Tíu staðreyndir um Ásmundarsalsmálið og eftirmála þess

Ráðherra varð upp­vís að því að vera við­staddur við­burð/sam­kvæmi/lista­verka­sölu á Þor­láks­messu, þegar strangar sótt­varn­ar­reglur voru við lýði. Grunur var um brot á þeim. Síðan þá hefur málið tekið marga póli­tíska snún­inga. Hér eru helstu stað­reyndir þess.

1. Samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu

Klukkan 6:08 að morgni aðfanga­dags 2020 sendi lög­reglan frá sér upp­lýs­inga­póst úr dag­bók lög­reglu þar sem farið var yfir helstu verk­efni hennar á Þor­láks­messu­kvöld og aðfara­nótt aðfanga­dags.

Þriðja atriðið í póst­inum vakti strax athygli, og átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þar var greint frá því að klukkan 22:25 á Þor­láks­messu hefði lög­reglan verið „kölluð til vegna sam­kvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykja­víkur. Veit­inga­rekstur er í salnum í flokki II og ætti því að vera lok­aður á þessum tíma. Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í salnum, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Töluverð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt. Lög­reglu­menn sáu aðeins 3 spritt­brúsa í salnum. Lög­reglu­menn ræddu við ábyrgð­ar­menn skemmt­un­ar­innar og þeim kynnt að skýrsla yrði rituð. Þá var gestum vísað út. Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með kossum. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­reglu og líkti okkur við nas­ista.“

2. „Háttvirti ráðherrann“ var Bjarni Benediktsson

Um tíu­leytið á aðfanga­dags­morgun fóru að birt­ast fréttir, á Vísi og vef Frétta­blaðsins, um að ráð­herr­ann í sam­kvæm­inu hefði verið Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

[adspot]Skömmu síðar birti Bjarni stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann gekkst við því að hafa verið á meðal gesta í sam­kvæm­inu. Þar sagði: „Á heim­leið úr mið­borg­inni í gær­kvöldi fengum við Þóra sím­tal frá vina­hjón­um, sem voru stödd á lista­safn­inu í Ásmund­ar­sal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köst­uðum á þau jóla­kveðju. Þegar við komum inn og upp í sal­inn í gær­kvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyr­ir.

Eins og lesa má í fréttum kom lög­reglan og leysti sam­kom­una upp. Og rétti­lega. Þarna hafði of margt fólk safn­ast sam­an.

Ég hafði verið í hús­inu í um fimmtán mín­útur og á þeim tíma fjölg­aði gest­un­um. Rétt við­brögð hefðu verið að yfir­gefa lista­safnið strax þegar ég átt­aði mig á að fjöld­inn rúm­að­ist ekki innan tak­mark­ana. Það gerði ég ekki og ég biðst inni­lega afsök­unar á þeim mis­tök­um.“

3. Ásmundarsalur biðst afsökunar

Í stöðu­upp­færslu á Facebook sem birt var skömmu fyrir hádegi á aðfanga­dag, á síðu Ásmund­ar­sals, sagði: „Eigendur og rekstr­ar­að­ilar Ásmund­ar­salar vilja taka fram vegna frétta að sal­ur­inn er lista­safn og verslun með leyfi til að hafa opið til klukkan 23 á Þor­láks­messu. Einnig er sal­ur­inn með veit­inga­leyfi. Ekki var um einka­sam­kvæmi að ræða í gær heldur var sölu­sýn­ingin „Gleðileg jól” opin fyrir gesti og gang­andi.

Þegar klukkan var farin að ganga 22:30 dreif að fólk sem var að koma úr mið­bænum og við gerðum mis­tök með að hafa ekki stjórn á fjöld­anum sem kom inn. Flestir gest­anna voru okkur kunn­ugir, fastakúnnar, list­unn­endur og vinir sem hafa und­an­farin ár gert það að hefð að leggja leið sína til okkar á Þor­láks­messu.

Við misstum yfir­sýn og biðj­umst afsök­unar á því.“

4. Krafa um afsögn

Mikil reiði greip um sig víða, enda höfðu verið við lýði stífar tak­mark­anir vegna þriðju bylgju kór­ónu­veirunnar. Þegar einn þeirra ráð­herra sem setti reglur um þær tak­mark­anir fór ekki eftir þeim sjálfum fannst mörgum hljóð og mynd ekki fara saman. Að regl­urnar giltu ekki um þá sem settu þær.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir sagði strax á aðfanga­dag að það væri „bara mjög slæmt þegar for­ystu­menn þjóð­ar­innar fara ekki eftir þessum reglum[...]Ef það er rétt sem þar kemur fram þá er þetta klár­lega brot á sótt­varn­ar­reglum og mér finnst það miður að þetta hafi gerst.“ Logi Einarson, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði það sína skoðun að Bjarni hlyti „að íhuga það alvar­lega að segja af sér. Ef hann er ekki að gera það þá hljóta sam­starfs­flokk­arnir tveir að pressa á hann vegna þess að ég trúi varla að hann hafi stuðn­ing allra ann­arra ráð­herra eða meiri­hluta Alþing­is.“ Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði hegðun Bjarna ófor­svar­an­lega og að upp­á­koman væri „afsagn­ar­sök“.

Jón Magnús Jóhann­es­son, deild­ar­læknir á Lands­spít­al­anum sem hefur meðal ann­ars skrifa um COVID-19 inn á vís­inda­vef Háskóla Íslands, skrif­aði stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem sagði:

„Ég vil vera afdrátt­ar­laus, skýr og ótví­ræður hérna.

1. Þessi sam­koma var fárán­legt, skammar­legt brot á sótt­varna­reglum.

2. Þessi sam­koma gæti fræði­lega hleypt af stað ofur­dreifi­við­burði COVID-19 hér­lend­is. Það gæti hrein­lega leitt til dauðs­falla. Ég er ekki að ýkja hérna.

3. Skort­ur­inn á sótt­vörnum í þess­ari sam­komu, sem var nú þegar að brjóta sam­komu­tak­mark­an­ir, lýsir fárán­legum dóm­greind­ar­bresti og virð­ing­ar­leysi gagn­vart alþjóð.

4. Þeir sem skipu­lögðu þessa sam­komu ættu ein­fald­lega að skamm­ast sín.

5. Téður ráð­herra ætti að segja af sér - taf­ar­laust. Fyrir þátt­tak­endur þessa teitis er þetta skömm en fyrir ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands er þetta algjör for­sendu­brestur. Það er erfitt að lýsa því nákvæm­lega hversu mikið dóm­greind­ar- og virð­ing­ar­leysi er hér á ferð­inni.

6. Ég vil biðla til allra sem hafa skoðun á þessu máli að deila henn­i.“

Á jóla­dag steig Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fram og tjáði sig um málið. Hún sagði við Vísi að hún hefði rætt við Bjarna dag­inn áður og tjáð honum óánægju sína með mál­ið. „Svona atvik skaðar traustið á milli flokk­anna og gerir sam­starfið erf­ið­ara. Sér­stak­lega vegna þessa að við stöndum í stór­ræðum þessa dag­ana, hins vegar er sam­staðan innan stjórn­ar­innar verið góð og ég tel okkur hafa náð miklum árangri í því sem við erum að vinna að. Við munum halda því ótrauð áfram.“ Hún gerði þó ekki kröfu um að Bjarni myndi segja af sér vegna máls­ins.

5. Lögreglan segir að orðalag hafi verið á skjön við vinnureglur

Á annan í jólum, 26. des­em­ber, barst til­kynn­ing fá lög­regl­unni á höfðu­borg­ar­svæð­inu þar sem sagði að það hefði verið á skjön við vinnu­reglur hennar að láta upp­lýs­ingar um að „hátt­virtur ráð­herra“ hafi verið í sam­kvæm­inu á Þor­láks­messu. Á þeim tíma sem til­kynn­ingin barst hafði ekki birst nein frétt í fjöl­miðlum lands­ins þar sem umrætt verk­lag hafði verið til umfjöll­unar.

Per­sónu­vernd taldi ekki ástæðu til að aðhaf­ast vegna dag­bók­ar­færsl­unnar þar sem almennt njóti opin­berar per­sónur minni frið­helgi en aðr­ar.

6. Ný lína frá eigendum salarins

Þann 28. des­em­ber 2020 sendu eig­endur Ásmund­ar­sals, þau Aðal­heiður Magn­ús­dóttir og Sig­ur­björn Þor­kels­son, yfir­lýs­ingu þar sem þau sögðu að fjölda­tak­mark­anir hefðu ekki verið brotnar í sam­kvæm­inu á Þor­láks­messu. Þar sagði að sýn­ing­ar­sal­ur­inn, sem sé á efri hæð Ásmunda­salar, væri versl­un­ar­rými og falli því undir þær sótt­varn­ar­reglur sem um þau giltu á þessum tíma. Ekki hafi verið um einka­sam­kvæmi að ræða heldur opna sýn­ingu. „Á neðri hæð Ásmund­ar­salar er kaffi­hús með vín­veit­inga­leyfi þar sem 15 manns mega koma saman og við­bót­ar­rýmið Gryfjan sem allt að 10 manns mega vera í. Á efri hæð er aðal­sýn­ing­ar­rými verka þar sem allt að 35 manns mega koma saman. Heild­ar­fjöldi í bygg­ing­unni getur því verið allt að 60 manns að upp­fylltum sótt­varn­ar­reglum. Á Þor­láks­messu­kvöld var Gryfjan lokuð og var því leyfi fyrir 50 manns í hús­inu. Eigendur telja ótví­rætt að fjöldi gesta hafi ávallt verið undir því við­miði.“

Þennan sama dag fór Bjarni í við­tal í Kast­ljósi, sagð­ist hafa þegið létt­vín í Ásmund­ar­sal en hafi „aldrei [verið] stadd­ur í neinu par­tíi.“ Hann hefði upp­lifað að hann hefði verið í salnum í korter og stæði við það mat. Bjarni taldi sig ekki hafa brotið sótt­varna­lög.

7. Formleg rannsókn fór fram en niðurstaða liggur ekki fyrir

Þrátt fyrir þessa afstöðu ákvað lög­reglan að hefja form­lega rann­sókn á mögu­legu sótt­varn­ar­broti í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu og gerði grein fyrir því í til­kynn­ingu 30. des­em­ber. Þar kom fram að rann­sóknin myndi meðal ann­ars fela í sér að yfir­fara upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna með til­liti til brota á sótt­vörn­um.

Þeirri rann­sókn lauk í jan­úar og var málið í kjöl­far sent ákæru­sviði lög­regl­unnar 22. jan­úar sem átti að taka ákvörðun um hvort sektir yrðu gefnar út eða ekki. Enn þann dag í dag, tæpum einum og hálfum mán­uði síðar, liggur ekki fyrir nið­ur­staða ákæru­sviðs.

Þann 26. febr­úar greindi mbl.is frá því að nefnd sem hefur eft­ir­lit með störfum lög­reglu sé að kanna sam­skipti hennar við fjöl­miðla eftir að sam­kvæmið í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu var leyst upp. Einnig verður kannað hvort sam­ræmi sé milli þess sem komi fram á upp­töku og þess sem skrifað var í skýrslu lög­reglu.

8. Dómsmálaráðherra hringdi tvívegis í lögreglustjórann

Þann 23. febr­úar opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefði hringt tví­­­­­vegis í Höllu Berg­þóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­­­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­­­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­­­kvæmi í Ásmund­­­ar­­­sal kvöldið áður.

Áslaug Arna sagði í við RÚV að sam­­­töl hennar við lög­­­­­reglu­­­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­­­lýs­inga­­­gjöf við gerð dag­bók­ar­færslna lög­reglu. „Fjöl­miðlar spurðu mig hvort hún væri eðli­leg. Ég þekkti ekki verk­lag dag­bók­ar­færslna lög­regl­unnar og spurði aðeins um það.“

[adspot]Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn mið­ils­ins hafi ekki komið skýrt fram hvort allir helstu fjöl­miðlar lands­ins, sem hún segir að hafi sett sig í sam­band við hana á aðfanga­dag, hafi spurt sér­stak­lega út í verk­lags­reglur lög­reglu í tengslum við dag­bók­ar­færslu lög­regl­unnar á aðfanga­dag. Í skrif­legu svari sagði Áslaug Arna: „„Þegar ljóst var hvers eðlis málið var og hvernig það var að þró­ast þennan sama dag, taldi ég ekki við hæfi að tjá mig um það – hvorki um dag­bók­ar­færsl­una sjálfa né aðra anga máls­ins.“

9. Átti ekki samskipti við Bjarna áður en hún hringdi í lögreglustjórann

Vegna þessa var Áslaug Arna boðuð fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Hún kom fyrir nefnd­ina á mánu­dag. Hún sagði í áður­nefndu skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að hún hefði ekki átt sam­skipti við Bjarna áður en hún átti sam­skipti við lög­reglu­stjóra, en að hún hafi átt sam­skipti við Bjarna síðar á aðfanga­dag.

Í við­tali við RÚV eftir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar var hins vegar haft eftir dóms­mála­ráð­herra að hún hafi vitað að það var Bjarni sem hafði verið í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu áður en hún hringdi.

Halla Bergþóra mætti svo sjálf fyrir nefnd­ina á þriðju­dag. Hún hefur ekki viljað tjá sig um sím­tölin opin­ber­lega. Þegar hún var til við­tals í Silfrinu um síð­ustu helgi bar hún það fyrir sig að málið væri til með­ferðar hjá þing­nefnd og vegna þess gæti lög­reglu­stjór­inn ekki tjáð sig um það.

10. Vilja skýra hvort samskiptin hafi verið í samræmi við lög og reglur

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, spurði Áslaugu Örnu um málið á Alþingi á þriðju­dag. Í fyr­ir­spurn hans kom meðal ann­ars fram að annað sím­talið sem hún hafi átt við Höllu Bergþóru hafi verið klukkan hálf fimm á aðfanga­dag jóla.

Eftir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á þriðju­dag sagði Andrés Ingi Jónsson, nefnd­ar­maður og þing­maður Pírata, að það væri hans til­finn­ing að ráð­herra hafi verið röngu megin lín­unnar með því að hlut­ast til um ein­stök mál. „Það er svona mín til­finn­ing eftir það að ráð­herr­ann hafi verið röngu megin lín­unnar þegar kemur að því að vera að hlut­ast um ein­stök mál í rann­sókn. Það er eitt­hvað sem við þurfum að skoða frekar tel ég.“

Jón Þór Ólafsson, for­maður nefnd­ar­innar, sagði á mið­viku­dag að nýjar upp­lýs­ingar hefðu komið fram þegar dóms­mála­ráð­herra og lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins komu fyrir nefnd­ina. Hann sagði við RÚV að mögu­legt væri að nefndin gerði hlé á sínum störfum til þess að gefa umboðs­manni Alþingis færi á að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á mál­inu.

RÚV greindi svo frá því á fimmtu­dag að Halla Bergþóra telji að dóms­mála­ráð­herra hafi ekki „haft afskipti af rann­sókn saka­máls“ með sím­tölum sínum á aðfanga­dag. Hún svar­aði ekki spurn­ingum RÚV um hvort sam­skiptin við dóms­mála­ráð­herra hefðu verið óeðli­leg.

Óli Björn Kárason, sam­flokks­maður Áslaugar Örnu og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, sagði við Morg­un­blaðið í gær að Jón Þór og Andrés, þing­menn Pírata í nefnd­inni, hafi ekki sést fyrir í mál­inu í „„óstjórn­legri löng­un til að koma höggi á póli­tísk­an and­stæð­ing“ og ásakar þá báða um trún­að­ar­brest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár