„Verstu tvær vikur lífs ykkar“ urðu að mánuðum

Sú bylgja far­ald­urs­ins sem nú er í Kólumbíu er sú versta. Hingað til. Ungt fólk er að deyja, ólga ríkir og fjölda­mót­mæli eru umfangs­meiri en fjölda­bólu­setn­ingar. Ástandið í Suður-Ameríku afhjúpar djúpa gjá milli fátækra og ríkra.

Fjöldamótmæli í höfuðborg Kólumbíu, Bogata.
Fjölda­mót­mæli í höf­uð­borg Kólumbíu, Bogata. Mynd: EPA

Á sama tíma og verið er að aflétta grímu­skyldu og sam­komu­tak­mörk­unum í Evrópu og Banda­ríkj­unum eru mörg lönd í Suður-Ameríku að fást við eina skæð­ustu bylgju far­ald­urs COVID-19 hingað til. Í álf­unni er dán­ar­tíðni af völdum sjúk­dóms­ins nú átta sinnum hærri en að með­al­tali í heim­inum öllum.

Skýr­ing­arnar á þess­ari stöðu er margar, m.a. mikil útbreiðsla nýrri afbrigða veirunnar sem eru meira smit­andi en önnur. Þá eru heil­brigð­is­kerfi land­anna flest veik­byggð og fátækt á mörgum svæðum mikil og útbreidd. Í þriðja lagi hafa stjórn­völd í sumum löndum Suður-Ameríku ein­fald­lega lagt árar í bát í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn og í enn öðrum er póli­tísk ólga og jafn­vel upp­lausn.

[adspot]

Dauðs­föll vegna COVID-19 eru nú hvergi hlut­falls­lega fleiri en í Paragvæ. Heil­brigð­is­kerfið var veikt fyrir og er nú hrunið víða. Þá er fátækt mjög útbreidd. Í síð­ustu viku, svo dæmi sé tekið, var dán­ar­tíðnin vegna sjúk­dóms­ins 18 á hverja milljón íbúa sam­an­borið við 2,7 á Indlandi og 0,14 í Bret­landi.

Augum umheims­ins hefur í fréttum síð­ustu vikna verið beint að Indlandi þar sem mjög skæð bylgja gekk yfir en er nú tekin að dala. Á sama tíma hefur mann­fall í Paragvæ, Argent­ínu, Úrúgvæ, Kólumbíu, Brasilíu og Perú verið gríð­ar­legt en ekki farið eins hátt.

Sprenging í smitum

Í upp­hafi heims­far­ald­urs­ins á síð­asta ári var stjórn­völdum í Paragvæ og Úrúgvæ hrósað fyrir snör við­brögð sín. En frá því í mars í ár, um ári eftir að far­ald­ur­inn hófst, hefur orðið spreng­ing í fjölda smita sem helst er rakið til hins skæða brasil­íska afbrigðis veirunnar sem nú er kallað gamma-afbrigðið af vís­inda­mönnum. Á sama tíma hafði verið slakað á sam­komu­tak­mörk­unum í lönd­unum tveimur sem og víðar í álf­unni.

Bólu­setn­ing­ar­her­ferðin var hröð­ust í Úrúgvæ af öllum löndum Suður-Ameríku. Það kom þó ekki í veg fyrir stórar og ban­vænar hóp­sýk­ingar.

Í nýlegri frétta­skýr­ingu Guardian um stöð­una í álf­unni er rifjað upp að Argent­ínu­mönnum hafi einnig verið hrósað fyrir við­brögð sín við far­aldr­inum. Þar voru snemma settar á miklar tak­mark­anir á sam­komum og almenn­ingur fór sam­visku­sam­lega eftir þeim. En svo leið tím­inn og knýj­andi þörf fólks til að afla sér tekna og krafa um að koma hjólum atvinnu­lífs­ins í gang varð til þess að tak­mörk­unum var aflétt á svip­uðum tíma og skæð­ari afbrigði voru að breið­ast hratt út. Á þess­ari stundu er COVID-19 helsta bana­mein þjóð­ar­innar og mun fleiri, eða yfir 500 á dag, lát­ast úr þeim sjúk­dómi en t.d. hjarta­sjúk­dómum eða krabba­meinum.

Fátækt, sem farið hefur vax­andi í Argent­ínu síð­asta ára­tug­inn, er einn þeirra þátta sem leikið hefur stórt hlut­verk í því hversu skæður far­ald­ur­inn hefur orðið. Verð­bólga þar er ein sú hæsta í heimi.

Í Brasilíu hefur yfir hálf milljón manna dáið vegna COVID-19 sam­kvæmt opin­berum tölum. Þar í landi er for­set­anum, Jair Bol­son­aro, ítrekað kennt um hvernig komið sé fyrir þjóð­inni. Hann gerði lítið úr sjúk­dómnum allt frá upp­hafi, sagði hann „aðeins flensu“ og brást því hlut­verki að grípa til aðgerða í tæka tíð til að sporna gegn útbreiðsl­unni. Hann sætir nú rann­sókn vegna meintra emb­ætt­is­glapa vegna við­bragðs­leysis síns.

[adspot]

Þá er ástandið í Perú slæmt um þessar mundir. Bóluefni er af skornum skammti og önnur bylgja far­ald­urs­ins var verri en sú fyrsta. Í henni var aftur gripið til sam­komutakark­ana enda sjúkra­hús á helj­ar­þröm vegna álags. Ólga er í stjórn­málum lands­ins og ekki bætti úr skák að fyrr á árinu kom í ljós að þáver­andi for­seti og næstu sam­starfs­menn hans fengu bólu­setn­ingu á laun. Innan við tíu pró­sent full­orð­inna í land­inu eru nú bólu­sett en nýr for­seti hefur heitið átaki í þeim efnum. Dán­ar­tíðnin af völdum COVID-19 hefur farið lækk­andi und­an­farnar vikur en í grein Guardian kemur fram að eftir sitji reiði og gremja margra borg­ara.

Skattahækkunum harðlega mótmælt

Í Kólumbíu hafa nú yfir 100 þús­und manns látið lífið vegna COVID-19 og er landið hið tíunda til að fara yfir þann þrösk­uld. Fjölda­mót­mæli vegna skatta­hækk­ana á sama tíma og dauðs­föllum fjölgar eru meira áber­andi en fjölda­bólu­setn­ingar. Daglega deyja í kringum 500 manns úr sjúk­dómnum í land­inu og á mánu­dag lét­ust 648, sem var met­fjöldi á einum degi, og á mið­viku­dag voru dauðs­föllin 720. Þetta eru met sem eng­inn vill slá. Innan við tíu pró­sent íbú­anna eru full­bólu­settir. Kól­umbíu­menn eru yfir 50 millj­ónir tals­ins.

Ástandið í Kólumbíu hefur farið stig­versn­andi vikum og mán­uðum saman. Borg­ar­stjóri höf­uð­borg­ar­innar Bogatá bað í vor íbú­ana að und­ir­búa sig fyrir „verstu tvær vikur lífs“ síns. Þær vikur hafa dreg­ist á lang­inn því til­fellum er enn að fjölga og hafa und­an­farið verið um og yfir 25 þús­und á dag.

[adspot]

Þessi þriðja bylgja far­ald­urs­ins hefur sett allt sam­fé­lagið á hvolf og í upp­nám. Hún er þegar orðin sú skæð­asta sem skollið hefur á land­inu og er lík­lega sú skæð­asta sem fyr­ir­finnst í heim­inum í dag.

Í grein New York Times um stöðu far­ald­urs­ins í Suður-Ameríku segir að hann afhjúpi þá gjá sem er á milli álf­unnar og rík­ari þjóða á borð við Ísrael, Banda­ríkin og Bretland. Í þeim löndum hefur verið hægt að tryggja stóra samn­inga við lyfja­fyr­ir­tæki um bólu­efni á meðan ríki á borð við þau sem að framan er fjallað um berj­ast enn við útbreitt smit og jafn­vel far­aldra með til­heyr­andi mann­falli.

Af þeim tíu ríkjum heims þar sem dán­ar­tíðni vegna COVID-10 er nú hæst eru sjö í Suður-Ameríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár