Forstjóri og stjórnarformaður Boeing fá engin laun út árið

Stjórn Boeing áform­aði að biðja um stór­kost­lega rík­is­að­stoð vegna aðsteðj­andi þreng­inga en þá sagði einn stjórn­ar­mað­ur­inn af sér. Nú hefur verið til­kynnt um miklar aðhalds­að­gerðir.

Þetta er annað áfallið á stuttum tíma sem dynur á Boeing.
Þetta er annað áfallið á stuttum tíma sem dynur á Boeing. Mynd: EPA

Boeing hefur ákveðið að for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og stjórn­ar­for­maður þess fái engar launa­greiðslur það sem eftir lifir árs­ins. Þá hefur einnig verið ákveðið að að fresta arð­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins og hætta end­ur­kaupum á eigin bréfum.

Þetta eru meðal aðgerða sem stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hefur ákveðið að grípa til vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins.

David Calhoun og Larry Kellner voru ráðnir for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Boeing í des­em­ber á síð­asta ári í kjöl­far fár­viðr­is­ins sem skap­að­ist vegna 737 MAX-véla fyr­ir­tæk­is­ins. Til stóð að Calhoun fengi 1,4 millj­ónir Banda­ríkja­dala, tæp­lega 200 millj­ónir íslenskra króna, í árs­laun og átti auk þess að fá ríku­legar bón­us­greiðslur tengdar frammi­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Kellner átti að fá 250 þús­und dali árlega í þóknun, eða um 35 millj­ónir íslenskra króna.

Í til­kynn­ingu frá Boeing segir að gripið verði til allra mögu­lega ráð­staf­ana til að halda fyr­ir­tæk­inu í rekstri í gegnum þær efna­hags­þreng­ingar sem standi fyrir dyrum. Stjórnin heitir því einnig að styðja við alla starfs­menn og við­skipta­vini.

Stjórnin greip til þess­ara aðgerða eftir að Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkj­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, sagði af sér stjórn­ar­setu í fyr­ir­tæk­inu. Tók hún þá ákvörðun til að mót­mæla þeim hug­myndum ann­arra stjórn­ar­manna að biðja um 60 millj­arða dala, um 140 millj­arða króna, rík­is­að­stoð.

Fyrr í vik­unni sagði Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, að það yrði að „vernda Boeing“ en gagn­rýndi í sömu mund end­ur­kaup á eigin bréfum, þ.e. þann gjörn­ing þegar fyr­ir­tæki kaupa bréf af hlut­höfum, greiða fyrir í reiðufé og hækka þannig virði eft­ir­stand­andi bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár