Mýtur og vantraust hindra leið að hjarðónæmi

Órök­studdar full­yrð­ingar um að bólu­efni valdi ófrjó­semi sem og van­trú fólks á yfir­völdum eru meðal ástæðna þess að banda­rísk ung­menni mæta ekki í bólu­setn­ingu.

Ungur karlmaður fær bólusetningu í New York.
Ungur karl­maður fær bólu­setn­ingu í New York. Mynd: EPA

Í ljós hefur komið að ein helsta hindr­unin í vegi fyrir því að ná útbreiddu hjarð­ó­næmi í Banda­ríkj­unum er sú að sann­færa ungt fólk um að fara í bólu­setn­ingu. Mjög hefur hægt á bólu­setn­ingum í land­inu og dag­lega fara fjöl­margir skammtar af drop­unum dýr­mætu til spillis.

Yfirvöld hafa viðrað áhyggjur sínar af þessu síð­ustu daga og fram hefur komið í fréttum að tregðan til að þiggja bólu­setn­ingu sé einna mest hjá fólki á þrí­tugs­aldri. Þetta er sagt helsta ástæða þess að mark­mið Joes Biden for­seta, um að 70 pró­sent full­orð­inna verði komnir með að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni fyrir 4. júlí, náist ekki.

Í grein New York Times um málið segir að ein­fald­ara hafi verið að höfða til eldra fólks þegar bólu­setn­ingar hófust enda veik­ist það alvar­legar af COVID-19 en þeir sem yngri eru.

Yfirvöld víðs vegar um Banda­ríkin hafa reynt að lokka ungt fólk til bólu­setn­inga með ýmsum ráðum. En þar sem engin ein ástæða er fyrir því að það kemur ekki til að fá bólu­setn­ingu vand­ast málið. Til eru þeir sem vilja alls ekki láta bólu­setja sig. Aðrir eru áhuga­lausir. Sumir eru hræddir eða hafa mikið að gera og gefa sér ein­fald­lega ekki tíma í að fara í bólu­setn­ingu.

Sér­fræð­ingar í smit­sjúk­dómum segja að bólu­setn­ingar yngra fólks séu nauð­syn­legur hlekkur í því að koma í veg fyrir nýja far­aldra og stórar hóp­sýk­ingar, sér­stak­lega nú þegar hið bráðsmit­andi Delta-afbrigði veirunnar er komið fram á sjón­ar­sviðið.

Í apríl mættu yfir þrjár millj­ónir Banda­ríkja­manna í bólu­setn­ingu á degi hverjum. Núna er fjöld­inn undir einni milljón.

Aðeins þriðj­ungur fólks á aldr­inum 18-29 ára hefur fengið bólu­setn­ingu. Svartir eru ólík­legri til þess en hvítir, þeir tekju­lægri ólík­legri en hinir efna­meiri og sömu­leiðis virð­ist menntun hafa sömu áhrif; því minni menntun – þeim mun ólík­legra er að fólk hafi fengið bólu­setn­ingu.

Í grein Washington Post um stöð­una segir að rangar upp­lýs­ingar um bólu­efni eða skortur á upp­lýs­ingum hjá ákveðnum hópum skýri tregðu til bólu­setn­inga. Almennt van­traust í garð yfir­valda er auk þess útbreitt vanda­mál í Banda­ríkj­unum – ekki síst meðal svartra ung­menna. Það skýrir að ein­hverju leyti stöð­una sem upp er komin.

Ein mýtan er svo sú að bólu­efni geti haft nei­kvæð áhrif á frjó­semi kvenna. „Það er brjál­æð­is­legt hvað þessi mýta er útbreidd,“ segir kven­sjúk­dóma­lækn­ir­inn Eve Feinberg við Washington Post. Hún segir hins vegar erfitt að útrýma henni því þrátt fyrir að engin vís­inda­leg gögn bendi til þess að bólu­efni valdi ófrjó­semi virð­ast margir frekar treysta því að tím­inn einn muni leiða það í ljós. Hinar röngu upp­lýs­ingar um áhrif bólu­efna á frjó­semi kvenna eru svo útbreiddar að tæp­lega helm­ingur ungra Banda­ríkja­manna, fólks á aldr­inum 18-29 ára, hefur heyrt þær.

Fæð­ing­ar­lækn­ir­inn D‘Angela Pitts segir við Washington Post að sann­leik­ur­inn sé sá að það sé COVID-19, sjúk­dóm­ur­inn sem kór­ónu­veiran veldur, sem geti verið hættu­legur konum – ekki bólu­efnið gegn honum. Þeim boð­skap þurfi að koma betur áleiðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár