Atvinnuleysi á meðal erlendra ríkisborgara er komið upp í 16 prósent

Atvinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara hér á landi er komið upp í um 16 pró­sent. Þá eru ótaldir þeir erlendu rík­is­borg­arar sem verið hafa í minnk­uðu starfs­hlut­falli und­an­farið, en þeir eru á níunda þús­und.

Frá Seljalandsfossi. Þrjátíu og sjö prósent allra starfsmanna sem nýttu hlutabótaúrræð stjórnvalda í apríl starfa í ferðaþjónustu.
Frá Selja­lands­fossi. Þrjátíu og sjö pró­sent allra starfs­manna sem nýttu hluta­bóta­úr­ræð stjórn­valda í apríl starfa í ferða­þjón­ustu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls voru rúm­lega 5.700 erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá í apríl og hefur fjöldi þeirra tvö­fald­ast miðað við sama mánuð í fyrra. Atvinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi er nú um 16 pró­sent, og þá er ekki tal­inn með sá fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem nú eru í minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á atvinnu­lífið.

Sá fjöldi er á níunda þús­und, en erlendir rík­is­borg­arar voru um fjórð­ungur þeirra nærri 34 þús­und ein­stak­linga sem nýttu hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda í apríl, sam­kvæmt skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um stöðu og horfur á vinnu­mark­aði, sem birt var á föstu­dag.

Heild­ar­at­vinnu­leysi í apríl var 17,8 pró­sent sam­an­lagt, en þar af var 7,5 pró­senta almennt atvinnu­leysi og 10,3 pró­sent voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Lang­flestir þeirra sem skráðir voru í minnkað starfs­hlut­fall voru skráðir í það allan mán­uð­inn og að með­al­tali var bóta­hlut­fallið 59,6 pró­sent.

Þeir sem voru á hluta­bóta­leið­inni voru því að með­al­tali í rösk­lega 40 pró­sent starfs­hlut­falli hjá sínum vinnu­veit­endum, en alls fóru um 20.500 manns niður í 25 pró­sent starf og 7.500 manns í 50 pró­sent starf.

Lítið er orðið um nýskrán­ingar í hluta­bóta­úr­ræðið og 15. maí höfðu um 7.500 manns af þeim nærri 34 þús­und sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli ýmist farið til baka í fyrra starfs­hlut­fall eða verið sagt upp störfum. Vinnu­mála­stofnun áætlar að svipað margir hafi farið hvora leið.

Atvinnuleysi eykst hlutfallslega mest meðal ungs fólks

Í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sést að hlut­fall ungs fólks sem sótti um hluta­bóta­úr­ræðið er hærri en hlutur þeirra á vinnu­mark­aði segir til um, en 27 pró­sent allra þeirra sem nýttu sér hluta­bóta­úr­ræðið voru á aldr­inum 18-29 ára og 26 pró­sent voru í næsta ald­urs­hóp þar fyrir ofan, 30-39 ára. Rúmur helm­ingur allra sem nýttu úrræðið í apríl voru því undir fer­tugu.

Fjölgun hefð­bund­inna atvinnu­leit­enda frá mars og þar til í apríl var einnig mest í yngsta ald­urs­hópnum, 18-24 ára. Alls voru 2.256 ein­stak­lingar á þeim aldri án vinnu í lok apríl og fjölg­aði þeim um 24 pró­sent frá því í mars. Til sam­an­burðar fjölg­aði hefð­bundnum atvinnu­leit­endum um tæp 16 pró­sent í ald­urs­hóp­unum 30-59 ára.

Bótahlutfallið hæst í ferðatengdu greinunum

Augljóst er að ferða­þjón­ustan í land­inu á erfitt upp­dráttar þessa dag­ana, enda engir ferða­menn að koma hingað, hót­el­her­bergin eru meira og minna tóm, bíla­leigu­bíl­arnir standa óhreyfðir og við­skipta­vinum veit­inga­staða fækkar svo um munar.

Áhrif þessa sjást í tölum Vinnu­mála­stofn­unar, en 37 pró­sent allra þeirra ein­stak­linga sem nýttu hluta­bóta­úr­ræðið í apríl, starfa í flugi og ferða­þjón­ustu. Bóta­hlut­fallið í þessum ferða­tengdu greinum var einnig hærra en almennt í öðrum atvinnu­greinum.

Nánar nið­ur­brotið voru 10 pró­sent allra þeirra starfs­manna sem nýttu hluta­bóta­leið­ina í apríl í veit­inga­rekstri, 9 pró­sent í gisti­þjón­ustu og 7 pró­sent í flug­starf­semi, en 12 pró­sent í annarri ferða­tengdri starf­semi.

Um 21 pró­sent þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í apríl starfa í verslun og flutn­inga­starf­semi og segir Vinnu­stofnun að þar vegi smá­sölu­verslun þyngst.

Um 18 pró­sent þeirra sem nýtt hafa úrræðið starfa svo í iðn­aði, bygg­ing­ar­iðn­aði, sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði, um 13 pró­sent í ýmis konar þjón­ustu­starf­semi á almennum mark­aði og um 11 pró­sent starfa í menn­ingar- og félaga­starf­semi, opin­berum rekstri eða per­sónu­legri þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár