölu. Þannig má mögu­lega fá vís­bend­ingar um veltu á fast­eigna­mark­aði fyrr en ella þar sem tals­verður tími getur liðið frá sam­þykkti kauptil­boðs þar til kaup­samn­ingi hefur verið þing­lýst,” segir í skýrsl­unni.

„Glettilega gott” ástand miðað við aðstæður

Ari Skúlason, hag­fræð­ingur í Hag­fræði­deild Lands­bank­ans, tekur í svip­aðan streng og sagði stöð­una á fast­eigna­mark­aði sé betri en reiknað hafi verið með í Viku­lok­unum á RÚV í gær. Þrátt fyrir að við­skipti á hús­næð­is­mark­aðnum hafi verið um þriðj­ungi minni síð­asta vor en hann var fyrir ári síðan sé það nokkuð gott miðað við útlitið í efna­hags­líf­inu. „Miðað við þá stöðu sem við erum í, miðað að við séum í ein­hverri dýpstu kreppu sem við höfum nokkurn tím­ann lent í, þá held ég að það ástand sé bara gletti­lega gott,” segir Ari.

Kólnun í höfuðborginni en stóraukning annars staðar

Samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá (hér og hér) má ekki enn sjá þá aukn­ingu þing­lýstra kaup­samn­inga sem búist var við í skýrslu HMS, en fjöldi þeirra stóð nán­ast í stað á milli maí og júní.

Á síð­ustu mán­uðum hefur þó mikil breyt­ing átt sér stað í stað­setn­ingu nýrra fast­eigna­kaupa, en kaup­samn­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fækkað mikið á meðan önnur bæj­ar­fé­lög hafa verið í stór­sókn.

Eins og myndin hér að ofan sýnir voru fleiri kaup­samn­ingar þing­lýstir utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en innan þess í júní, en það er í fyrsta skipti sem slíkt ger­ist frá því mæl­ingar Þjóð­skrár á kaup­samn­ingum hófust. Mest var fjölg­unin á Akureyri, en þar voru kaup­samn­ingar nær tvö­falt fleiri í júní miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Vaxtalækkanir hafi skilað sér

Una Jóns­dóttir, hag­fræð­ingur í hag­fræði­deild Lands­bank­ans, segir inn­grip stjórn­valda og Seðla­bank­ans hafa mildað núver­andi efna­hags­á­fall í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Þar nefnir hún sér­stak­lega skjótar stýri­vaxta­lækk­anir í kjöl­far útbreiðslu COVID-19 far­ald­urs­ins, en sam­kvæmt henni hafa þær komið í veg fyrir meiri­háttar bakslag í eft­ir­spurn.

„Áhrif vaxta­lækk­ana hafa gert vart við sig á íbúða­mark­aði. Vextir á íbúða­lánum hafa víð­ast hvar lækkað og eru orðnir mjög lágir, sögu­lega séð. Þetta hefur það í för með sér að greiðslu­byrði af lánum lækkar og þar með aukast ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila,“ skrifar Una.

Heilbrigður íbúðamarkaður

Þó bætir hún við að erfitt sé að spá fyrir um gang mála, en núver­andi staða á íbúða­mark­aði bendi til þess að íbúða­mark­að­ur­inn sé nokkuð heil­brigður enn sem komið er. Hag­fræði­deild Lands­bank­ans gaf út verð­spá fyrir íbúða­mark­að­inn í maí, en hún gengur út frá því að íbúða­verð hald­ist nokkurn veg­inn óbreytt það sem eftir er árs.

Grein Unu í heild sinni má lesa í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár