Rúmlega 27 þúsund færri störf mönnuð á öðrum ársfjórðungi en í fyrra

Samkvæmt nýrri starfa­skrán­ingu frá Hagstofu Íslands voru 2.600 laus störf á Íslandi á öðrum árs­fjórð­ungi, en stör­f­unum sem voru mönnuð á íslenskum vinnu­mark­aði fækk­aði um rúm­lega 27 þús­und á milli ára.

Mörg störf hafa horfið vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á ferðaþjónustuna.
Mörg störf hafa horfið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á ferða­þjón­ust­una. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt nýrri starfa­skrán­ingu Hagstofu Íslands voru 198.700 störf mönnuð á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs, en það eru 27.200 færri störf en mönnuð voru á sama tíma­bili í fyrra. Laus störf voru einnig mun færri, eða 2.600 á nýliðnum árs­fjórð­ungi á móti 6.200 í fyrra.

Hlutfall lausra starfa á íslenskum vinnu­mark­aði á síð­asta árs­fjórð­ungi var því um 1,3 pró­sent, á móti 2,7 pró­sentum í fyrra.

Starfa­skrán­ing Hag­stof­unnar er árs­fjórð­ungs­leg úrtaks­rann­sókn sem gerð er hjá fyr­ir­tækjum á íslenska vinnu­mark­aði sem hafa fleiri en einn starfs­mann að með­al­tali í vinnu á árs­grund­velli.

Rann­sóknin var fyrst fram­kvæmd á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. Því þarf ekki að koma á óvart að fjöldi starfa hefur aldrei verið jafn lágur í þess­ari mæl­ingu, enda hefur staðan á íslenskum vinnu­mark­aði verið erfið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Erfiðir tímar á vinnumarkaði

Atvinnu­leysi á Íslandi hefur aldrei verið jafn mikið og und­an­farna mán­uði og hafa tug­þús­undir verið án vinnu eða í skertu starfs­hlut­falli. Heild­ar­at­vinnu­leysi náði hæstu hæðum í apríl, þegar það mæld­ist 17,8 pró­sent.

Samkvæmt þjóð­hags­spá Hag­stof­unnar sem kom út í lok júní er búist við því að atvinnu­leysi innan árs­ins verði að með­al­tali 8,2 pró­sent, sem yrði það mesta í lýð­veld­is­sög­unni.

Fyrra metið var sett árið 2010, í kjöl­far banka- og efna­hags­hruns­ins sem varð á árunum 2008 og 2009, þegar 7,6 pró­sent lands­manna voru án atvinnu að með­al­tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár