Delta-afbrigðið er „mjög ógnvænlegur óvinur“

Læknar vilja að útgöngu­bann verði sett á í Perth líkt og gert hefur verið í Sydney og nágrenni til að koma í veg fyrir aðra bylgju far­ald­urs­ins í Ástralíu. Innan við fimm pró­sent Ástrala eru full­bólu­settir.

Hún er enn og aftur tóm, Bondi-ströndin í Sydney. Útgöngubann er í borginni.
Hún er enn og aftur tóm, Bondi-ströndin í Sydney. Útgöngu­bann er í borg­inni. Mynd: EPA

Samtök lækna í vest­an­verðri Ástralíu hvetja stjórn­völd til að herða sam­komu­tak­mark­anir í borg­inni Perth til að reyna að koma í veg fyrir aðra bylgju far­ald­urs kór­ónu­veirunnar í land­inu. Þegar hafa verið settar á miklar tak­mark­anir í fylk­inu Nýja Suður-Wales sem ná til yfir fimm millj­óna manna í borg­inni Sydney og næsta nágrenni. Þar höfðu í gær greinst yfir 110 manns með Delta-afbrigði veirunnar og í dag greindust 30 manns en rað­grein­ingar sýna er enn beðið. Lækna­sam­tökin telja að með því að herða veru­lega sam­komu­tak­mark­anir í Perth mætti ná utan um sýk­ingar sem þar hafa nú blossað upp.

[adspot]

Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í Nýja Suður-Wales gilda í tvær vikur. „Í ljósi þess hversu smit­andi afbrigðið er þá eigum við von á því að smit­tölur eigi eftir að hækka næstu daga,“ sagði fylk­is­stjór­inn Gladys Ber­ejiklian í gær. Aðgerð­irnar eru harðar. Það er útgöngu­bann og fólk á almennt að halda sig heima. Tölu­verður fjöldi grunn­skóla­nem­enda og kenn­ara við nokkra skóla eru komin í ein­angrun eftir að smit greindust fyrir helgi á síð­asta skóla­degi fyrir frí.

Þetta er í fyrsta sinn frá því að far­ald­ur­inn hófst sem útgöngu­bann er sett á í Sydney. Almennt hefur smit­tíðni verið lág í Ástralíu enda snemma gripið til harðra aðgerða, m.a. ferða­tak­markanna. Smitin, sem urðu til þess að tak­mark­anir voru settar á, komu fyrst upp í Bondi-úthverf­inu í borg­inni fyrir viku. Smit fóru svo að grein­ast á öðrum stöðum í Sydney og eru m.a. tengd við bíl­stjóra sem ók fólki til og frá alþjóða­flug­vell­inum.

Á öðrum svæðum, m.a. í borg­inni Darwin, hefur tveggja sól­ar­hringa útgöngu­bann verið sett á.

Delta-afbrigðið, sem fyrst upp­götv­að­ist á Indlandi, er „mjög ógn­væn­legur óvinur,“ sagði ástr­alski heil­brigð­is­ráð­herr­ann er til­kynnt var um hertar aðgerðir. „Sydney-búar, við munum kom­ast í gegnum þetta í sam­ein­ingu,“ sagði Scott Morrison for­sæt­is­ráð­herra.

Starfsfólk skyldað í bólusetningu

Til enn­frek­ari aðgerða á að grípa í hefur rík­is­stjórnin nú ákveðið, í kjöl­far neyð­ar­fundar, að skylda allt starfs­fólk í öldr­un­ar­þjón­ustu til að fara í bólu­setn­ingu. Allir þeir starfs­menn eiga að vera komnir með að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efnis í sept­em­ber. Þá hefur einnig verið ákveðið að allir geti fengið bólu­efni AstraZeneca, óháð aldri.

[adspot]

Morrison sagði eftir neyð­ar­fund­inn að Delta-afbrigðið væri sann­ar­lega mun meira smit­andi en önnur afbrigði veirunnar og að fólk sem færi í sótt­kví þyrfti héðan í frá að fara í sýna­töku 2-3 dögum eftir að hafa yfir­gefið sótt­kví­ar­hótel. Rík­is­stjórnin sam­þykkti einnig að skylda alla starfs­menn far­sótt­ar­húsa til að fara í bólu­setn­ingu en fara engu að síður reglu­lega í sýna­töku.

Bóluefnaskortur

Leið­togar fylkja Ástralíu eru margir hverjir vonsviknir með hvernig bólu­setn­ing­ar­her­ferð rík­is­stjórn­ar­innar hefur tek­ist til. Þeir vilja að aðgerðir á landa­mærum séu hertar frekar nú þegar Delta-afbrigðið er að grein­ast víða um landið. Innan við fimm pró­sent Ástrala eru full­bólu­settir og er Ástralía í neðsta sæti yfir hlut­falls­legan fjölda bólu­settra af öllum OECD-ríkj­unum.

„Enginn getur verið sáttur við það hvernig bólu­efnum er dreift,“ segir Daniel Andrews, fylk­is­stjóri Viktoríu. „Við glímum við skort.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár