Telja almannahagsmuni standa til þess að starfsleyfi Creditinfo verði endurskoðað

Neyt­enda­sam­tökin og ASÍ gera ýmsar „alvar­legar athuga­semdir“ við starf­semi Creditinfo varð­andi skrán­ingu á van­skila­skrá. Samtökin segja almanna­hags­muni standa til þess að starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins, sem Per­sónu­vernd gefur út, verði end­ur­skoðað.

Neytendasamtökin og ASÍ telja meðal annars að 50.000 króna skuld sé allt of lág upphæð til að verðskulda skráningu á vanskilaskrá.
Neyt­enda­sam­tökin og ASÍ telja meðal ann­ars að 50.000 króna skuld sé allt of lág upp­hæð til að verð­skulda skrán­ingu á van­skila­skrá. Mynd: 123RF

Neyt­enda­sam­tökin og Alþýðu­sam­band Íslands telja að almanna­hags­munir standi til þess að end­ur­skoða starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins Creditinfo, sem heldur van­skila­skrá yfir ein­stak­linga á Íslandi, sem flestar inn­lendar lána­stofn­anir nýta sér. Samtökin segja „full­reynt“ að fyr­ir­tækið sjálft taki frum­kvæði að því að verja hags­muni þeirra sem skráðir eru á van­skila­skrá.

Í sam­eig­in­legri umsögn sinni um starfs­leyfi Creditinfo til Per­sónu­verndar gera sam­tökin ýmsar athuga­semdir við starf­semi Creditinfo, sem háð er starfs­leyfi frá Per­sónu­vernd. Fjallað er um þessar athuga­semdir á vef Neyt­enda­sam­tak­anna í dag.

Þar kemur meðal ann­ars fram að sam­tökin telji að „svona umfangs­mikil skrán­ing við­kvæmra per­sónu­upp­lýs­inga væri betur farið á höndum hins opin­bera,“ en ef stjórn­völd feli einka­fyr­ir­tæki skrán­ing­una væri rétt og eðli­legt að ríkar skyldur væru lagðar á fyr­ir­tækið og óheimil vinnsla þess á per­sónu­upp­lýs­ingum ætti að telj­ast brot á starfs­leyfi og varða við­ur­lögum sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum.

Vilja virkt eftirlit og endurskoðun á viðskiptagrundvelli

Samtökin telja mik­il­vægt að virkt eft­ir­lit sé með starf­sem­inni og að tryggt verði að brot gegn starfs­leyfi fái ekki að við­gang­ast í margar vikur, mán­uði eða ár, án þess að brugð­ist sé við. Þau benda á að sam­kvæmt heima­síðu Per­sónu­verndar verði ekki annað séð en að allir úrskurðir Per­sónu­verndar varð­andi Creditinfo séu til­komnir vegna kvart­ana þess sem telur á sér brotið eða ábend­inga utan­að­kom­andi aðila.

„Þá telja sam­tökin mik­il­vægt að við­skipta­grund­völlur Creditinfo verði skoð­aður í tengslum við end­ur­skoðun starfs­leyf­is­ins. Er þar sér­stak­lega horft til þess að tryggt verði að fyr­ir­tækið hafi ekki beina veru­lega hags­muni, s.s. fjár­hags­lega, af skrán­ingu eða við­skiptum við inn­heimtu­fyr­ir­tæki sem nýta sér heim­ild til skrán­ingar á van­skila­skrán­ingar. Kann að vera nauð­syn­legt að setja slíkri starf­semi og tengslum frek­ari skorður. Í það minnsta telja sam­tökin brýnt að aft­ur­köllun starfs­leyf­is­ins og beit­ing við­ur­laga, s.s. sekta, verði í reynd virk úrræði til þess verja hags­muni almenn­ings,“ segir á vef Neyt­enda­sam­tak­anna, þar sem einnig er farið yfir þau atriði sem gerðar voru athuga­semdir við.

Telja 50.000 kr. of lága skuld til að verðskulda skráningu á vanskilaskrá

Meðal ann­ars eru gerðar athuga­semdir við að heim­ildir í núgild­andi starfs­leyfi vísi í brott­fallin lög, gömlu per­sónu­vernd­ar­lögin, sem féllu úr gildi er þau nýju tóku gildi í júní árið 2018. Starfs­leyfið var gefið út í febr­úar það sama ár.

Einnig telja sam­tökin að það þyrfti að hækka veru­lega þá upp­hæð skuldar sem heim­ilt er að að skrá á van­skila­skrá, en sam­kvæmt starfs­leyf­inu eins og það er í dag getur fólk lent á van­skila­skrá vegna 50.000 króna skuldar.

„Upphæðin hefur ekki breyst í áraraðir og þarf að hækka hana veru­lega, sér í lagi í ljósi veru­legra íþyngj­andi áhrifa sem skrán­ing á van­skila­skrá hefur í för með sér,“ segja sam­tökin, sem einnig gera athuga­semdir við að Creditinfo sé heim­ilt að geyma per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar í fjögur ár og stundum mun lengur.

Einnig telja Neyt­enda­sam­tökin og ASÍ það „með öllu óásætt­an­legt, stórfurðu­legt og öfug­snúið“ að Creditinfo hafi hugs­an­lega hag af því að lána­stofn­anir sem nýta sér þjón­ustu Creditinfo brjóti gegn skil­málum starfs­leyf­is­ins, en geri þær það, þá hækkar áskrift­ar­gjaldið sem lána­stofn­an­irnar greiða Creditinfo. Sektin ætti fremur að renna til þess sem brotið er á, eða í rík­is­sjóð, að mati sam­tak­anna.

„Mjög mikilvægt“ að Creditinfo veiti tölfræðilegar upplýsingar

Samtökin telja það einnig „eðli­legt og í raun mjög mik­il­vægt“ að gerð verði krafa um að Creditinfo verði skylt að veita stjórn­völdum töl­fræði­legar upp­lýs­ingar um hvaða­eina sem varðar van­skila­skrána og ekki er per­sónu­grein­an­legt.

„Þar með talið, en ekki ein­skorðað við; upp­lýs­ingar um fjölda skrán­inga, teg­undir lána, aldur lán­taka, búsetu ofl. Slíkar upp­lýs­ingar eru mjög mik­il­vægar í sam­fé­lags­legu til­liti. Má nefna að eng­inn hefur t.a.m. aðgang að upp­lýs­ingum um umfang van­skila vegna smá­lána. En Creditinfo hefur sem dæmi marg­ít­rekað hafnað að veita yfir­völdum og félaga­sam­tökum upp­lýs­ingar um umfang smá­lána­starf­sem­innar á Íslandi,“ segja Neyt­enda­sam­tökin og ASÍ.

Samtökin segja einnig að það þurfi að herða á virku eft­ir­liti og raun­veru­legum við­ur­lögum við brotum frá því sem nú er, enda sýni sagan að Creditinfo gríi „seint og illa til aðgerða gagn­vart við­skipta­vinum sínum sem brjóta inn­heimtu­lög“ og Per­sónu­vernd bregð­ist ekki við brotum nema skuld­ari kvarti sér­stak­lega undan starfs­háttum Creditinfo.

Þá gera sam­tökin athuga­semdir við þá til­högun að meintur skuld­ari þurfi sjálfur að færa sönnur á skuld­leysi sitt. Það segja sam­tökin öfuga sönn­un­ar­byrði, sem brjóti í bága við meg­in­stefnu neyt­enda­réttar. Þessu þarf að breyta, að mati Neyt­enda­sam­tak­anna og ASÍ, á þann hátt að Creditinfo þurfi á hverjum tíma að geta fært sönnur á rétt­mæti kröfu sem skráð er á van­skila­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár