Bjarni: Ekkert annað á ferðinni en frumhlaup starfsmanns stýrinefndarinnar

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í morgun til að ræða ráðn­ingu rit­stjóra tíma­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, mætti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, mætti fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun. Mynd: Skjáskot/Alþingi

„Fyrir mér er ekk­ert annað á ferð­inni en eitt­hvað frum­hlaup starfs­manns sem síðan lendir í vondri stöðu þegar við bregð­umst við með þeim hætti að við teljum að Þor­valdur falli ekki að þessum við­miðum sem við höfum haft, auk þess sem ég hef sagt og stend við það að ég held að hann sé ekki heppi­legur sam­starfs­að­ili ráðu­neyt­is­ins fyrir þetta verk­efni.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun. Á fund­inum átti að ræða verk­lag ráð­herr­ans við til­nefn­ingar í stöð­ur.

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að starfs­­maður fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­­­mála­ráðu­­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­­nefnd­­ar­innar að ráðu­­neytið gæti ekki stutt að Þor­­valdur Gylfa­­son, hag­fræð­i­­pró­­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­­stjóri nor­ræna fræða­­tíma­­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

Ekki hefðbundið umsóknarferli

„Þetta mál er þannig vaxið að fjár­mála­ráðu­neytin á Norð­ur­lönd­unum, undir hatti Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, eiga með sér sam­starf um útgáfu þessa rits og það mun hafa verið á fyrri hluta þessa árs að menn byrj­uðu að ræða saman um það að velja þyrfti rit­stjóra fyrir þetta tíma­rit. Þá eins og venja var til að leggja í púkk nöfn – en þetta er ekki hefð­bundið umsókn­ar­ferli, þetta er ekki ferli sem er skrifað út í lögum eða með öðrum hætti sam­bæri­legt með stöðum sem losna heldur er þetta sam­starf um útgáfu rits sem er ætla að styðja við stefnu­mótun ríkj­anna,“ sagði Bjarni á fund­inum.

[links]Þannig að efn­is­tökin í ritið væru valin í sam­ráði fjár­mála­ráðu­neyt­anna – þannig að þær fræði­greinar sem fædd­ust í þessu sam­starfi væru inn­legg inn í þá stefnu­mótun sem ætti sér stað í ríkj­unum á Norð­ur­lönd­unum. „Þetta hefur okkur þótt mik­il­vægt,“ sagði Bjarni.

Hann sagði enn fremur að það hefði verði þeirra upp­legg frá upp­hafi í þessu sam­tali sem farið hefði fram með óform­legum hætti að æski­legt væri að sá sem myndi velj­ast til starfs­ins yrði ein­stak­lingur sem hefði nýlega reynslu af stefnu­mótun í þessum mála­flokki. Að við­kom­andi hefði sömu­leiðis reynslu og hefði stundað ein­hver fræði­skrif á við­kom­andi sviði. Einnig sagði Bjarni að þau hefðu talið að tíma­bært væri að kona rit­stýrði rit­inu.

Nafn Þorvaldar kom þeim í opna skjöldu

„Eins og þetta ger­ist í svona óform­legu sam­tali milli ríkja þá eru mörg nöfn nefnd til sög­unnar. Þau eru ekki öll alþjóð­lega þekkt eða á vit­orði allra kollega milli ráðu­neyta land­anna og það spil­að­ist þannig úr þessu að okkar til­lögur í þessu efni loð­uðu ekki lengi við í umræð­unni þó að þeim hafi verið gef­inn gaumur. Og síðan þegar líður fram á haustið þá heldur þessi vinna áfram og það kom okkur í opna skjöldu þegar kemur til­laga að nafni Íslend­ings inn á þennan vett­vang. Nafn sem ég hef tekið fram að hafi aldrei verið nefnt af okkar hálfu, eng­inn hafði stungið upp á hér heima fyrir og hafði ekki gefið sig fram heldur.“

Bjarni sagði að þau við­brögð sem hafa verið til umræðu þegar ráðu­neytið svar­aði hug­mynd­inni um Þorvald Gylfason skýr­ast að hans mati af því að það hafði átt sér stað mikið frum­hlaup af hálfu starfs­manns nefnd­ar­innar „með því að hann fer að orða það við Þorvald að staða gæti verið hans“.

„Menn búnir að stíga í spínatið“

Bjarni vildi jafn­framt vekja athygli á því að margar rík­is­stjórnir hefðu starfað und­an­far­inn ára­tug og væri honum ekki kunn­ugt um að nokkur þeirra hefði leitað til Þor­valdar Gylfa­sonar um aðkomu að stefnu­mótun. „Þannig að hörð við­brögð sem birt­ast í þeim tölvu­póstum sem hafa orðið opin­berir þar sem menn lýsa furðu á þess­ari afstöðu okkar og svo fram­vegis megi skýra af því að menn voru búnir að stíga í spínatið og komnir út af spor­inu. Og búnir að lofa hlutum sem þeir gátu ekki staðið við og voru í algjörri umboðs­leysu að orða stöð­una við mann og farnir að ræða við hann um kaup og kjör. Svo ein­falt er þetta fyrir mér.“

Hann nefndi einnig pró­fessor Lars og sagði að þarna byggi að baki kunn­ings­skapur þess­ara manna sem hefði ráðið för. „Þá finnst mér nú málið í heild sinni komið dálítið langt frá því sem það á að snú­ast um sem er alvöru sam­tal milli ráðu­neyt­anna inn á réttum vett­vangi, það er í þess­ari stýrinefnd um það hvernig menn ætl­uðu að haga þessu í fram­hald­inu.

Að lokum vil ég láta þess getið að af því að hér hefur ítrekað verið nefnt í opin­berri umræðu og kemur aftur fram hér að menn hafi gefið rangar upp­lýs­ingar um að Þor­valdur hafi verið for­maður í stjórn­mála­flokki að þá var ekk­ert full­yrt um það í þessum tölvu­pósti. Í íslenskri þýð­ingu myndi maður þýða þetta ein­hvern veg­inn þannig: Eftir því sem best er vitað er hann ennþá for­maður. Og skömmu síðar er tekið af skarið með það: Hann er ekki for­maður. Það var leið­rétt áður en gengið var frá þessum málum,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár