Þrettán fyrirtæki voru með yfir 150 starfsmenn á hlutabótaleiðinni í apríl

Um 73 pró­sent allra fyr­ir­tækja sem nýttu hluta­bóta­leið stjórn­valda í apríl voru ein­ungis með einn til þrjá starfs­menn í skertu starfs­hlut­falli, en þrettán fyr­ir­tæki voru hvert um sig með yfir 150 starfs­menn á hluta­bóta­leið­inni.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Þrettán fyr­ir­tæki nýttu hluta­bóta­leið stjórn­valda fyrir 150 starfs­menn eða fleiri hvert í síð­asta mán­uði. Í heild­ina voru þessi þrettán fyr­ir­tæki með um 14 pró­sent allra þeirra starfs­manna sem nýttu sér hluta­bóta­úr­ræðið, eða vel á fimmta þús­und manns.

Átta af þessum fyr­ir­tækjum eru í ferða­þjón­ustu­tengdri starf­semi, fjögur í verslun og eitt í iðn­aði, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýj­ustu skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um stöðu og horfur á íslenskum vinnu­mark­aði.

Langstærst þess­ara fyr­ir­tækja er Icelandair, sem setti 92 pró­sent allra starfs­manna sinna í minnkað starfs­hlut­fall í mars.

Um tvö þús­und þeirra var síðan sagt upp í stærstu hóp­upp­sögn Íslands­sög­unnar í lok apríl, eftir að stjórn­völd lýstu því yfir að í vændum væri frum­varp sem fæli í sér að ríkið myndi greiða bróð­ur­part launa starfs­manna á upp­sagn­ar­fresti.

Um 73 prósent fyrirtækja með 1-3 starfsmenn í skertu starfshlutfalli

Alls nýttu 6.320 fyr­ir­tæki sér hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda í apríl, en lang­flest voru þau ein­ungis með einn til þrjá starfs­menn í skertu starfs­hlut­fall. Þannig var háttað hjá um 4.600 fyr­ir­tækjum, eða um 73 pró­sentum allra fyr­ir­tækja sem nýttu hluta­bóta­leið­ina.

Vinnu­mála­stofnun hefur verið beðin um að birta lista yfir öll þau fyr­ir­tæki sem nýtt hafa hluta­bóta­leið­ina, en það hefur ekki enn verið gert.

Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri stofn­un­ar­innar hefur haft áhyggjur af því að slíkt stang­ist á við per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið þar sem í til­felli minni fyr­ir­tækja sé auð­velt að per­sónu­greina ein­staka starfs­menn. Álit Per­sónu­verndar var þó að birt­ing list­ans stang­að­ist ekki á við ákvæði laga um per­sónu­vernd.

„Ég er ennþá svo­lítið hugsi þrátt fyrir álit Per­sónu­verndar – og hef stuðn­ing per­sónu­vernd­ar­full­trúa stofn­un­ar­innar í því – hvort að það sé rétt að birta lista yfir fyr­ir­tæki, til dæmis með fimm starfs­menn eða færri. Og þá er ég nátt­úru­lega að hugsa um það traust sem ég tel að þurfi að ríkja á milli okkar og skjól­stæð­inga okk­ar,“ sagði Unnur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna síð­asta föstu­dag.

Spá 14,8 atvinnuleysi í maí

Sam­an­lagt atvinnu­leysi á íslenskum vinnu­mark­aði í lok apríl var 17,8 pró­sent, en almennt atvinnu­leysi var 7,5 pró­sent og til við­bótar var 10,3 pró­sent vinnu­mark­að­ar­ins á hluta­bóta­leið­inni. Þeir sem fengu hluta­bætur voru að með­al­tali í rösk­lega 40 pró­senta starfs­hlut­falli.

Vinnu­mála­stofnun spáir því að atvinnu­leysið verði 14,8 pró­sent í lok þessa mán­aðar, en þann 15. maí höfðu um 7.500 manns þegar skráð sig af hluta­bóta­leið­inni, ýmist vegna þess að þeim hafði verið sagt upp störfum eða gátu snúið til baka í sitt fyrra starf í kjöl­far til­slak­ana á sótt­varna­ráð­stöf­unum.

Vinnu­mála­stofnun áætlar að um helm­ingur hafi farið hvora leið og gerir ráð fyrir að frek­ari fækkun verði á hluta­bóta­leið­inni í maí. Stofn­unin býst við því að all­margir þeirra sem fara af hluta­bótum vegna upp­sagna komi inn á atvinnu­leys­is­skrá þegar upp­sagn­ar­fresti þeirra lýkur þegar líður á sum­arið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár