Krínólín, kjólar og ómældur kvennakraftur!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Konur & krínólin eftir Eddu Björg­vins­dóttur.

Leikhúslistakonur 50+ í samstarfið við Þjóðleikhúsið: Konur & krínólín

Handrit: Edda Björg­vins­dóttir

Leik­stjórn­arteymi: Edda Björg­vins, Kolbrún Hall­dórs­dóttir og Edda Þór­ar­ins­dóttir

Svið: Elín Edda Árna­dóttir

Búningar og útlit: Helga Björns­son

Hár­greiðsla: Guðrún Þor­varð­ar­dóttir

Sviðs­hreyf­ingar: Ásdís Magn­ús­dóttir

Ljósa­hönnun: Jóhann Friðrik Ágústs­son

Leikkonur: Bryndís Petra Braga­dóttir, Edda Björg­vins, Guðbjörg Thorodd­sen, Júlía Hannam, Kolbrún Hall­dórs­dóttir, Lilja Þór­is­dóttir, Ólöf Sverr­is­dóttir, Rósa Guðný Þórs­dóttir, Salvör Ara­dóttir, Vilborg Hall­dórs­dóttir.

Ekki verður annað sagt en sýn­ing Leik­hús­lista­kvenna 50+, Konur og krínólín sé áferð­ar­fal­legt augna­yndi. Hér birt­ast eins og á færi­bandi alls konar sköp­un­ar­verk kjóla frá ýmsum tímum sögu kven­fatat­ísk­unnar og bornir af glæsi­legum konum sem aug­ljós­lega njóta þess að bera þá og segja sögu þeirra.

Öðru fremur má nefni­lega segja að Konur og krínólín segi sögu kven­fatat­ísk­unnar – sem hefur nú ekki alltaf haft að útgangs­punkti að gera lífið bæri­legt konum eða þægi­legt. Í sýn­ing­unni Konur & krínólín birt­ast alls konar til­komu­miklar „kre­a­sjónir“, yfir­ferðin hefst á krínólínum, sem urðu aðal­kven­fatat­ískan á seinni hluta 19. aldar og sem hefði í raun verið gaman að heyra meira um – fyrst þegar í upp­hafs­orðum sýn­ing­ar­innar var m.a. minnst á þetta, að kven­fatat­ískan hefði aldeilis ekki verið til að auka konum þæg­indin.

Það hefði að ósekju mátt fara lengra inn á þá braut; konum voru krínólín­urnar bein­línis lífs­hættu­legar; þær voru gerðar úr tagl­hári, flétt­uðum með líni og gríð­ar­lega eld­fimar. Það er talið að mörg þús­und konur hafi orðið eldi að bráð þar sem þær stóðu í eld­hús­inu og dúllur og tau í krínólín­unum kom of nálægt elda­vél­inni og kon­urnar breytt­ust í kyndla, sem fuðr­uðu upp enda bæði tagl, lín og kjólefnið eld­fimt með afbrigðum. Þá eru til frá­sagnir af konum sem unnu í verk­smiðjum þeirra tíma – seinni hluta 19. aldar, byrjun þeirrar 20. – sem urðu fyrir því að krínólín­urnar fest­ust í vél­unum, drógu varn­ar­lausar kon­urnar inn í reimar og spil þar kon­urnar mörð­ust eða hein­lega kubb­uð­ust sundur. Og ekki var vinnu­staða­eft­ir­liti til að heilsa; karl­arnir létu sér nægja að benda á að sannur sjentil­maður viki úr vegi og stigi út á götu þegar konur í krínólínum yrðu hel­stil fyr­ir­ferða­miklar á gang­stétt­inni.

En Konur & krínólín er auð­vitað fyrst og fremst til gam­ans gert og stendur fylli­lega undir því. Enda má til sanns vegar færa að krínólín urðu ekki sá vandi hér á landi eins og í iðn­aðar- og borg­ar­sam­fé­lögum Evrópu og Banda­ríkj­anna. Hér urðu þær fyrst og fremst skemmti­legt tákn útlendrar borg­arat­ísku og lík­leg­ast að íslenskri alþýðu hafi þótt fyndið að sjá danskar kaup­manns­frúr tipla til kirkju á sunnu­dögum í slíkri múnd­er­ingu yfir drullugan Aust­ur­völl­inn.

[adspot]Konur & krínólín dregur þeim mun skemmti­legri mynd af því þegar við Íslend­ingar komumst í tæri við hina og þessa tísk­una á 20. öld­inni – charlestonið, sam­kvæmi­s­kjólar, fatn­aður sem ýmist leggur áherslu á grannan vöxt og kyn­þokka eða líkt og gerð­ist á seinni hluta ald­ar­innar, þegar fatn­að­ur­inn leggur áherslu á frelsi og sjálf­stæði kon­unnar.

Öllu þessu og meira til bregður fyrir í stuttum atriðum sem auk­in­heldur vekja upp anda hvers tíma, annað hvort með lát­bragði ein­göngu eða einnig í stuttum sam­tölum, hnyttnum og hnit­mið­uðum. Það leið ekki á löngu þar til von­laust var að telja þann fjölda kjóla og klæðn­aða sem birt­ust og hurfu, enda hefur tískan á seinni árum tekið örum og skjótum breyt­ingum og þarf aug­ljós­lega meira en með­al­konu til að henda reiður á svipti­vindum tísk­unnar. Og svo því sé til haga haldið – tísku­straum­arnir komu á köflum róti á full­trúa feðra­veld­is­ins, sem birt­ast hér af og til, íhalds­samir karlpungar sem hafa auð­vitað skoð­anir á því þegar kon­urnar virð­ast ætla að ger­ast hel­stil sjálf­stæðar. Góð áminn­ing um að saga tísk­unnar og saga kven­rétt­inda fer ávallt saman og að enn er heilmargt starf óunnið þegar kemur að því að konur séu jafn­rétt­háar körlum í öllu til­liti, ekki síst menn­ing­ar­lega!

Sú sem ber ábyrgð á öllum þeim bún­ingum sem bregður fyrir í Konur & krínólín er Helga Björns­son og nafn hennar ætti að vera flestum kunn­ugt. Helga hefur um ára­bil starfað í tísku­heimi Evrópu og hefur getið sér gott orð sem hönn­uður; hún var búsett í Bret­landi og Frakk­landi frá þrettán ára aldri, lauk námi í fata­hönnun Les Arts Decoratives í París og starf­aði um ára­bil sem aðal­hönn­uður við Haute Couture í tísku­húsi Louis Feraud í París. Helga hefur einnig hannað bún­inga fyrir bæði Þjóð­leik­húsið og Íslensku Óperuna og vann til Grímu­verð­launa fyrir bún­inga sína í Íslands­klukk­unni.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hví­lík fag­mennska liggur að baki bún­ing­unum – hér er nostrað við hvert smá­at­riði af þekk­ingu á sögu hvers bún­ings og því tíma­bili sem umlukti stíl og stemn­ingu. Bún­ing­arnir eru flug­elda­sprengin í munstrum og litum og sú til­finn­ing er vita­skuld efld með við­eig­andi tón­list. Þetta er „mikið sjó“ og þá hefur ekki enn verið minnst á hin öru bún­inga­skipti sem ganga að því er best verður séð snurðu­laust fyrir sig. Og ekki má gleyma sviðs­hreyf­ingum, sem Ásdís Magn­ús­dóttir hefur stýrt af öryggi og með næmu auga fyrir hreyf­ingum hvers ein­staks tíma­bils – og ekki lítið afrek það! Ásdís nam list­dans í List­dans­skóla Þjóð­leik­húss­ins og eftir það í New York og starf­aði svo í tæpa tvo ára­tugi með Íslenska dans­flokknum og dans­aði með honum nokkur helstu aðal­hlut­verk í þekkt­ustu dans­verkum heims­ins.

Það væri að æra óstöðugan að fjalla sér­stak­lega um hverja og eina leikkonu sem hér kemur fram, hver og ein í fjölda hlut­verka og sýnir þar með fjöl­breyti­leik í sviðs­fram­komu og tján­ingu. Þó verður ekki hjá kom­ist að nefna hlut sögu­kon­unnar sem heldur utanum allan gjörn­ing­inn og tengir atriðin saman og þau við hin mis­mun­andi tíma­bil. Edda Björg­vins fer hér á kostum og nær frá fyrsta and­ar­taki tökum á áhorf­endum og fleytir gjörn­ingnum áleiðis með bæði fróð­leik og húmor. Hún sannar hér – og var þó búin að því svo ekki yrði í efa dregið – að hún er, að öðrum gam­an­leikkonum ólöst­uðum, albesta komedienne íslenskrar leik­listar. En þó má geta þess, að flestar þær leikkonur sem hér stíga fram, dansa og tjá mis­mun­andi tíma­bil tísku­strauma, eru flottar gam­an­leikkonur líka, ef því er að skipta. Takið bara eftir spili augna og augn­gotum, léttum höf­uð­hnykkjum og kersknis­legu yfir­bragði í sam­skiptum við áhorf­endur. Það þarf ekki að draga í efa að leik­hús­lista­konur 50+ búa ekki ein­asta yfir ríkum hæfi­leikum (sem leik­húsin mega vel nýta mun betur en gert er!!!) heldur kunna þær að miðla taum­lausum þokka, feg­urð, töfrum og glæsi­brag – og hinu líka þegar þess er þörf!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár