Mælskuklækir fremur en rökræður?

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, svarar Ragnari Árnasyni, pró­fessor emeritus í hag­fræði.

Mælsku­klækir eru alls konar. Ein aðferð, sem jafnan er kennd við strá­menn, er að afflytja mál­flutn­ing and­stæð­ings og tæta svo niður hinn afbak­aða mál­stað. Önnur aðferð er að rugla saman auka­at­riðum og aðal­at­riðum, láta minni­háttar atriði sem styðja mál­stað máls­flytj­anda fá mikið vægi og mikla umfjöllun, fjalla um önnur og mik­il­væg­ari í auka­setn­ingu eða bara alls ekki. Þriðja aðferðin er að vísa með almennum hætti til þess að mál­flutn­ingur and­stæð­ings­ins stríði gegn alþekktum sann­indum. Fjórða aðferðin er svo að end­ur­taka þvæl­una nógu oft í þeirri von að hún verði að við­teknum sann­indum.

Fyrr­ver­andi kollegi minn beitir öllum þessum aðferðum óspart í deilu við mig og fram­kvæmda­stjóra Félags atvinnu­rek­enda þar sem m.a. er fjallað um hvort vernd­ar­stefna sé vond hug­mynd sem kreppu­lausn. Kollegi minn segir fram­kvæmda­stjór­ann m.a. tala fyrir toll­frjálsum og óheftum inn­flutn­ingi á land­bún­að­ar­af­urðum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir á hinn bóg­inn eftir að hafa lesið grein kollega míns: „Nú hef ég lesið mín eigin skrif aftur til að ganga úr skugga um hvort þar hafi verið um ein­hverja ósjálf­ráða skrift að ræða, en finn þessum full­yrð­ingum pró­fess­ors­ins engan stað.“ Hér er flett ofan af þeirri aðferð kollega míns að afflytja og tæta svo niður hinn afflutta mál­stað.

[adspot]Í grein í Kjarn­anum 7. jan­úar sýni ég hvernig þessi fyrrum kollegi beitir þeirri aðferð að rugla saman auka­at­riðum og aðal­at­riðum af mik­illi bíræfni. Kolleg­inn vitnar til 4.000 síðna alfræði­rits útgef­ins árið 2008 full­yrð­ingum sínum til stuðn­ings. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að grunn­heim­ildir eru ætt­aðar frá árunum 1940 til 1953-4. Kolleg­inn skautar létti­lega fram­hjá þeirri stað­reynd að hag­fræð­ingar hafa tekið til­gátur í þeim heim­ildum til gagn­rýn­innar end­ur­skoð­unar síðan þá, sjá hér og hér og hér. Nið­ur­stöður hag­fræð­inga sem hafa fjallað um til­gát­una um þjóð­hags­lega hag­kvæmni inn­flutn­ings­tolla eftir miðja síð­ustu öld eru sam­kvæmt fram­an­greindum heim­ildum þær að þó svo slíkir tollar geti verið hag­kvæmir að gefnum afar þröngum og sér­tækum for­sendum, þá gildi það alls ekki sem almenn nið­ur­staða.

[links]Kollegi minn gerir sér mik­inn mat úr því að flestar þjóðir leggi tolla eða aðrar inn­flutn­ings­hömlur á afurðir land­bún­aðar. Hann lætur undir höfuð leggj­ast að nefna að frá lokum seinni heims­styrj­aldar hafa þjóðir heims lagt ómælda vinnu í að lækka tolla og draga úr við­skipta­hindr­unum. Helsta fyr­ir­staða í þeirri vinnu hefur komið frá fram­leið­endum inn­an­lands sem hafa átt mis­góðan aðgang að rík­is­stjórnum og þjóð­þingum. Tollar sem falla undir samn­inga sem kenndir eru við GATT 1947 hafa fallið úr 25-40% í 2-3% að með­al­tali á ára­bil­inu frá 1947 til alda­mót­anna 2000. Enda er nú svo komið að tolla­tekjur eru aðeins um 0,4% af tekjum rík­is­sjóðs en voru 38% árið 1945.

Ætli þjóðir heims hefðu haldið þessum samn­inga­app­arötum gang­andi ef það væri almennt hag­fræði­lega við­ur­kennt að tollar væru hag­fræði­leg nauð­syn? Gæti verið að sú stað­reynd að tollum og inn­flutn­ings­tak­mörk­unum er enn beitt í land­bún­aði eigi sér frekar skýr­ingu í upp­bygg­ingu kosn­inga­kerfa og vægi atkvæða eftir lands­hlutum í ein­stökum ríkjum? Getur verið að hér sé ekki um hag­fræði­legt vanda­mál að ræða heldur stjórn­mála­legt? Slít ég svo þessum rit­þræði þó kollega mínum fyrr­ver­andi sé vissu­lega frjálst að halda áfram að kynna færni sína í beit­ingu mælsku­klækja.

Höfundur er pró­fessor í hag­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagfræði

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár