Lögreglan neitar að upplýsa um niðurstöðuna í Ásmundarsalar-málinu

Lög­reglan hóf sjálf hið svo­kall­aða Ásmund­ar­salar-mál með því að greina frá því að ráð­herra, sem síðar var opin­berað að væri Bjarni Bene­dikts­son, hefði verið í ólög­mætu sam­kvæmi á Þor­láks­messu. Nú neitar lög­reglan að upp­lýsa um nið­ur­stöð­una í mál­inu.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, var á meðal gesta í samkvæminu í Ásmundarsal.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var á meðal gesta í sam­kvæm­inu í Ásmund­ar­sal. Mynd: Bára Huld Beck

Ákæru­svið lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er búið að afgreiða hið svo­kall­aða Ásmund­ar­salar-mál og nið­ur­staða í því liggur fyrir. Lög­reglan neitar hins vegar að upp­lýsa um hver nið­ur­staðan er og ber fyrir sig að hún geti ekki upp­lýst um afgreiðslu ein­stakra mála.

Frá þessu er greint á vef RÚV.

Fyrir liggur að málið hefur annað hvort verið afgreitt með sekt eða það hefur verið fellt niður. Eigendur Ásmund­ar­salar vildu ekki tjá sig við RÚV um nið­ur­stöð­una en ann­ars þeirra sagði að hugs­an­lega yrði send út yfir­lýs­ing síðar. Á Vísi er hins vegar greint frá því að hlut­að­eig­andi aðilum hafi verið boðið að gang­ast undir svo­kall­aða lög­reglu­stjóra­sátt, sem felur í sér sekt­ar­greiðslu og þá nið­ur­stöðu að brot hafi verið framið. Á Vísi segir að það sé ekki ljóst hverjum verði gert að greiða sekt­ina á þess­ari stundu, hvort það verði ein­ungis rekstr­ar­að­ilar Ásmund­ar­salar eða hvort gestum verði líka gert að greiða sektir.

Málið á rætur sínar að rekja til þess að lög­reglan greindi frá því í upp­lýs­inga­pósti úr dag­bók lög­reglu að morgni aðfanga­dags 2020 að lög­regla hefði verið kölluð til klukkan 22:25 á Þor­láks­messu vegna sam­kvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykja­vík. Í póst­inum stóð að veit­inga­rekstur í salnum væri í flokki sem ætti að vera lok­aður á þessum tíma vegna sótt­varn­ar­reglna. „Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í salnum, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Töluverð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt. Lög­reglu­menn sáu aðeins 3 spritt­brúsa í salnum. Lög­reglu­menn ræddu við ábyrgð­ar­menn skemmt­un­ar­innar og þeim kynnt að skýrsla yrði rituð. Þá var gestum vísað út. Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með kossum. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­reglu og líkti okkur við nas­ista.“

Ráðherrann var formaður Sjálfstæðisflokksins

Um tíu­leytið á aðfanga­dags­morgun fóru að birt­ast fréttir, á Vísi og vef Frétta­blaðsins, um að ráð­herr­ann í sam­kvæm­inu hefði verið Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Skömmu síðar birti Bjarni stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann gekkst við því að hafa verið á meðal gesta í sam­kvæm­inu. Þar sagði: „Á heim­leið úr mið­borg­inni í gær­kvöldi fengum við Þóra sím­tal frá vina­hjón­um, sem voru stödd á lista­safn­inu í Ásmund­ar­sal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köst­uðum á þau jóla­kveðju. Þegar við komum inn og upp í sal­inn í gær­kvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyr­ir.

[adspot]Eins og lesa má í fréttum kom lög­reglan og leysti sam­kom­una upp. Og rétti­lega. Þarna hafði of margt fólk safn­ast sam­an.

Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tök­um.“

Lögreglan hóf formlega rannsókn

Lög­reglan hóf form­lega rann­sókn á mögu­legu sótt­varn­ar­broti í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu og gerði grein fyrir því í til­kynn­ingu 30. des­em­ber. Þar kom fram að rann­sóknin myndi meðal ann­ars fela í sér að yfir­fara upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna með til­liti til brota á sótt­vörn­um.

Þeirri rann­sókn lauk í jan­úar og var málið í kjöl­far sent ákæru­sviði lög­regl­unnar 22. jan­úar sem átti að taka ákvörðun um hvort sektir yrðu gefnar út eða ekki.

Nú, fimm mán­uðum síðar, liggur nið­ur­staða fyrir en lög­reglan neitar að upp­lýsa um hver hún er.

Dómsmálaráðherra hringdi í lögreglustjórann

Þann 23. febr­úar opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefði hringt tví­­­­­vegis í Höllu Berg­þóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­­­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­­­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­­­kvæmi í Ásmund­­­ar­­­sal kvöldið áður.

[adspot]Áslaug Arna sagði í við RÚV að sam­­­töl hennar við lög­­­­­reglu­­­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­­­lýs­inga­­­gjöf við gerð dag­bók­ar­færslna lög­reglu. „Fjöl­miðlar spurðu mig hvort hún væri eðli­leg. Ég þekkti ekki verk­lag dag­bók­ar­færslna lög­regl­unnar og spurði aðeins um það.“

Kjarninn greindi frá því á mars að í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn mið­ils­ins hafi ekki komið skýrt fram hvort allir helstu fjöl­miðlar lands­ins, sem hún segir að hafi sett sig í sam­band við hana á aðfanga­dag, hafi spurt sér­stak­lega út í verk­lags­reglur lög­reglu í tengslum við dag­bók­ar­færslu lög­regl­unnar á aðfanga­dag. Í skrif­legu svari sagði Áslaug Arna: „„Þegar ljóst var hvers eðlis málið var og hvernig það var að þró­ast þennan sama dag, taldi ég ekki við hæfi að tjá mig um það – hvorki um dag­bók­ar­færsl­una sjálfa né aðra anga máls­ins.“

Vegna þessa var Áslaug Arna boðuð fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Hún kom fyrir nefnd­ina snemma í mars. Hún sagði í áður­nefndu skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að hún hefði ekki átt sam­skipti við Bjarna áður en hún átti sam­skipti við lög­reglu­stjóra, en að hún hafi átt sam­skipti við Bjarna síðar á aðfanga­dag.

Í við­tali við RÚV eftir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar var hins vegar haft eftir dóms­mála­ráð­herra að hún hafi vitað að það var Bjarni sem hafði verið í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu áður en hún hringdi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár