Bjarni vill byrja að selja Íslandsbanka

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra vill ráð­ast í sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og nota fjár­mun­ina sem fást fyrir hann í inn­viða­fjár­fest­ingar. Þótt að ekki fáist bók­fært verð fyrir sé 25 pró­sent hlutur í bank­anum tuga millj­arða virði.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að nú þegar hag­kerfið sé að kólna sé það kostur að losa um eign­ar­hald rík­is­ins í bönkum og nota fjár­mun­ina sem fást út úr slíkri sölu í inn­viða­fjár­fest­ingar. Því sé tíma­bært að hefja und­ir­bún­ing á sölu Íslands­banka. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Bjarni að miðað við verð­mat mark­að­ar­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum sé ólík­legt að við fengjum fullt bók­fært verð fyrir bank­ann, en eigið fé hans er um 170 millj­arðar króna í dag. „Það er engu að síður rétt að mínu mati að losa um eign­ar­haldið í skrefum og 25 pró­sent hlutur í bank­anum er tuga millj­arða króna virði. Þá fjár­muni ættum við að nýta til arð­bærra fjár­fest­inga í innviðum.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bjarni talar á þessum nótum á kjör­tíma­bil­inu. Hann hefur þvert á móti ítrekað sagt að hann sé þeirrar skoð­unar að hann vilji hefja sölu­ferli á hlut rík­is­ins í rík­is­bönk­unum, Íslands­banka og Lands­banka, á þessu kjör­tíma­bili, en því lýkur vænt­an­lega næsta vor. Bjarni vill þó halda eftir minni­hluta­eign í Lands­bank­anum. Í sept­em­ber sagði Bjarni til að mynda að hann von­að­ist til að sölu­ferlið gæti haf­ist á næstu vikum.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í októ­ber að heim­ildir hans hermdu að ekki væri ein­ing um málið á meðal stjórn­ar­flokk­anna. Heimild er hins vegar í lögum til að hefja sölu­ferlið og fjallað var um slík skref í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna; Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, mælist 39,9 pró­sent sam­kvæmt könnun Gallup sem birt­ist í gær. Það er minnsta sam­eig­in­lega fylgi sem þeir hafa mælst með á kjör­tíma­bil­inu til þessa.

Bankasýslan undirbýr söluferli

Í Hvít­­­bók um fram­­­tíð­­­ar­­­sýn fyrir fjár­­­­­mála­­­kerfið, sem skilað var inn síðla árs 2018, var fjallað ítar­­­lega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í rík­­­is­­­bönk­­­un­um, Lands­­­bank­­­anum og Íslands­­­­­banka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að end­­­ur­­­skipu­­­leggja eign­­­ar­hald með þeim hætti, að dreift og traust eign­­­ar­hald verði hluti af fjár­­­­­mála­­­kerf­inu til fram­­­tíð­­­ar.

Þá var einnig lagt til að það verði skoðað gaum­­­gæfi­­­lega hvernig megi efla sam­­­starf bank­anna á sviði inn­­­viða í fjár­­­­­mála­­­kerf­inu, til að auka hag­ræð­ingu í banka­­­kerf­inu og bæta þannig kjör til neyt­enda.

Greint var frá því í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í byrjun sept­em­ber­mán­aðar í fyrra að í nýlegu gerðu minn­is­­blaði Banka­­sýsl­u rík­is­ins, sem fer með hlut­ina í bönk­unum fyrir hönd rík­is­sjóðs, væri lagt til að annað hvort ætti að selja að minnsta kosti 25 pró­­­sent hlut í Íslands­­­­­banka í hluta­fjár­­­út­­­­­boði og skrá þau bréf tví­­­hliða á mark­að, eða að selja allt að öllu hlutafé í bank­­­anum með upp­­­­­boðs­­­leið þar sem önnur fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tæki eða sjóðir geti gert til­­­­­boð í hann.

Banka­sýslan hefur ekki lagt það minn­is­blað enn fram opin­ber­lega.

Mik­ill meiri­hluti vildi að ríkið eigi banka

Alls voru 61,2 pró­­sent lands­­manna jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka sam­kvæmt rann­­sókn sem Gallup vann fyrir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið og birt­ist með Hvít­­bók um fram­­tíð­­ar­­sýn fyrir fjár­­­mála­­kerfið. Fjórð­ungur þjóð­­ar­inn­­ar, 25,2 pró­­sent, hafði enga fast­­mót­aða skoðun á slíku eign­­ar­haldi og ein­ungis 13,5 pró­­sent Íslend­inga voru nei­­kvæðir gagn­vart slíku eign­­ar­haldi.

[links]Mark­mið könn­un­­ar­innar var að skoða ítar­­lega traust til banka­­kerf­is­ins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir van­­trausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af land­inu öllu. Þátt­­töku­hlut­­fall var 54,5 pró­­sent.

Þegar þeir sem eru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka voru spurðir af hverju sögðu 24,4 pró­­sent þeirra, eða tæp­­lega fjórð­ung­­ur, að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili. Fimmt­ungur sagði að helsta ástæðan væri öryggi og/eða traust og 18,3 pró­­sent vegna þess að arð­­ur­inn færi þá til almenn­ings. Þá sögðu 15,7 pró­­sent að helsta ástæða þess að þeir væru jákvæðir gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­­skipta­­banka vera þá að það þýddi að minni líkur væru á því að hlut­irnir myndu enda illa og að spill­ing og græðgi yrði minni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvítbók

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár